Blikur á lofti í vaxtamálum
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.
Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.
Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Sömuleiðis, góð tilfinning að vera með 4.05% fasta vexti næstu þrjú árin.falcon1 skrifaði:Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.
Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.
Stýrivextir eiga eftir að fara yfir 5% á því tímabili og bankavextir sjálfsagt í 7-8% eða hærra, fer eftir verðbólgu.
Svo verður annað hrun, þetta minnir mig á tímabili frá 2005 og að bankahruni, þegar allir fóru í gengislán svo hrundi gengið og öll lán hækkuðu um 30% á einni nóttu. Þessa fasteignaverðshækkanir sem hafa átt sér stað eru engan vegin sjálfbærar.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Æ ég ætla nú rétt að vona að það verði nú ekki svo slæmt að það verði álíka hrun og 2008.
Finnst samt gott að geta verið öruggur um að vita alltaf nákvæmlega hvaða upphæð ég þarf að borga í lánið næstu 5 árin sama hvað gerist með vexti og verðbólguna. Hef litla trú á að verðbólgan hjaðni mikið þar sem verðbólga erlendis er á töluverðri siglingu líka.

- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
sama hér, get sofið rótt eftir að hafa farið í endurfjármögnun og fest vexti um daginnfalcon1 skrifaði:Ég er allavega sáttur með að hafa drifið í að festa vextina hjá mér um daginn. Ég býst við þessu hækkunarferli sé ekki lokið.
Vildi samt að við gætum notið lágvaxtarumhverfis til langs tíma en það virðist ekki vera hægt.
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Fasteignamarkaðurinn gæti orðið fórnarlamb verðbólgu
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... b_verdbol/
Enn kemur verðbólgan í bakið á Seðlabankanum
https://www.ruv.is/frett/2021/11/17/enn ... labankanum
Maður er eitthvað að reyna að lesa í stöðuna. Mann grunar að verkalýðsforustan eigi eftir að láta í sér heyra þar sem Seðlabankastjóri er að vara við launahækkunum.
Hver veit svosem hvernig Covid ástandið á eftir að þróast , en talað er um að kostnaður á erlendum vörum hækki (vegna hærri flutningskostnaðar). Öfunda ekki fólk sem er að koma sér inná fasteignarmarkaðinn þar sem það er minna framboð á íbúðum en eftirspurnin (hjálpar ekki til ef verð á byggingarvörum og launakostnaður verður hærri á næstunni við að reisa ný hús).Gæti alveg trúað að fasteignaverð hækki enn frekar.

Last edited by Hjaltiatla on Mið 17. Nóv 2021 16:55, edited 2 times in total.
Just do IT
√
√
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
https://www.visir.is/g/20212187484d/lan ... kkar-vexti
Í kjölfar breytinganna verða breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbankanum 4,20%. Lægstu fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum verða 4,65%.
Í kjölfar breytinganna verða breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbankanum 4,20%. Lægstu fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum verða 4,65%.
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Vúhú, ég er sáttur við mína 3.9% föstu vexti næstu c.a 2.5 árin. Að festa vextina síðasta vor var greinilega rétt ákvörðun.
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti
massabon.is
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Held að þetta sé í fyrsta skipti frá því að ég tók fyrst lán í byrjun 2015, sem það hefur borgað sig að vera með fasta óverðtryggða vexti.
Gleður mig að ég er loksins með hagstæðustu lánatýpuna, en á sama tíma hef ég borgað helvíti mikið aukalega hingað til, og auðvitað súrt að fagna verðbólgunni og hækkandi vaxtastigi.
Gleður mig að ég er loksins með hagstæðustu lánatýpuna, en á sama tíma hef ég borgað helvíti mikið aukalega hingað til, og auðvitað súrt að fagna verðbólgunni og hækkandi vaxtastigi.
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti
Góður!hagur skrifaði:Vúhú, ég er sáttur við mína 3.9% föstu vexti næstu c.a 2.5 árin. Að festa vextina síðasta vor var greinilega rétt ákvörðun.
Ég beið aðeins of lengi, samt sáttur með 4.05%
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Kæmi mér ekki á óvart en spurning hvort það muni vara lengi.GuðjónR skrifaði:Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti
Er líka núna að borga aukalega á lánin meðan vextirnir eru enn lágir. Aðeins að rífa það niður um nokkra þúsundkalla
massabon.is
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Já það er óvitlaust. Reyna að lækka höfuðstólinn eins mikið og hægt er áður en maður dettur í 7% vextina 2024 (eða neyðist yfir í verðtryggt aftur).vesley skrifaði:Kæmi mér ekki á óvart en spurning hvort það muni vara lengi.GuðjónR skrifaði:Kristalskúlan mín spáir 4.5% hjá þér um mitt næsta ár…vesley skrifaði:Vextirnir komnir í 3,6% hjá mér eins og við var að búast. Spurning hver staðan verður um næsta sumar hvort það sé rétt hjá mér að festa ekki vexti
Er líka núna að borga aukalega á lánin meðan vextirnir eru enn lágir. Aðeins að rífa það niður um nokkra þúsundkalla
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Það er áhugavert að skoða þetta skjal sem Landsbankinn birti í dag: https://www.landsbankinn.is/uploads/doc ... a-2008.pdf
Þetta er mín spá m.v. það sem Landsbankinn gaf út um daginn. Ég festi mína vexti í 3 ár í 4,35%, sé ekki eftir því.
Mér sýnist þetta stefna í a.m.k. 4,5-4,7% næsta sumar, þ.e.a.s. breytilegir vextir.
Þetta er mín spá m.v. það sem Landsbankinn gaf út um daginn. Ég festi mína vexti í 3 ár í 4,35%, sé ekki eftir því.
Mér sýnist þetta stefna í a.m.k. 4,5-4,7% næsta sumar, þ.e.a.s. breytilegir vextir.
Last edited by bjoggi on Fim 25. Nóv 2021 20:27, edited 3 times in total.
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Blikur á lofti í vaxtamálum
Vesenið af þessu upphlaupi Seðlabanka Íslands verður talsvert árið 2022 og 2023.
Inflation: why it’s temporary and raising interest rates will do more harm than good
Inflation: why it’s temporary and raising interest rates will do more harm than good