Á endanum leist mér best á ROG PG279Q.
En verandi ábyrgður heimilisfaðir á ég andskoti erfitt með að réttlæta svona dýr kaup.
Þá fór ég að skoða og fann út að ACER eru með í Predator línunni sinni svipaðan skjá, það eina sem ROG-inn hefur fram yfir hann er yfirklukkun úr 144hz í 165hz.
Hann fékkst því miður ekki á Íslandi og var ég búinn að hafa samband við Tölvutek, þar sem þeir eru umboðsaðilar fyir ACER hér á landi, þeir gátu sérpantað og til mín komið á 179.990 kr

Mér til mikillar gleði sá ég hinsvegar að ELKO eru komnir með hann á sölu, og það er nýlega gerst, ég er búinn að vera að stalka alla sem eru að selja svona high end leikjaskjái.
Er ÞETTA ekki no brainer? Eru þessi 21hz 55 þúsund króna virði?