Talandi um skort á tæknivörum

Allt utan efnis

falcon1
Ofur-Nörd
Póstar: 299
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af falcon1 »

Hvað er helst að frétta af þessum skorti? Hefur verð hækkað vegna þessa? Ætti maður að reyna að bíða þetta af sér eða alveg eins gott að reyna að kaupa nýja tölvu núna?
Skjámynd

audiophile
/dev/null
Póstar: 1393
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af audiophile »

Þetta er ekkert að lagast á næstunni. Aðallega skjákort þó.
Have spacesuit. Will travel.
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af appel »

Ég gæti alveg ímyndað mér að þetta verði áfram vandamál út næsta ár 2022.
COVID er enn í raun í gangi og birgðakeðjan er enn í ströggli, og heft heyrt að þetta ástand er líklega að valda truflunum næstu 4-6 árin í sumum hlutum.
*-*
Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1104
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af Njall_L »

falcon1 skrifaði:Ætti maður að reyna að bíða þetta af sér eða alveg eins gott að reyna að kaupa nýja tölvu núna?
Ef þú hefur tök á og þarft eða langar, þá bara kaupa núna. Það er ekkert víst að þetta muni batna í bráð og þó svo að birgðakeðjan lagist þá er ekkert gefið að verð fari aftur í fyrra horf.
Aðaltölva: Dell Latitude 7480 | i7-7600u | 32GB DDR4 | 1TB SSD | 14"IPS
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
Skjámynd

audiophile
/dev/null
Póstar: 1393
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af audiophile »

Ég allavega ákvað að bíða ekki lengur og gera smá budget uppfærslu. Þurfti sem betur fer ekki skjákort.
Have spacesuit. Will travel.
Skjámynd

vesley
Kóngur
Póstar: 4139
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af vesley »

appel skrifaði:Ég gæti alveg ímyndað mér að þetta verði áfram vandamál út næsta ár 2022.
COVID er enn í raun í gangi og birgðakeðjan er enn í ströggli, og heft heyrt að þetta ástand er líklega að valda truflunum næstu 4-6 árin í sumum hlutum.
Megið búast við skort örugglega næstu 3-5 ár.
Þetta nær alveg niður í allar hrávörur eins og námugröftur og timbur.
Ekki sjáanlegt að “chip” skortur sé að lagast í náinni framtíð. Allir flutningar bæði skip og flug enn um 40 hægara.
massabon.is
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af GuðjónR »

https://www.frettabladid.is/frettir/alg ... pcc-bakka/
Verð á hverju tonni af framleiðsluafurð fyrirtækisins hafi rokið úr 1.500 evrum í 7.000 evrur.
Held við eigum bara eftir að sjá hækkanir, því miður.
Last edited by GuðjónR on Mið 08. Des 2021 10:04, edited 1 time in total.
Skjámynd

Moldvarpan
Of mikill frítími
Póstar: 1722
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af Moldvarpan »

Svo má ekki gleyma sí auknum þrýsting um að minnka mengandi iðnað og gera allt umhverfisvænna.
Það mun draga verulega úr framleiðslugetu.
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Talandi um skort á tæknivörum

Póstur af rapport »

Ég hef aldrei keypt jafn mikið af tölvum og fengið jafn hratt og vel afgreitt + verð voru nokkuð hagstæð og enginn sérstakur Covid bragur á þeim.

Krómbækur, pantað í júlí afgreitt í okt/nóv (Origo, snilldar verkefni) þar sem um 4.500 krómbækur voru pantaðar í júlí og afhentar grunnskólanemum til notkunar núna í nóvember/desember til að stuðla að breyttum kennsluháttum, seinasta afgreiðsla til skóla verður svo afhent Q1 '22 - Sjá HÉR

Borðtölvur, fartölvur og skjáir, pantað í okt/nóv og afgreitt í des/jan (Advania, snilldar verkefni) þar sem um 3.000-3.500 tölvur (borð- og tvær teg af fartölvum). Borgin hafði áhyggjur af þessu ástandi og var að tryggja að geta skipt út á árinu 2022 tölvum sem teknar voru í notkun 2015-2017 -Sjá HÉR

Ég hélt að afgreiðsla á búnaði mundi dragast miklu meira en varð raunin.

Borgin er með þessu að tryggja að geta úrelt eldri búnað og tækni, að starfsemin líði ekki fyrir að þurfa nota eldri búnað sem þungur er í þjónustu.
Last edited by rapport on Mið 08. Des 2021 12:09, edited 1 time in total.
Svara