Borgar Bitcoin sig?

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
absalom86
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mán 28. Jan 2019 15:32
Staða: Ótengdur

Borgar Bitcoin sig?

Póstur af absalom86 »

á 5 s9 antminers sem framleiða sirka 14 th/s, er það þess virði að hafa þetta í sambandi núna eftir hækkunina eða er þetta pointless?

búin að vera að reyna að fá það á hreint hvað kwh kostar komið heim til manns ( eða annað ) en er ekki viss hvort ég sé með réttu tölurnar, þar að segja önnur þeirra er 17kr per kwh og hin 7.5kr per kwh.

sniðugt að hafa fyrir því að koma þessu í gang eða engin tilgangur?
Skjámynd

Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Borgar Bitcoin sig?

Póstur af Sallarólegur »

Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller

mainman
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 327
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 15:40
Staða: Ótengdur

Re: Borgar Bitcoin sig?

Póstur af mainman »

Ég er búinn að fara í gegnum þetta margoft og lendi alltaf á sömu tölu og samkvæmt hs orku þá er það rétt niðurstaða hjá mér og ég er að greiða 14,63 fyrir kwh með flutningi.
Það getur munað nokkrum aurum upp eða niður eftir því hvar þú kaupir rafmagnið en þetta verður samt alltaf circa talan.
Þá getur þú byrjað að reikna hvort þetta borgi sig eða ekki.
Kv.

bigggan
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 394
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Staða: Ótengdur

Re: Borgar Bitcoin sig?

Póstur af bigggan »

Flutingsgjald er það sama hjá öllum held ég kringum 6-7 kr kwh, sem bætist ofaná rafmagnsverðin sem þíð sjáið.
Skjámynd

nidur
Kerfisstjóri
Póstar: 1227
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Borgar Bitcoin sig?

Póstur af nidur »

Þetta er pointless, eina leiðin til að græða á þessu er að kaupa bíða og selja allt á réttum tímum :)

halldorjonz
vélbúnaðarpervert
Póstar: 994
Skráði sig: Þri 11. Des 2007 21:23
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Borgar Bitcoin sig?

Póstur af halldorjonz »

Ef ég ætti minera þá myndi ég alltaf nota þá til að minea, why not \:D/
Svara