hvort á ég að fá mér? er að spá í eitthvað á innan við 10k
- veit að GF er með dx9 support og er með viftu
- er ekki mikið í leikjum en vil hafa möguleikan
Reyndu frekar að veiða notað Ti4200 kort eða eitthvað frá einhverjum sem er að uppfæra, það er hörkukraftur í því ennþá og sanngjarnt verð á því notuðu er 10-12þús (fer eftir aukafítusum!)
Getur auglýst eftir því hér eða prófað Partalistann
Well.... 64MB Ti4200 gengur ekki heill til manna að mínu mati Bara svona weener! En hrátt 128MB Ti4200 kort myndi ég telja að 10k væri sanngjarnt fyrir, ef þú ert með fully-loaded Ti4200(128), sem er með öllum snúrum og millistykkjum, hljóðlátri viftu o.sf.rv (t.d. frá MSI) þá held ég að 12-14k sé sanngjarnt =) Hvað finnst ykkur?
Þakka fyrir linkinn Buddy. Akkúrat það sem mig vantaði.
Ljóst að í þessum djönk kortum þá er fx5200 amk með
mun meiri yfirklukkunarmöguleika.
Most splendid!
Eitt sem ég sé ekki talað um þarna (og veit svosem ekkert hvort á við þessi kort) er að ATI eru almennt með betri TV-out. S.s. mun betri gæði ef þú vilt eitthvað tengja tölvuna við sjónvarp.
EITT orð: "moddað-nettengt-xbox", nákvæmlega ekkert að gera með
TV out í dag
Daz skrifaði:Eitt sem ég sé ekki talað um þarna (og veit svosem ekkert hvort á við þessi kort) er að ATI eru almennt með betri TV-out. S.s. mun betri gæði ef þú vilt eitthvað tengja tölvuna við sjónvarp.
xbox kemur í stað dvd+vhs+svhs kapals frá pc, alhliða media center
eða þannig, cat5 netkapall í það frá swiss/hub. hugsa þetta einfaldi
tækjaskápinn minn verulega.
Daz skrifaði:"afhverju að kaupa xbox ef það er tv-out á skjákortinu hvort eð er?"
Það liggur bara einn kapall frá minni tölvu í eitthvað annað en jaðartæki eða rafmagn og það er scart kapall í sjónvarpið. Hann getur orðið ansi langur og hann kostar ekki 20 þúsund. (Og tekur ekki pláss í tækjaskápnum)
Ammz, sjálfsagt er þetta smekksatriði, ég vill bara aðskilja media+leiki
frá pc vélinni minni, færa það í stofuna þar sem ég er með tv.
Daz skrifaði:Það liggur bara einn kapall frá minni tölvu í eitthvað annað en jaðartæki eða rafmagn og það er scart kapall í sjónvarpið. Hann getur orðið ansi langur og hann kostar ekki 20 þúsund. (Og tekur ekki pláss í tækjaskápnum)
Ég er með 28" sjónvarp í "vinnuherberginu" og svo á konan laptop með tv out. Og svo miðað við í hversu miklum codec vandræðum ég lendi með hverja einustu mynd sem ég eignast myndi ég ekki gefa mikið fyrir að horfa á þær í Xboxinu (og þurfa þar með að uppfæra það í hvert skipti líka).
ég man ekki hvað það heitir en ég rakst einhverstaðar á codec manager þar sem maður getur ráðið hvaða codecs maður notar og slökt á öðrum, án þess að henda þeim útaf tölvunni, læt ykkur vita ef ég finn það í ruslinu mínu
RadoN skrifaði:codec pakkar er það versta sem þú getur sett í tölvuna til að leysa codec problem..
unistalla öllum codecum, og installa BARA DivX, XviD og AC3
það vill nú svo til að það virðist ekki vera nóg til að opna sumt af því sem ég hef...