Kaup á ryksuguvélmenni
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Er mér einum að finnast góð hugmynd að versla bursta á skrúfuvél til að þurfa ekki að þjösnast við þrifin?
https://www.amazon.com/Holikme-Attachme ... way&sr=8-4
Sjálfum finnst mér allt í lagi að rykmoppa og skúra en öll þrif sem tengist flísum,eldavél,sturtuklefa og klósetti not so much.
https://www.amazon.com/Holikme-Attachme ... way&sr=8-4
Sjálfum finnst mér allt í lagi að rykmoppa og skúra en öll þrif sem tengist flísum,eldavél,sturtuklefa og klósetti not so much.
Just do IT
√
√
-
- Nörd
- Póstar: 108
- Skráði sig: Mán 15. Des 2014 17:31
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Hjaltiatla skrifaði:Er mér einum að finnast góð hugmynd að versla bursta á skrúfuvél til að þurfa ekki að þjösnast við þrifin?
https://www.amazon.com/Holikme-Attachme ... way&sr=8-4
Sjálfum finnst mér allt í lagi að rykmoppa og skúra en öll þrif sem tengist flísum,eldavél,sturtuklefa og klósetti not so much.
Ég á svona skrúfvél sem ég hef notað og hún er mjög fín í suma hluti, t.d. er algjör snilld að taka felgur á bílnum með þessu.
Ég á iRobot 960 sem ég er búinn að eiga í 18 mánuði og nota nánast daglega. Ég hef ryksugað 2-3 síðan ég fékk hana. Ókosturinn er að heima hjá mér er 1 horn sem hún kemst illa í en ég hef bara þurrkað þar. Svo er hinn ókosturinn að rykið virðist setjast ofan á golflistana þannig í þessi skipti sem ég hef ryksugað þarf ég sérstaklega að ryksuga ofan á golflistunum. Þetta hefur samt sem áður sparað mér gríðarlega vinnu. Ég er með hund á heimilinu og því þarf ég að hreinsa vélina í svona annað hvert til þriðjahvert skipti.
En víst þú minnist á þessa bursta til að setja á borvélar þá fékk ég svona í gjöf
https://www.youtube.com/watch?v=HvFVWc4_a7k
Þetta er algjör snilld til að þrífa allsskonar og virkar betur en burstarnir til að þrífa allskonar.
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Er ekki hægt að nota þetta sem gufugæja líka til að ná krumpum úr fötum?JapaneseSlipper skrifaði:
En víst þú minnist á þessa bursta til að setja á borvélar þá fékk ég svona í gjöf
https://www.youtube.com/watch?v=HvFVWc4_a7k
Þetta er algjör snilld til að þrífa allsskonar og virkar betur en burstarnir til að þrífa allskonar.
-
- Nörd
- Póstar: 108
- Skráði sig: Mán 15. Des 2014 17:31
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Það á að vera hægt en ég hef samt ekki notað það sjálfur.
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Renmax er mesta drasl sem þú getur fengið! sóun á pening, myndi frekar kaupa Roomba... hún er mun dýrari en hún virkar að minnsta kosti og er ekki gerð úr klósettpappír og er ekki með lélega kortlagningu eins og Renmax!norex94 skrifaði:Sallarólegur skrifaði:29.145 krnorex94 skrifaði:Renmax er rebrand á kínverskum ryksugum. Það er betra að fara á aliexpress og kaupa bara eitthvað þar en að hafa millilið.svavaroe skrifaði:Ég keypti hjá RENMAX (https://www.renmax.is)
Muuun ódýrari græja en styður allt, og gott betur. Hún er frábær þessi elska.
btw, til hvers að borga 120þkr fyrir vélmenni ef þú getur fengið sambærilega á 45þkr (en sú er ekki með nafnið iRobot)
T.d ef þú googlar Renmax þá kemur aðeins upp heima síða Renmax.
https://www.aliexpress.com/i/32864583456.html
Nákvæmlega
Hérna líka: https://www.eufylife.com/uk/products/va ... 1/T2102221
Nákvæmlega eins nema heitir "eufy"
edit:
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Smá revive, núna hef ég verið að skoða eufy RoboVac 15C (35.000 kr), ILIFE V5s (40.000 kr) og Roborock S5 Max (90.000 kr) en ég er alveg blank. Hvaða vélar eru menn að nota, hvað er snilld og hvað er glatað?
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
chaplin skrifaði:Smá revive, núna hef ég verið að skoða eufy RoboVac 15C (35.000 kr), ILIFE V5s (40.000 kr) og Roborock S5 Max (90.000 kr) en ég er alveg blank. Hvaða vélar eru menn að nota, hvað er snilld og hvað er glatað?
Ég fékk mér þessa: https://www.mii.is/vara/mi-robot-vacuum-mop-essential/
Er frekar ánægður með robba minn, kalla hann robba útaf róbot = robbi.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2309
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
chaplin skrifaði:Smá revive, núna hef ég verið að skoða eufy RoboVac 15C (35.000 kr), ILIFE V5s (40.000 kr) og Roborock S5 Max (90.000 kr) en ég er alveg blank. Hvaða vélar eru menn að nota, hvað er snilld og hvað er glatað?
Held þú sjáir ekki eftir auka krónunum í Roborock. Við höfum átt S6 í 1.5 ár rúmlega og hún hefur ekkert klikkað. Hefur fengið nokkra nýja fídusa með firmware updates, m.a. "no mop zone", multi map support ef þú ert með 2-4 hæða íbúð ofl. LIDAR skanninn gerir svo mikið, kortleggur allt og keyrir 100% yfir allt og sýnir þér í appinu hvað er búið og hvernig síðasta umferð var. 110% meðmæli héðan.
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3737
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Ég er með IRobot i7 og hún er alveg skelfileg. Ratar ekki neitt og helvíti hávær.
Hefur bilað algjörlega einu sinni og öllu ryksugu apparatinu var skipt út. Burstarnir í henni eru úr einhverskonar gúmmíi og endast í 2 vikur án þess að rifna. Sé eftir því að hafa valið iRobot haldandi að það væri betra að vera með eitthvað "merki".
Hef smá reynslu af Roborock S5 og það er snilldar græja. Mikið lágværari og ratar vel.

- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Og þá vitum við það...
https://www.ruv.is/frett/2021/10/29/ryk ... n-ryksugur
https://www.ruv.is/frett/2021/10/29/ryk ... n-ryksugur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
GuðjónR skrifaði:Og þá vitum við það...
https://www.ruv.is/frett/2021/10/29/ryk ... n-ryksugur
Róbót sem bara sópar > ég sem nenni því aldrei
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Höfum alltaf vitað þetta. Hefurðu kíkt á búnaðinn inni í þessu?GuðjónR skrifaði:Og þá vitum við það...
https://www.ruv.is/frett/2021/10/29/ryk ... n-ryksugur
Þetta er klárlega sópur, ekki ryksuga
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 260
- Skráði sig: Mán 26. Nóv 2012 18:20
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Ég held að flestir sem hafa keypt sér svona ryksugu hafa vitað af þessu, segir sig sjálft að svona lítið tæki er ekki að fara koma alveg í stað ryksugu á flestum heimilum, en þetta getur létt heldur betur mikið á að taka dýrahár og mylsnur af gólfum, ég keypti eitthvað ryksugu og skúringar combo vélmenni frá MII á 30k sirka, þetta er allt annað líf, gólfið alltaf hreint. Eina sem ég þarf að gera er að taka allt dót af gólfinu og setja stólana upp á borð og þegar ég kem heim úr vinnunnni er gólfið hreintGuðjónR skrifaði:Og þá vitum við það...
https://www.ruv.is/frett/2021/10/29/ryk ... n-ryksugur
Fractal Design R4 White |Gigabyte B360M DS3H | i5 8600K | Corsair H100i v2 | 32GB DDR4| MSI GTX 1070 | 250GB SSD
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Ég er með Roborock S6 MaxV - hverrar krónu virði. Ég læt hana ryksuga nokkrum sinnum í viku, og skúra 1-2svar í viku.
Svínvirkar.
Svínvirkar.
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1288
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Hvernig hafa þær verið að taka á ef t.d. sokkar eru á gólfum eða ef stólar eru í uppað borðstofuborði aðeins öðruvísi uppraðað en þegar hún mappaði húsið?linked skrifaði:Ég er með Roborock S6 MaxV - hverrar krónu virði. Ég læt hana ryksuga nokkrum sinnum í viku, og skúra 1-2svar í viku.
Svínvirkar.
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Núna á ég bara heimska S5 en ekki S6 MaxV. Allar Roborock ryksugurnar díla bara vel við það ef uppröðun á húsgögnum breytist. Reyndar þegar ég hef gert eitthvað "fáránlegt" eins og að setja hana í gang með dýnur útum allt á gólfinu sem lætur hana halda að herbergið sé allt öðruvísi í laginu og ætla að senda hana í eitthvað zone/room cleanup þá getur hún haldið að hún sé í öðru herbergi en hún er. Það er aldrei vesen í full cleanup.Lexxinn skrifaði:Hvernig hafa þær verið að taka á ef t.d. sokkar eru á gólfum eða ef stólar eru í uppað borðstofuborði aðeins öðruvísi uppraðað en þegar hún mappaði húsið?linked skrifaði:Ég er með Roborock S6 MaxV - hverrar krónu virði. Ég læt hana ryksuga nokkrum sinnum í viku, og skúra 1-2svar í viku.
Svínvirkar.
Ef það eru sokkar eða slíkt á gólfinu þá borðar S5 það og lendir líklegast í veseni, stoppar og sendir villu. MaxV á að vera með "AI" myndavélakerfi til að fara framhjá sokkum og svoleiðis drasli en ég þekki ekki hversu vel það virkar.
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1288
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Var akkurat búinn að skoða S4, S5, S5max, S6 og S7 en ekki S6maxv - sýnist það vera eina vélin með þennan fítus. Var næstum dottinn á S4 á amazon.de á 350evrur. Þetta fær mig samt til að efast hvort ég fari í S6maxv eða hvað ég geri.dori skrifaði:Núna á ég bara heimska S5 en ekki S6 MaxV. Allar Roborock ryksugurnar díla bara vel við það ef uppröðun á húsgögnum breytist. Reyndar þegar ég hef gert eitthvað "fáránlegt" eins og að setja hana í gang með dýnur útum allt á gólfinu sem lætur hana halda að herbergið sé allt öðruvísi í laginu og ætla að senda hana í eitthvað zone/room cleanup þá getur hún haldið að hún sé í öðru herbergi en hún er. Það er aldrei vesen í full cleanup.Lexxinn skrifaði:Hvernig hafa þær verið að taka á ef t.d. sokkar eru á gólfum eða ef stólar eru í uppað borðstofuborði aðeins öðruvísi uppraðað en þegar hún mappaði húsið?linked skrifaði:Ég er með Roborock S6 MaxV - hverrar krónu virði. Ég læt hana ryksuga nokkrum sinnum í viku, og skúra 1-2svar í viku.
Svínvirkar.
Ef það eru sokkar eða slíkt á gólfinu þá borðar S5 það og lendir líklegast í veseni, stoppar og sendir villu. MaxV á að vera með "AI" myndavélakerfi til að fara framhjá sokkum og svoleiðis drasli en ég þekki ekki hversu vel það virkar.
-
- Gúrú
- Póstar: 556
- Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
- Staða: Ótengdur
Re: Kaup á ryksuguvélmenni
Ég keypti S6 Maxv í haust og er hæstánægður. Keypti frá Þýskalandi í gegnum ebay, hingað komin 85-90 þús kr.
Hef ekki séð eftir krónu, hún fer mjög vel yfir og skipulega, fer framhjá skóm, flestum snúrum, fötum á gólfinu osfrv. Merkir aðskotahluti í appið og maður getur kennt henni hvað hún á að hunsa.
Notum hana daglega, fer yfir allt að morgni en oft látum við hana ryksuga og moppa eldhús og forstofu seinni partinn.
Auðvitað gerir hún þetta ekki jafn vel og að vera með almennilega ryksugu en áður en við keyptum hana vorum við að ryksuga ofangreind svæði daglega en nú tökum við bara upp það helsta sem lendir á gólfinu og sendum svo ryksuguna í eldhúsið.