Njóttu velGuðjónR skrifaði:Þetta er magnaður dagur!
Fyrir 24 dögum síðan sat ég hér og skrifaði fyrsta innleggið á þessum þræði þar sem ég bað ykkur um hjálp.
Í sannleika sagt þá var þetta erfiðasti póstur sem ég hef skrifað frá því að vefurinn opnaði fyrir rúmum 12 árum síðan.
Mér fannst erfitt að biðja um hjálp en tilhugsunin um að standa aleinn í þessu var þó erfiðari og því fór þráðurinn upp.
Núna 24 dögum síðar er takmarkinu náð! Hverjum hefði dottið það í hug í upphafi? Ekki mér svo mikið er víst.
Hvað segir þessi árangur mér? Þetta segir mér að ég er partur af einhverju sem er miklu, miklu stærra og miklu merkilegra en mér hafði nokkurn tíman grunað.
Samhugurinn og samstaðan er það sem gerir okkur að samfélagi, vefur er bara vefur en fólkið sem tekur þátt gerir vefinn að samfélagi.
Ég er óendanlega þakklátur og stoltur af því að hafa verið partur af Vaktinni frá upphafi, alveg frá því að vefurinn var bara vefur og þangað til hann breyttist í samfélag.
Við munum halda ótrauð áfram inn í framtíðina, Facebook, Twitter, SnapChat og fleiri góðir vefir munu bætast við en það mun ekki breyta því að þetta er „samfélagið okkar“.
Ný og flottari uppfærsla er rétt handan við hornið, sú stærsta síðan 2007 en ég er að íslenska og litaleiðrétta uppfærsluna og mun skella henni upp fyrir jól.
Það verður mín jólagjöf til ykkar!
Ég er er svo hrærður yfir þessu öllu að stafirnir eru í móðu á skjánum, líklegast þar sem ég skrifa þetta með tárin í augunum af þakklæti.
Innilegar þakkir fyrir allt saman kæru vinir.
Nú vantar ykkar aðstoð
-
- Gúrú
- Póstar: 539
- Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1197
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Þetta er sannkallað jólakraftaverk Til hamingju Guðjón, og Vaktarar allir fyrir að standa að svona flottu samfélagi.
-
- /dev/null
- Póstar: 1463
- Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
- Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Til lukku með þetta Guðjón. Til lukku Vaktarar fyrir þetta afrek.
Takk fyrir tækifærið að getað verið þátttakandi í þessu afreki.
Takk fyrir tækifærið að getað verið þátttakandi í þessu afreki.
MCTS Nov´12
Asus eeePc
Asus eeePc
-
- Geek
- Póstar: 870
- Skráði sig: Mið 25. Mar 2009 20:55
- Staðsetning: Hafnarfjarðarsveit
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Eins og út úr mínum eigin munni mælt! Til hamingju Guðjón og allir vaktarar!rapport skrifaði:Mér þykir bara virkilega gott að vita að þetta mál þurfi ekki að hanga yfir Guðjóni yfir jólin og er smá stoltur af minni þáttöku.
Svo er líka nokkuð ljóst að 5þ. er ekki hátt kommission fyrir að skapa vettvang fyrir þá verslun sem ég hef átt í gegnum Vaktina eða hjálpina, hugmyndirnar og húmorinn...
Guðjón. Takk fyrir mig og það var mín ánægja að fá að leggja eitthvað af mörkum til að losa þig við þennan höfuðverk sem þetta skíta mál hefur verið.
Just a Pc master race member that converted to a simple life as a console peasant
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Og ég sem var að fara að styrkja, oh well....
Loksins edrú og aldrei í mínu fullorðins lífi liðið betur né liðið jafn mikið eins og manneskju. Nú byrjar restin af lífinu.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Ef bara ónefndur lögfræðingur hefði farið fram á hærri upphæð .. o jæja.HalistaX skrifaði:Og ég sem var að fara að styrkja, oh well....
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Vel gert allir og til lukku Guðjón.
i9 10900k - asus maximus formula - RTX 3090 asus rog strix oc - TridentZ 32gb ddr4 4000 cl17 - 2tb 970 evo plus - phanteks enthoo 719 - be quiet dp 1200w - Full custom loop 2x360 2x480 2xd5 - Samsung odyssey G7
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 348
- Skráði sig: Mið 02. Feb 2011 21:59
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Hehe, ég líka...HalistaX skrifaði:Og ég sem var að fara að styrkja, oh well....
First world problem
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Ég líka...HalistaX skrifaði:Og ég sem var að fara að styrkja, oh well....
Til hamingu, annars, Guðjón og allir vaktarar.
P.s.: Hvað varð um VIP titlana? Ég spyr hér af því að ég hef á tilfinningunni að það tengist þessu eitthvað.
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED
-
- FanBoy
- Póstar: 785
- Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
- Staðsetning: 404 - Location Not found.
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Flottur.Steini B skrifaði:Hehe, ég líka...HalistaX skrifaði:Og ég sem var að fara að styrkja, oh well....
First world problem
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1863
- Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Við erum Íslenskt samfélag af hátæknivæddum andskotum
Ég veit ekki hvernig Vaktin.is kom til að vera.. en við söfnuðum 700.00 þús kalli því okkur langaði til á 20 dögum eða svo.. !
Heyður til ykkar strákar ! .. svona eiga hlutirnir að virka á Íslandi ! djöfull er ég stoltur af okkur

Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
GuðjónR skrifaði:Þetta er magnaður dagur!
Fyrir 24 dögum síðan sat ég hér og skrifaði fyrsta innleggið á þessum þræði þar sem ég bað ykkur um hjálp.
Í sannleika sagt þá var þetta erfiðasti póstur sem ég hef skrifað frá því að vefurinn opnaði fyrir rúmum 12 árum síðan.
Mér fannst erfitt að biðja um hjálp en tilhugsunin um að standa aleinn í þessu var þó erfiðari og því fór þráðurinn upp.
Núna 24 dögum síðar er takmarkinu náð! Hverjum hefði dottið það í hug í upphafi? Ekki mér svo mikið er víst.
Hvað segir þessi árangur mér? Þetta segir mér að ég er partur af einhverju sem er miklu, miklu stærra og miklu merkilegra en mér hafði nokkurn tíman grunað.
Samhugurinn og samstaðan er það sem gerir okkur að samfélagi, vefur er bara vefur en fólkið sem tekur þátt gerir vefinn að samfélagi.
Ég er óendanlega þakklátur og stoltur af því að hafa verið partur af Vaktinni frá upphafi, alveg frá því að vefurinn var bara vefur og þangað til hann breyttist í samfélag.
Við munum halda ótrauð áfram inn í framtíðina, Facebook, Twitter, SnapChat og fleiri góðir vefir munu bætast við en það mun ekki breyta því að þetta er „samfélagið okkar“.
Ný og flottari uppfærsla er rétt handan við hornið, sú stærsta síðan 2007 en ég er að íslenska og litaleiðrétta uppfærsluna og mun skella henni upp fyrir jól.
Það verður mín jólagjöf til ykkar!
Ég er er svo hrærður yfir þessu öllu að stafirnir eru í móðu á skjánum, líklegast þar sem ég skrifa þetta með tárin í augunum af þakklæti.
Innilegar þakkir fyrir allt saman kæru vinir.
Verðlöggur alltaf velkomnar.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Ég ætlaði að reyna að vera síðastur.. Var í prófi í morgun svo ég missti af sénsinum :/
En til hamingju! þetta er frábært!
En til hamingju! þetta er frábært!
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1025
- Skráði sig: Lau 27. Mar 2010 18:16
- Staðsetning: Terra
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Ég er ánægður að hafa getað hjálpað, lengi lifi vaktin!
MSi z270 Tomahawk | i7 7700k | Msi GTX 1060 Gaming X 6GB | 16GB 3000mhz Corsair vengeance | Samsung 750 Evo 120Gb | WD Black Caviar 640Gb | BenQ G2420HDB | HAF 912 Plus | Og það er alltaf eitthvað hljóð í bílnum mínum...
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2569
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Við sigruðum og hann tapaði.
-
- Kóngur
- Póstar: 4270
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Hver tapaði? Friðjón? Ef maður lítur þannig á þetta að hann komist upp með að borga ekki þá sé ég ekki hvernig hann er að tapa.CendenZ skrifaði:Við sigruðum og hann tapaði.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2569
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Mér finnst líklegt að hér hafi átt að reyna brjóta Guðjón en það tókst ekki. Ég tel að menn geti alveg borgað 700 þúsund krónur þegar viðkomandi er kominn á eða yfir tvítugsaldurinn.
Þess vegna segi ég, við sigruðum. Guðjón stendur uppi sem winner.
Þess vegna segi ég, við sigruðum. Guðjón stendur uppi sem winner.
-
- Kóngur
- Póstar: 4270
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Jájá, það er alveg satt. Mjög flott fyrir Guðjón og Vaktina sem samfélag.CendenZ skrifaði:Mér finnst líklegt að hér hafi átt að reyna brjóta Guðjón en það tókst ekki. Ég tel að menn geti alveg borgað 700 þúsund krónur þegar viðkomandi er kominn á eða yfir tvítugsaldurinn.
Þess vegna segi ég, við sigruðum. Guðjón stendur uppi sem winner.
En best væri samt að Friðjón borgaði og þessi peningur sem safnaðist gæti farið í eitthvað skemmtilegra. Menn eiga ekkert að komast upp með að stefna hægri vinstri og sitja svo stikkfrí þegar þeir tapa því þeir eiga ekki aur.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2569
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Guðjón borgar strax en á kröfu á viðkomandi. Hún ætti ekki að fyrnast auðveldlegaKermitTheFrog skrifaði:Jájá, það er alveg satt. Mjög flott fyrir Guðjón og Vaktina sem samfélag.CendenZ skrifaði:Mér finnst líklegt að hér hafi átt að reyna brjóta Guðjón en það tókst ekki. Ég tel að menn geti alveg borgað 700 þúsund krónur þegar viðkomandi er kominn á eða yfir tvítugsaldurinn.
Þess vegna segi ég, við sigruðum. Guðjón stendur uppi sem winner.
En best væri samt að Friðjón borgaði og þessi peningur sem safnaðist gæti farið í eitthvað skemmtilegra. Menn eiga ekkert að komast upp með að stefna hægri vinstri og sitja svo stikkfrí þegar þeir tapa því þeir eiga ekki aur.
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Þetta er ósanngjarnt, hvernig á ég að leggja inna þig pening ef reikningsnumerið er horfið guðjón?
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Skal láta þig fá reikningsnúmer sem er totally númerið hans Guðjóns.biturk skrifaði:Þetta er ósanngjarnt, hvernig á ég að leggja inna þig pening ef reikningsnumerið er horfið guðjón?
Tölva, 2 skjáir, Varmilo lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Ég treisti þessu álíka vel og samfylkingunni
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
-
- Nýliði
- Póstar: 20
- Skráði sig: Mán 22. Júl 2013 08:23
- Staðsetning: Svalbarði, Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Er ég orðinn Missranny the boy ekki það að það breytir engu fyrir mig að vera talinn til KK,mitt framlag var ekki stórt en jíbbí hvað ég er ánægð með okkur ég vissi að þetta hefðist. Besta samfélag sem ég hef kynnst og greinilega fer lítið fyrir mér.Ég er bara haldinn mikilli tölvuást og einn daginn kemst ég í mitt draumatölvunám.Hélt ég gæti ekki lært neitt tölvutengt en á son með dæmigerða einhverfu og fyrir sirka 2 árum uppgvötvaði ég að með því að laga reglulega hans tölvu þá er þetta minn heimur í dag. Er þó mest heilluð af network security management,og geymi með mér uppgvötvanir á þeim vulnarbilitis sem ég hef fundið t.d. hjá google en kann svo ekkert inná feisinu sem allir aðrir kunna. Og ég er stolt af strákunum hér fyrir alla sína óeigingjörnu vinnu í öll þessi ár.Hnykill skrifaði:Við erum Íslenskt samfélag af hátæknivæddum andskotum
Ég veit ekki hvernig Vaktin.is kom til að vera.. en við söfnuðum 700.00 þús kalli því okkur langaði til á 20 dögum eða svo.. !
Heyður til ykkar strákar ! .. svona eiga hlutirnir að virka á Íslandi ! djöfull er ég stoltur af okkur
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nú vantar ykkar aðstoð
Internetið.missranny skrifaði:Er ég orðinn Missranny the boy ekki það að það breytir engu fyrir mig að vera talinn til KK,mitt framlag var ekki stórt en jíbbí hvað ég er ánægð með okkur ég vissi að þetta hefðist. Besta samfélag sem ég hef kynnst og greinilega fer lítið fyrir mér.Ég er bara haldinn mikilli tölvuást og einn daginn kemst ég í mitt draumatölvunám.Hélt ég gæti ekki lært neitt tölvutengt en á son með dæmigerða einhverfu og fyrir sirka 2 árum uppgvötvaði ég að með því að laga reglulega hans tölvu þá er þetta minn heimur í dag. Er þó mest heilluð af network security management,og geymi með mér uppgvötvanir á þeim vulnarbilitis sem ég hef fundið t.d. hjá google en kann svo ekkert inná feisinu sem allir aðrir kunna. Og ég er stolt af strákunum hér fyrir alla sína óeigingjörnu vinnu í öll þessi ár.Hnykill skrifaði:Við erum Íslenskt samfélag af hátæknivæddum andskotum
Ég veit ekki hvernig Vaktin.is kom til að vera.. en við söfnuðum 700.00 þús kalli því okkur langaði til á 20 dögum eða svo.. !
Heyður til ykkar strákar ! .. svona eiga hlutirnir að virka á Íslandi ! djöfull er ég stoltur af okkur
þar sem að strákarnir eru strákar
þar sem að stelpurnar eru strákar
og þar sem að 12 ára smástelpur eru FBI kallar
Það eru engar stelpur á internetinu
Nei reyndar verð ég að játa það að ég hafði ekkert tekið eftir því að það væri stelpa hérna, það gerist nú alltaf reglulega en það er orðið svolítið síðan að það var aktív stelpa hérna.
Endilega láttu fara meira fyrir þér þá tökum við eftir þér
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !