Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Allar tengt bílum og hjólum
Svara

Höfundur
GummiLeifs
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mán 05. Sep 2016 01:56
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af GummiLeifs »

Þannig er mál með vexti að ég er að selja bílinn minn líklegast á morgun og er að fara fá Teslu afhenda í desember, hinsvegar væri hentugt að hafa bíl í millitíðinni, ég sel bílinn svona snemma þar sem desember er ekki besti mánuður til þess að reyna selja bíl.

En núna er ég að velta því fyrir mér hvort að einhver bílaleiga er með einhvern góðan díl ef það er tekið í tæpan mánuð eða hvort þið vitið um einhverja aðra þjónustu þar sem ég gæti komist í bíl, allar tillögur koma til greina \:D/ Annars verður maður líklegast bara að taka það á sig að vera bíllaus í tæpan mánuð :fly
Ryzen 7 3700X | NVIDIA RTX 3070 FE | Asus ROG STRIX X570-E | 16Gb 3200MHz Corsair VENGEANCE RGB PRO | Silicon Power 1Tb M.2 | Seasonic Focus Gold 650W

halipuz1
Ofur-Nörd
Póstar: 283
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 19:25
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af halipuz1 »

Ef teslan er afhend í desember afhverju bara ekki bíða?

Það eru 5 dagar þangað til desember byrjar, annars væri þá ekki bara að leigja bíl í einn mánuð'? Það er frá 70-200k myndi ég segja, fer eftir því hvernig bíl þú tekur.
Last edited by halipuz1 on Fös 26. Nóv 2021 08:19, edited 1 time in total.

Mossi__
Gúrú
Póstar: 526
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af Mossi__ »

En að bíða með að selja þartil feb/mars og vera á tveimur bílum í stutta stund?

Verður e.t.v. ódýrara en að leigja bíl.

Gætir þess vegna tekið gamla af númerum þegar Teslan kemur eða bara sett hann í söluferlið þá?

Ekkert bókað að hann seljist strax og svona.

Höfundur
GummiLeifs
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mán 05. Sep 2016 01:56
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af GummiLeifs »

halipuz1 skrifaði:Ef teslan er afhend í desember afhverju bara ekki bíða?

Það eru 5 dagar þangað til desember byrjar, annars væri þá ekki bara að leigja bíl í einn mánuð'? Það er frá 70-200k myndi ég segja, fer eftir því hvernig bíl þú tekur.
Hann er að koma um miðjan Des, þannig þetta er svolítið meira en bara 5 dagar :P
Ryzen 7 3700X | NVIDIA RTX 3070 FE | Asus ROG STRIX X570-E | 16Gb 3200MHz Corsair VENGEANCE RGB PRO | Silicon Power 1Tb M.2 | Seasonic Focus Gold 650W

Höfundur
GummiLeifs
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mán 05. Sep 2016 01:56
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af GummiLeifs »

Bíllinn er 4 kúlur og ég er komin með kaupanda þannig þetta er peningur sem ég vill ekki láta standa á planinu hjá mér :fly
Mossi__ skrifaði:En að bíða með að selja þartil feb/mars og vera á tveimur bílum í stutta stund?

Verður e.t.v. ódýrara en að leigja bíl.

Gætir þess vegna tekið gamla af númerum þegar Teslan kemur eða bara sett hann í söluferlið þá?

Ekkert bókað að hann seljist strax og svona.
Ryzen 7 3700X | NVIDIA RTX 3070 FE | Asus ROG STRIX X570-E | 16Gb 3200MHz Corsair VENGEANCE RGB PRO | Silicon Power 1Tb M.2 | Seasonic Focus Gold 650W

Mossi__
Gúrú
Póstar: 526
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af Mossi__ »

Jámeinar.

Skil þig þá bara alveg fullkomlega.
GummiLeifs skrifaði:Bíllinn er 4 kúlur og ég er komin með kaupanda þannig þetta er peningur sem ég vill ekki láta standa á planinu hjá mér :fly
Mossi__ skrifaði:En að bíða með að selja þartil feb/mars og vera á tveimur bílum í stutta stund?

Verður e.t.v. ódýrara en að leigja bíl.

Gætir þess vegna tekið gamla af númerum þegar Teslan kemur eða bara sett hann í söluferlið þá?

Ekkert bókað að hann seljist strax og svona.
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af Klemmi »

Þetta er besti díllinn sem ég finn á netinu í flýti, en annars er kannski eitthvað betra í boði ef þú nennir að hringja á milli staða.

Ford Ecosport, 89þús
https://www.langtimaleigaabil.is/is/bok ... step=start
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Skjámynd

Hrotti
FanBoy
Póstar: 733
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af Hrotti »

Svo er líka hægt að kaupa eitthvað rusl á 50 þús til að nota í nokkra daga.
Verðlöggur alltaf velkomnar.
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af appel »

Leigja bara aukabílinn af ættingja/vini, margir geta alveg lifað án aukabíls í 1-2 vikur.

Eða

STRÆTÓ
*-*

kjartanbj
Gúrú
Póstar: 559
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af kjartanbj »

Ég er í nákvæmlega sömu stöðu, fæ afhenda Teslu um miðjan des, seldi hina Tesluna núna um daginn, leitaði og leitaði að bíl en allt til sölu var bara eitthvað algert rusl sem ég nennti ekki, of dýrt að leigja líka , fékk síðan sem betur fer bíl í láni frá systur minni þangað til ég fæ nýju Tesluna

arons4
Geek
Póstar: 895
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af arons4 »

Kaupa sér rafmagnshlaupahjól ef aðstæður bjóða uppá það, kostar álíka og mánaðarleiga á bíl og þú átt það eftir mánuðinn.
Skjámynd

AndriáflAndri
Nörd
Póstar: 138
Skráði sig: Mán 13. Maí 2019 13:22
Staða: Ótengdur

Re: Bíll á meðan ég bíð eftir nýjum

Póstur af AndriáflAndri »

Ef þú vilt leigja bíl í mánuð myndi ég senda á eggert@holdur.is eða skuli@holdur.is hjá Bílaleigu Akureyrar og þeir geta gefið þér tilboð :)
Svara