E-Sports
E-Sports
Mmmm.... nokkuð áhugavert ég er/var doldill SC2 nöttari og var mikið inni í þessu.
CBS weighs in: Video games are a sport
http://www.dailydot.com/esports/cbs-sun ... g-esports/" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég trúi því að á innan við næstu 20 árum þá muni E-sports verða mun vinsælla en flestar aðrar íþróttir, allavega í áhorfi, að undanskildum fótbolta og ÓL.
CBS weighs in: Video games are a sport
http://www.dailydot.com/esports/cbs-sun ... g-esports/" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég trúi því að á innan við næstu 20 árum þá muni E-sports verða mun vinsælla en flestar aðrar íþróttir, allavega í áhorfi, að undanskildum fótbolta og ÓL.
*-*
Re: E-Sports
Alveg hiklaust verður þetta stærri en flest allar íþróttir ef það er ekki bara orðið nú þegar. Og með góðum lýsendum kemst fólk fljótt inní leikina sem er verið að spila
Re: E-Sports
Hvað í ósköpunum fær þig til þess að halda það að þetta eigi eftir að verða eitt það vinsælasta í heiminum?
Re: E-Sports
Sjáðu bara Minecraft, þetta er vinsælasta efnið á Youtube, og almennt eru svona "replays" eða leikjacommentarí vinsælasta efnið.Bjosep skrifaði:Hvað í ósköpunum fær þig til þess að halda það að þetta eigi eftir að verða eitt það vinsælasta í heiminum?
Ungu kynslóðirnar sem eru að alast upp í dag munu ekkert fara að horfa á golf eða blak eftir 25 ára aldur.
Horfðu á CBS vídjóið, þar segja þeir að lokakeppnin í League of Legends fékk meira áhorf en lokakeppnin í ameríska hafnaboltanum.
Ég er nú sjálfur orðinn ágætlega "seasoned" í árum og ég horfi á svona vídjó, starcraft aðallega, en ég skemmti mér við þetta. Hef aldrei haft neinn áhuga á fótbolta eða öðrum svona boltasportum, finnst þau frekar þroskaheft, alltof hægvirkt og plebbalegt, alltaf sama, breytist aldrei, bara leikmennirnir. En í E-sports koma alltaf nýjir vinsælir leikir á 2-3 ára fresti sem verða ofurvinsælir og þá breytist allt saman, hristir upp í öllu. Þetta er bara öðruvísi og meira action
*-*
-
- /dev/null
- Póstar: 1393
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Staða: Ótengdur
Re: E-Sports
Ég verð að viðurkenna að þó ég sé nær 40 en 30 ára að ég hef lúmskt gaman að horfa t.d. á CS:GO tournament á Twitch enda var upprunalega CS moddið eitt af fyrstu leikjunum sem ég spilaði af einhverju ráði.
Have spacesuit. Will travel.
-
- Vaktari
- Póstar: 2259
- Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
- Staðsetning: Grafarvogur
- Staða: Ótengdur
Re: E-Sports
Ég skal alveg viðurkenna það að ég vaknaði nú kl 06:15 á Sunnudegi til að horfa á úrslitin í League of Legends World Championship 2014.
-
- 1+1=10
- Póstar: 1162
- Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
- Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
- Staða: Ótengdur
Re: E-Sports
http://vidstatsx.com/youtube-top-100-mo ... d-channels" onclick="window.open(this.href);return false;
Gaming er í 2 sæti á eftir músík.
Gaming er í 2 sæti á eftir músík.
Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
Re: E-Sports
Athugaðu að PewDiePie er í 5. sæti og hann er alfarið Gaming, en hann er bara svo vinsæll að hann er heill flokkur. En það þýðir að Gaming er með 111 milljón subscribers á YouTube.Minuz1 skrifaði:http://vidstatsx.com/youtube-top-100-mo ... d-channels
Gaming er í 2 sæti á eftir músík.
En svo er Rihanna, OneDirection, KatyPerry o.fl. með sínar eigin stöðvar sem eru gríðarlega vinsælar þannig að þetta kannski jafnast út.
Þannig að tónlist er líklega vinsælli en Gaming sýnist mér.
*-*
Re: E-Sports
Alfarið er kannski fulldjúpt í árina tekið. Ég frétti nú bara af tilvist þessa gaurs fyrir skömmu en ég hef séð meira af kærustunni hans og honum og hundinum hans en honum að spila tölvuleiki.appel skrifaði:Athugaðu að PewDiePie er í 5. sæti og hann er alfarið Gaming, en hann er bara svo vinsæll að hann er heill flokkur. En það þýðir að Gaming er með 111 milljón subscribers á YouTube.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: E-Sports
Athugið að "Live sports" eru mun vinsælli neyslumáti en "non live sports" svo áhorf á youtube er ekki beint góð mælistika.
Ég hef mögulega einusinni horft á part af tölvuleikjavídjói þar sem leikurinn sjálfur var aðalatriðið, en ekki einhver kennsla eða annarskonar afþreyingarsjónarhorn. Ég er úreltur...
Ég hef mögulega einusinni horft á part af tölvuleikjavídjói þar sem leikurinn sjálfur var aðalatriðið, en ekki einhver kennsla eða annarskonar afþreyingarsjónarhorn. Ég er úreltur...
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1519
- Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
- Staðsetning: Á sporbaug sólar
- Staða: Ótengdur
Re: E-Sports
Ég veit ekki með aðra hérna, en ég er 26ára og nýt enþá þess að horfa á Blak kvenna...appel skrifaði: Ungu kynslóðirnar sem eru að alast upp í dag munu ekkert fara að horfa á golf eða blak eftir 25 ára aldur
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit
Re: E-Sports
https://www.youtube.com/playlist?list=P ... R4HoCxFJUA" onclick="window.open(this.href);return false;
mæli með þessari ef þið hafið gaman af að horfa á heimildarmyndir um esports
mæli með þessari ef þið hafið gaman af að horfa á heimildarmyndir um esports
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 288
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2014 12:23
- Staða: Ótengdur
Re: E-Sports
volvo gerðu eina góða líka
https://www.youtube.com/watch?v=UjZYMI1zB9s" onclick="window.open(this.href);return false;
https://www.youtube.com/watch?v=UjZYMI1zB9s" onclick="window.open(this.href);return false;