Málið er að ég er nýbúinn að kaupa mér tölvu og eiga í smá stund en nú er málið að ég er að fara að pæla í að kaupa mér nýan kassa því þessi sem ég er með núna er ekki alveg að virka finnst mér. Er nokkuð mál að taka allt heila klabbið sem er í kassanum sem ég er með núna og færa það yfir í nýa kassan sem mér langar að kaupa eða þyrfti ég að kaupa einhverja nýa hluti. Ég er að spá í þessu vegna þess að ég á bara nóg fyrir fínum kassa en ekki neinum íhlutum.
Ég er líka ekki alveg viss um hvaða kassa ég á að kaupa mér langar í einhvern sem er nokkuð léttur, mjög kaldur, hann verður að geta tekið slatta af HD og það má ekki heyrast múkk í honum bara eins lítið og hægt er en ég legg mikla áherslu á það vegna þess að ég er einfaldlega orðin klikkaður á hávaða í öllum þessum tölvum sem ég hef átt ígegnum tíðina.
Já og ég gleymdi ég hef alveg 16-18þ í kassann. Og kannski ef þið vilduð vera svo vænir að koma með uppástungur að einhverjum viftum í kassann sem eru mjög lágværar og víbra ekki.
Ég er með Thermaltake XaserV Wingo V8000A og hann er með 5 kassaviftum og það er viftustýring fyrir tvær þeirra, ef þú skrúfar þær niður eru þær hljóðlátar.
Það eru bara slot fyrir þrjá harða diska, getur samt alveg komið fleirum í.