Hvernig turn mæliði með ? cooler master, corsair ? eða frá einhvern öðrum framleiðanda?
Er að spá að kauap mér nýjan turn en er ekki allveg viss hvernig þannig að ég ákvað að spyrja hvernig turn þið mælið með ?:)
Intel Core i7-6700K|Gigabyte Z270X-Ultra Gaming| 2x Gigabyte GTX 1070 G1 Gaming í SLI|Corsair VEN 16GB 2400MHz|BenQ 24'' og 22'' HD|Corsair H100i
allt of mikið að góðum kössum til enginn einn er bestur mundi ég segja.
Ég er með Corsair 500R finn fyrir mig svosem og ég get stækkað við mig í íhlutum auðveldlega í framtíðinni.
skoðaðu bara "Tölvukassar" flipann hérna á vaktinni og farðu i gegnum hvern og einn, og svo sérðu fljótt hvað hentar og hvað ekki, margi fítusar sem koma til greina.
Dýrir turnar (20 þús +) eru almennt allir ágætir. Það er örugglega einhver munur milli þeirra en ekki eitthvað sem allir taka eftir. Þú ættir að reyna að átta þig á hverskonar turn þú vilt útfrá þínum þörfum fyrst (stærð móðurborðs (mAtx?), fjöldi 5,25 hólfa , snúrufrágangsmöguleikar, vatnskælingamöguleikar, gluggahliðar osfrv.) og reyna að fækka valkostunum þannig. Svo þegar þú ert kominn með nokkra sem þér líkar við, þá geturðu spurt, eða googlað reviews.
Takk fyrir skjót svör ég hef verið að skoða Corsair 400R og 500R en stærðarformið á móðurborðinu mína er ATX en sé ekki hvort 500R tekur þessa stærð á síðuni hjá tölvulistanum :/ ef 500R tekur ATX stærð þá eru góðar líkur að ég skelli mér hann
Intel Core i7-6700K|Gigabyte Z270X-Ultra Gaming| 2x Gigabyte GTX 1070 G1 Gaming í SLI|Corsair VEN 16GB 2400MHz|BenQ 24'' og 22'' HD|Corsair H100i
Ég var að fatta að ég þarf að brjóta lokið af turninum mínum til að ná h100i úr kassanum mínum þegar ég færi yfir :/ því ég þurfti að bora göt í lokið á turninum mínum gamla til að koma kælinguni fyrir og var að sjá að það er flipi sem ég þarf að ýta inn til að ná lokinu af og kælingin er allveg við þennan flipa þannig að já þarf að reyna brjóta eitthvað upp og saga til að losa það af :/ ekki nema þið eruð með betri hugmynd
Intel Core i7-6700K|Gigabyte Z270X-Ultra Gaming| 2x Gigabyte GTX 1070 G1 Gaming í SLI|Corsair VEN 16GB 2400MHz|BenQ 24'' og 22'' HD|Corsair H100i