Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Vantar dekk fyrir veturinn. Með hverju mæla menn?
Er að spá í þetta:
15 R 185/65 Michelin Alpin 5 hjá N1 á 12.990 kr.
Er að spá í þetta:
15 R 185/65 Michelin Alpin 5 hjá N1 á 12.990 kr.
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Hef verið að pæla í yokohama iG55 hjá dekkjahöllinni virðast vera almennileg en spurning hvort menn hafa eitthverja reynslu á þeim.
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Frábær dekk. Nota ig35 og ig55 á mína bílaDrangur skrifaði:Hef verið að pæla í yokohama iG55 hjá dekkjahöllinni virðast vera almennileg en spurning hvort menn hafa eitthverja reynslu á þeim.
Eplakarfan: Apple Watch S6 LTE | iPad Air 2020 | iPad Pro 12.9” | Apple TV 4K | iPhone 13 Pro Max | Airpods Pro
Tölvan: Lenovo IdeaPad L340 | PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro
Útiveran: Ford Kuga | Kangoo | Zero 10X | Bettinsoli | Savage B22 | Savage Apex 110 Predator XP
Tölvan: Lenovo IdeaPad L340 | PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro
Útiveran: Ford Kuga | Kangoo | Zero 10X | Bettinsoli | Savage B22 | Savage Apex 110 Predator XP
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Var frekar að spá í heilsársdekk þar sem bíllinn er eingöngu keyrður innanbæjar í Reykjavík
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Þegar ég keypti síðasta vetur þá var Costco með bestu verðin.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2309
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
https://www.max1.is/is/dekk/folksbilade ... -wr-d4/771
Hvað sem þú kaupir, ekki fá þér Toyo harðskeljadekk nema þú viljir skauta í bleytu.
Hvað sem þú kaupir, ekki fá þér Toyo harðskeljadekk nema þú viljir skauta í bleytu.
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Tek undir þetta. Toyo harðskeljadekkin eru fín í þurru og hálku en alveg hræðileg í bleytu.GullMoli skrifaði:https://www.max1.is/is/dekk/folksbilade ... -wr-d4/771
Hvað sem þú kaupir, ekki fá þér Toyo harðskeljadekk nema þú viljir skauta í bleytu.
Aðaltölva: Dell Latitude 7480 | i7-7600u | 32GB DDR4 | 1TB SSD | 14"IPS
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
-
- Vaktari
- Póstar: 2260
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Ég fékk mér Michelin X-Ice3 hjá Costco í fyrra. Hef aldrei áður verið á ónelgdu (er að norðan og hef ekki þurft að kaupa mér vetrardekk síðan ég flutti)
Ég gæti eiginlega ekki verið sáttari. Virkilega stöðug og gott grip í öllum aðstæðum. Auðvitað kostar þetta enda Michelin hige enda dekk. En þau endast mjög vel (var á nelgdum Micheline) svo þú færð fyrir peninginn. Til dæmis hef ég ekki séð að Michelin fari að morkna í köntunum eftir 4-5 dekk eins og mikið af ódýru dekkjunum.
Dekk eru öryggis atriði auðvitað er allt í lagi að elta besta verðið en ekki kaupa rusl. Þú endar sennilega með færri ekna kílómetra á dekkja gangi og það verða ekki jafn þægilegir kílómetra.

i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Þessi dekk kosta undir bílinn komin með nýjum ventlum og köfnunarefni 12.599. stykkið hjá Costcoelri99 skrifaði:Vantar dekk fyrir veturinn. Með hverju mæla menn?
Er að spá í þetta:
15 R 185/65 Michelin Alpin 5 hjá N1 á 12.990 kr.
https://www.facebook.com/photo.php?fbid ... ater&ifg=1
Ég var að kaupa Michelin Alpin 6 91T 195/65 R15 hjá Costco á 11.999.- undirkomið með öllu.
- Viðhengi
-
- 195.jpg (29.85 KiB) Skoðað 6127 sinnum
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Ég keypti Westlake (heilsárs) kínadekk undir jeppann hjá mér í fyrravetur af Dekkverk. Fékk ganginn á 80þ sem er mjög ódýrt m.v. aðra framleiðendur. Ég get ekki annað en mælt með þeim, virka vel í sjó og bleytu, eru ekki hávaðasöm og sér nánast ekkert á þeim eftir árs notkun. Minnir að á Dekkverk síðunni hafi verið talað um að þau væru harðkorna sem ég held reyndar að sé vitleysa, samt fín dekk.
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Nokian hakkapeliitta og Michelin X-Ice eru líklegast bestu dekkinn.
Ég hef verið með Sonar PF-3D undir þremur bílum og verið mjög ánægður með grip og endingu.
Ég hef verið með Sonar PF-3D undir þremur bílum og verið mjög ánægður með grip og endingu.
PS4
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 993
- Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Gæti verið að þetta séu loftbóludekk? Fékk svipaðan díl hjá Dekkverk á Westlake og mig minnir að þetta hafi verið loftbóludekk. Verst að Dekkverk er farnir á hausinn.Hauxon skrifaði:Ég keypti Westlake (heilsárs) kínadekk undir jeppann hjá mér í fyrravetur af Dekkverk. Fékk ganginn á 80þ sem er mjög ódýrt m.v. aðra framleiðendur. Ég get ekki annað en mælt með þeim, virka vel í sjó og bleytu, eru ekki hávaðasöm og sér nánast ekkert á þeim eftir árs notkun. Minnir að á Dekkverk síðunni hafi verið talað um að þau væru harðkorna sem ég held reyndar að sé vitleysa, samt fín dekk.
Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Það hefur nú verið eitthvað meiriháttar furðulegt í gangi þarna - ótrúlegt þegar fyrirtæki sem er svona rosalega mikið að gera hjá loka bara allt í einu búllunni og skella í lásbraudrist skrifaði: Gæti verið að þetta séu loftbóludekk? Fékk svipaðan díl hjá Dekkverk á Westlake og mig minnir að þetta hafi verið loftbóludekk. Verst að Dekkverk er farnir á hausinn.
Það var nánast alltaf biðröð þegar ég fór þangað.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Þarf að kaupa dekk handa konunni og vil að hún sé eins örugg og dekk geta valdið. Hún er bara innan höfuðborgarsvæðisins svo naglar eru sjálfsagt óþarfir.
Hvort ætti maður að fara í loftbólur, harðkorna eða skeljar? Þetta er Yaris 2018.
Verðið skiptir engu.
Hvort ætti maður að fara í loftbólur, harðkorna eða skeljar? Þetta er Yaris 2018.
Verðið skiptir engu.
Eplakarfan: Apple Watch S6 LTE | iPad Air 2020 | iPad Pro 12.9” | Apple TV 4K | iPhone 13 Pro Max | Airpods Pro
Tölvan: Lenovo IdeaPad L340 | PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro
Útiveran: Ford Kuga | Kangoo | Zero 10X | Bettinsoli | Savage B22 | Savage Apex 110 Predator XP
Tölvan: Lenovo IdeaPad L340 | PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro
Útiveran: Ford Kuga | Kangoo | Zero 10X | Bettinsoli | Savage B22 | Savage Apex 110 Predator XP
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Michelin X-ice 3.ColdIce skrifaði:Þarf að kaupa dekk handa konunni og vil að hún sé eins örugg og dekk geta valdið. Hún er bara innan höfuðborgarsvæðisins svo naglar eru sjálfsagt óþarfir.
Hvort ætti maður að fara í loftbólur, harðkorna eða skeljar? Þetta er Yaris 2018.
Verðið skiptir engu.
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
ColdIce skrifaði:Þarf að kaupa dekk handa konunni og vil að hún sé eins örugg og dekk geta valdið. Hún er bara innan höfuðborgarsvæðisins svo naglar eru sjálfsagt óþarfir.
Hvort ætti maður að fara í loftbólur, harðkorna eða skeljar? Þetta er Yaris 2018.
Verðið skiptir engu.
https://www.max1.is/is/dekk/folksbilade ... eliitta-r3
Færð ekki betra og öruggara vetrardekk.
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Hjá N1 fékk ég eftirfarandi tilboð fyrir 185/65R15 undirkomin:
Michelin Alpin 5 62.200
http://www.tyrereviews.co.uk/Tyre/Michelin/Alpin-5.htm
Michelin X-ICE 66.200
http://www.tyrereviews.co.uk/Tyre/Miche ... ce-Xi3.htm
Á eftir að skreppa í Costco og sjá hvað þeir bjóða.
Michelin Alpin 5 62.200
http://www.tyrereviews.co.uk/Tyre/Michelin/Alpin-5.htm
Michelin X-ICE 66.200
http://www.tyrereviews.co.uk/Tyre/Miche ... ce-Xi3.htm
Á eftir að skreppa í Costco og sjá hvað þeir bjóða.
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Er á þessum og þetta eru held ég langbestu dekk sem ég hef keyrt á.brain skrifaði:ColdIce skrifaði:Þarf að kaupa dekk handa konunni og vil að hún sé eins örugg og dekk geta valdið. Hún er bara innan höfuðborgarsvæðisins svo naglar eru sjálfsagt óþarfir.
Hvort ætti maður að fara í loftbólur, harðkorna eða skeljar? Þetta er Yaris 2018.
Verðið skiptir engu.
https://www.max1.is/is/dekk/folksbilade ... eliitta-r3
Færð ekki betra og öruggara vetrardekk.
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Tek þig á orðinu með heilsársdekkin.Hauxon skrifaði:Ég keypti Westlake (heilsárs) kínadekk undir jeppann hjá mér í fyrravetur af Dekkverk. Fékk ganginn á 80þ sem er mjög ódýrt m.v. aðra framleiðendur. Ég get ekki annað en mælt með þeim, virka vel í sjó og bleytu, eru ekki hávaðasöm og sér nánast ekkert á þeim eftir árs notkun. Minnir að á Dekkverk síðunni hafi verið talað um að þau væru harðkorna sem ég held reyndar að sé vitleysa, samt fín dekk.
En hef það eftir áreiðanlegum heimildum að Westlake nagladekkin séu allt annað en hljóðlát.
Miðað við lýsinguna sem ég hef heyrt ættu þau að vera hreinlega gölluð að einhverju leyti.
Til sölu í augnablikinu: Sennheiser HD600 heyrnatól
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Ég er súperánægður með Michelin Alpin 6, held ég hafi aldrei keyrt á hljóðlátari dekkjum.
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
keypti 4x 185/65 15R hjá dekkjahöllinni á 70k með ventlum og umfelgun fínn díll, lítill hljóðmunur á þeim og sumardekkjunum mínum
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
15 R 185/65 Michelin Alpin 5 kosta 49.196 undirkomin hjá Costco sem er um 13.000 kr ódýrara en hjá N1. Þetta væri eflaust dýrara ná N1 ef það væri ekki vegna samkeppni frá Costco.
Sýnist að Nokian Hakkapeliitta R2 og Michelin X Ice séu einnig frábær dekk.
Sýnist að Nokian Hakkapeliitta R2 og Michelin X Ice séu einnig frábær dekk.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Ég sá bara Michelin Alpin 6 á 47.996.- undirkomin með ventlum og köfnunarefni.elri99 skrifaði:15 R 185/65 Michelin Alpin 5 kosta 49.196 undirkomin hjá Costco sem er um 13.000 kr ódýrara en hjá N1. Þetta væri eflaust dýrara ná N1 ef það væri ekki vegna samkeppni frá Costco.
Sýnist að Nokian Hakkapeliitta R2 og Michelin X Ice séu einnig frábær dekk.
Alpin 5 eru 185/65 15 og kosta 50.396.- ... nema þau hafi lækkað um helgina.
- Viðhengi
-
- alphin 5.jpg (24.31 KiB) Skoðað 5558 sinnum
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Þetta verð er frá í dag.
- Viðhengi
-
- EpcfpgYQ.jpeg (242.92 KiB) Skoðað 5462 sinnum
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 348
- Skráði sig: Mið 02. Feb 2011 21:59
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Dekk fyrir veturinn - Besti díllinn?
Keypti 265/50 R19 Nokian Hakkapelitta 8 SUV frá https://www.camskill.co.uk/ á ca 145þ. til mín
Sambærileg stærð kostar 205þ. hjá Max1
Sambærileg stærð kostar 205þ. hjá Max1