Rafræn skilríki og Kosningar

Allt utan efnis

Höfundur
mikkimás
Ofur-Nörd
Póstar: 278
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Staða: Ótengdur

Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af mikkimás »

Af hverju er ekki hægt að kjósa á netinu og nota rafræn skilríki sem auðkenningu?

Myndi það ekki auka kjörsókn?
Til sölu í augnablikinu: Sennheiser HD600 heyrnatól
Skjámynd

Revenant
vélbúnaðarpervert
Póstar: 992
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Revenant »

Eins og staðan er í dag eru rafrænar kosningar er ekki fullkomlega leynilegar sem er krafa skv. stjórnarskrá.
i7-2600K 3.4GHz @ 4.7GHz (103 MHz x 46) 1.416 V | ASUS P8P67 Pro | ASUS GeForce GTX1070 | Mushkin Blackline 8 GB CL9 1600MHz | Antec TruePower 750W | HAF X
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af GuðjónR »

Revenant skrifaði:Eins og staðan er í dag eru rafrænar kosningar er ekki fullkomlega leynilegar sem er krafa skv. stjórnarskrá.
Úreld stjórnarskrá, breyta þessu ákvæði og leyfa rafrænar kosningar.
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af rapport »

Eru þær þá ekki á pari við utankjörfundaatkvæði?

Það virðist vera hægt að finna og úrelda fyrra atkvæði þitt ef þú kýst aftur utan kjörfundar.
Skjámynd

brain
Geek
Póstar: 824
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af brain »

Þegar þú kýst utan kjörfundar ert þú einn í kjörklefa, þar með ertu búin að kjósa leynilega, atkvæði þitt er merkt með nafni í lokuðu umslagi, og ef þú kýst aftur, gildir bara það atkvæði.

Atkvæðin eru leynileg alla leið. ( og uppfylla þar með kröfuna.)

Kjósa einhvers staðar með rafrænum skilríkjum ætti auðvitað að vera hægt. En yrði þá að vera í kjörklefa til að uppfylla kröfuna.
Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3525
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af urban »

rapport skrifaði:
Revenant skrifaði:Eins og staðan er í dag eru rafrænar kosningar er ekki fullkomlega leynilegar sem er krafa skv. stjórnarskrá.
Eru þær þá ekki á pari við utankjörfundaatkvæði?

Það virðist vera hægt að finna og úrelda fyrra atkvæði þitt ef þú kýst aftur utan kjörfundar.
Þetta finnst mér alltaf jafn furðulegt.

Veit hvernig þetta er gert, finnst þetta samt alltaf jafn furðulegt.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af rapport »

brain skrifaði:Þegar þú kýst utan kjörfundar ert þú einn í kjörklefa, þar með ertu búin að kjósa leynilega, atkvæði þitt er merkt með nafni í lokuðu umslagi, og ef þú kýst aftur, gildir bara það atkvæði.

Atkvæðin eru leynileg alla leið. ( og uppfylla þar með kröfuna.)

Kjósa einhvers staðar með rafrænum skilríkjum ætti auðvitað að vera hægt. En yrði þá að vera í kjörklefa til að uppfylla kröfuna.
Skil þig, þetta snýst s.s. ekki um tæknilega útfærslu heldur aðstæðurnar sem kjósendur eru í þegar þeir kjósa.
Skjámynd

Revenant
vélbúnaðarpervert
Póstar: 992
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Revenant »

GuðjónR skrifaði:
Revenant skrifaði:Eins og staðan er í dag eru rafrænar kosningar er ekki fullkomlega leynilegar sem er krafa skv. stjórnarskrá.
Úreld stjórnarskrá, breyta þessu ákvæði og leyfa rafrænar kosningar.
En hvernig tryggiru leynd? Ef ég er yfirlýstur stuðningsmaður flokks X þá hef ég þann rétt að geta kosið flokk Y í kjörklefanum því leynd er tryggð.

Nýja stjórnarskráin setur nákvæmlega sömu kröfur um leynd kosninga.
Mannréttindasáttmáli Evrópu fjallar um rétt einstaklinga til leynilegra kosninga.

Eins og staðan er í dag er ekki hægt að tryggja leynd kosnina með þeirri tækni sem til.
Við verðum að setja þá kröfu að rafræn kosningalausn sé amk jafn góð og núverandi kerfi en þarf í raun að vera mun betri.
i7-2600K 3.4GHz @ 4.7GHz (103 MHz x 46) 1.416 V | ASUS P8P67 Pro | ASUS GeForce GTX1070 | Mushkin Blackline 8 GB CL9 1600MHz | Antec TruePower 750W | HAF X

Höfundur
mikkimás
Ofur-Nörd
Póstar: 278
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af mikkimás »

Ég er ekki að tala fyrir því að hætt verði með kjörklefana, bara að valkostum verði fjölgað.
Til sölu í augnablikinu: Sennheiser HD600 heyrnatól
Skjámynd

Graven
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 21. Nóv 2011 21:59
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Graven »

brain skrifaði:Þegar þú kýst utan kjörfundar ert þú einn í kjörklefa, þar með ertu búin að kjósa leynilega, atkvæði þitt er merkt með nafni í lokuðu umslagi, og ef þú kýst aftur, gildir bara það atkvæði.

Atkvæðin eru leynileg alla leið. ( og uppfylla þar með kröfuna.)

Kjósa einhvers staðar með rafrænum skilríkjum ætti auðvitað að vera hægt. En yrði þá að vera í kjörklefa til að uppfylla kröfuna.
"atkvæði merkt með nafni"

Einmitt, og það er rosalega leynilegt, enginn gæti nokkurn tímann, nokkurn veginn, tja, kannski lesið utan á umslagið og opnað það og séð hvað er merkt við. Nei, það er ómögulegt. Hefur aldrei gerst. Riiiiiiiiight.

Ástæðan fyrir því að stjórnvöld eru treg til þess að taka upp rafrænar kosningar með rafrænum skilríkjum er sú að það gerir þeim erfiðara fyrir að stunda kosningasvik, sem hefur verið og er stundað á Íslandi síðustu hundrað ár.
Have never lost an argument. Fact.
Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1104
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Njall_L »

Graven skrifaði:.....það gerir þeim erfiðara fyrir að stunda kosningasvik, sem hefur verið og er stundað á Íslandi síðustu hundrað ár.
Einhverjar heimildir fyrir þessum ásökunum?
Aðaltölva: Dell Latitude 7480 | i7-7600u | 32GB DDR4 | 1TB SSD | 14"IPS
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi

Dúlli
Vaktari
Póstar: 2097
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Dúlli »

Ekkert vit í þessum rökum hví rafrænt er ekki í boði.

Hví þarf þetta að vera svona leynilegt ? Ef ég vill sýna hvern ég kaus þá mun ég gera það.
Skjámynd

brain
Geek
Póstar: 824
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af brain »

Graven skrifaði:
brain skrifaði:Þegar þú kýst utan kjörfundar ert þú einn í kjörklefa, þar með ertu búin að kjósa leynilega, atkvæði þitt er merkt með nafni í lokuðu umslagi, og ef þú kýst aftur, gildir bara það atkvæði.

Atkvæðin eru leynileg alla leið. ( og uppfylla þar með kröfuna.)

Kjósa einhvers staðar með rafrænum skilríkjum ætti auðvitað að vera hægt. En yrði þá að vera í kjörklefa til að uppfylla kröfuna.
"atkvæði merkt með nafni"

Einmitt, og það er rosalega leynilegt, enginn gæti nokkurn tímann, nokkurn veginn, tja, kannski lesið utan á umslagið og opnað það og séð hvað er merkt við. Nei, það er ómögulegt. Hefur aldrei gerst. Riiiiiiiiight.

Ástæðan fyrir því að stjórnvöld eru treg til þess að taka upp rafrænar kosningar með rafrænum skilríkjum er sú að það gerir þeim erfiðara fyrir að stunda kosningasvik, sem hefur verið og er stundað á Íslandi síðustu hundrað ár.
Ef þú ætlar að opna umslagið þá þarftu að brjóta upp kjörkassa. Lendir all snarlega þá í vandræðum :p
Sá sem kýs utankjörstaðs setur nefninlega sitt atkvæði í innsiglaðan kjörkassa, eins og á kjörstað.

Ástæðan fyrir því að stjórnvöld eru treg til þess að taka upp rafrænar kosningar með rafrænum skilríkjum er sú að það gerir þeim erfiðara fyrir að stunda kosningasvik, sem hefur verið og er stundað á Íslandi síðustu hundrað ár

Þetta er ekki svaravert.
Last edited by brain on Lau 18. Sep 2021 15:05, edited 1 time in total.
Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1478
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af depill »

Dúlli skrifaði:Ekkert vit í þessum rökum hví rafrænt er ekki í boði.

Hví þarf þetta að vera svona leynilegt ? Ef ég vill sýna hvern ég kaus þá mun ég gera það.
Hvað ef flokkar byrja með 1000 kr afsláttur af bjór gegn því að sýna það að þú kaust Sjálfstæðisflokkinn?

Annars er Tom Scott með frábæra útskýringu á afhverju þetta er vond hugmynd https://www.youtube.com/watch?v=LkH2r-sNjQs.

Það er erfitt að gera stórkosningasvindl í núverandi kerfi, enn lítið mál að gera það í rafrænu kerfi og öryggismál hafa almennt ekki verið ofarlega á listanum hjá ríkinu sjá t.d. ( https://www.ruv.is/frett/2021/09/03/seg ... ingasvindl ). Ég hef sjálfur tilkynnt 3 mjög alvarlega galla hjá ríkinu og ríkisstofnum, sem whitehatting, það hefur tekið yfirleitt frekar langan tíma að loka og laga. Ekki það að einkafyrirtækin eru eh skárri, það var mjög alvarlegur galli í félagavef flestra stéttarfélaga í yfir 18 mánuði.

Dúlli
Vaktari
Póstar: 2097
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Dúlli »

depill skrifaði:

Hvað kemur í veg fyrir að þeir geri það ekki nú þegar ? getur verið í kjörklefa og tekið mynd af þínu atkvæði :-k
Skjámynd

brain
Geek
Póstar: 824
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af brain »

Dúlli skrifaði:

Auðvitað getur þú gert það, ert samt að brjóta lög.

Dúlli
Vaktari
Póstar: 2097
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Dúlli »

brain skrifaði:

Skil ekki þessa leynd, hví ekki að leyfa gegnsæinu.

En spái ekkert í þessu, hef alltaf sofið yfir allar kosningar og aldrei spáð í þessu af neinu viti.
Skjámynd

brain
Geek
Póstar: 824
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af brain »

Þér er kannski sama, þar sem þú notar ekki atkvæði þitt, en mér og fleirum er ekki sama..
Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2599
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af SolidFeather »

Dúlli skrifaði:
brain skrifaði:
Dúlli skrifaði:
depill skrifaði:
Dúlli skrifaði:Ekkert vit í þessum rökum hví rafrænt er ekki í boði.

Hví þarf þetta að vera svona leynilegt ? Ef ég vill sýna hvern ég kaus þá mun ég gera það.
Hvað ef flokkar byrja með 1000 kr afsláttur af bjór gegn því að sýna það að þú kaust Sjálfstæðisflokkinn?

Annars er Tom Scott með frábæra útskýringu á afhverju þetta er vond hugmynd https://www.youtube.com/watch?v=LkH2r-sNjQs.

Það er erfitt að gera stórkosningasvindl í núverandi kerfi, enn lítið mál að gera það í rafrænu kerfi og öryggismál hafa almennt ekki verið ofarlega á listanum hjá ríkinu sjá t.d. ( https://www.ruv.is/frett/2021/09/03/seg ... ingasvindl ). Ég hef sjálfur tilkynnt 3 mjög alvarlega galla hjá ríkinu og ríkisstofnum, sem whitehatting, það hefur tekið yfirleitt frekar langan tíma að loka og laga. Ekki það að einkafyrirtækin eru eh skárri, það var mjög alvarlegur galli í félagavef flestra stéttarfélaga í yfir 18 mánuði.
Hvað kemur í veg fyrir að þeir geri það ekki nú þegar ? getur verið í kjörklefa og tekið mynd af þínu atkvæði :-k

Auðvitað getur þú gert það, ert samt að brjóta lög.
Skil ekki þessa leynd, hví ekki að leyfa gegnsæinu.

En spái ekkert í þessu, hef alltaf sofið yfir allar kosningar og aldrei spáð í þessu af neinu viti.
Jú það er bara svo að sósíalistarnir geti ekki flett upp þeim sem kusu sjálfstæðisflokkinn og skellt tjöru og fjöðrum á þá. :guy
Skjámynd

Graven
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 21. Nóv 2011 21:59
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Graven »

SolidFeather skrifaði:

Í sumum löndum er fólk hreinlega tekið af lífi ef það kýs "rangt". Það er blautur draumur allra kommúnista (sósíalista). Þannig að kosningaleynd er nokkuð mikilvæg, hér sem annarsstaðar.
Have never lost an argument. Fact.
Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3525
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af urban »

Dúlli skrifaði:
Skil ekki þessa leynd, hví ekki að leyfa gegnsæinu.

En spái ekkert í þessu, hef alltaf sofið yfir allar kosningar og aldrei spáð í þessu af neinu viti.
Það er alveg augljóst að þú býrð ekki í bæjarfélagi þar sem að það skiptir máli hvað þú kýst.

Það er alveg nóg um það að fólk fái ekki vinnu útaf því að það er opinberlega í röngum flokki, það væri 10x verra ef að það væri opinbert hvaða flokk fólk kýs.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Dúlli
Vaktari
Póstar: 2097
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Dúlli »

urban skrifaði:

Bý nú á höfuðborgarsvæðinu.

Er bara að segja að þetta mætti vera valmöguleiki þá myndi ég kanski nenna að kjósa og örugglega fleiri í sömu sporum.
Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3525
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af urban »

Dúlli skrifaði:
Bý nú á höfuðborgarsvæðinu.

Er bara að segja að þetta mætti vera valmöguleiki þá myndi ég kanski nenna að kjósa og örugglega fleiri í sömu sporum.
Það er akkúrat málið, þú býrð á höfuðborgarsvæðinu.
Ég var bara að kommenta þetta á gegnsæjið, það að vera með gegnsæji yfir því hvað fólk kýs getur bara einfaldlega gert útaf við líf þeirra á minni stöðum úti á landi.

Fólk hefur flutt frá eyjum útaf því að það fær ekki vinnu við hæfi(jafnvel bara ekki)
Bara útaf því að það er ekki í réttum flokki eða jafnvel einhverjir tendum þeim eru í röngum flokki.

Veit fyrir víst að svona dæmi geta verið ENN verri annar staðar.

Þú sérð nú t.d. umræðuna hérna, hvernig er talað um þá sem að ætla að kjósa sjallana, ímyndaðu þér næst að í staðin fyrir einn og einn aðila, þá sé það hérumbil allt bæjarfélagið og allir þeir sem að hafa mannaforráð sem að myndu hugsa svona.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Dúlli
Vaktari
Póstar: 2097
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af Dúlli »

urban skrifaði:
Dúlli skrifaði:
Bý nú á höfuðborgarsvæðinu.

Er bara að segja að þetta mætti vera valmöguleiki þá myndi ég kanski nenna að kjósa og örugglega fleiri í sömu sporum.
Það er akkúrat málið, þú býrð á höfuðborgarsvæðinu.
Ég var bara að kommenta þetta á gegnsæjið, það að vera með gegnsæji yfir því hvað fólk kýs getur bara einfaldlega gert útaf við líf þeirra á minni stöðum úti á landi.

Fólk hefur flutt frá eyjum útaf því að það fær ekki vinnu við hæfi(jafnvel bara ekki)
Bara útaf því að það er ekki í réttum flokki eða jafnvel einhverjir tendum þeim eru í röngum flokki.

Veit fyrir víst að svona dæmi geta verið ENN verri annar staðar.

Þú sérð nú t.d. umræðuna hérna, hvernig er talað um þá sem að ætla að kjósa sjallana, ímyndaðu þér næst að í staðin fyrir einn og einn aðila, þá sé það hérumbil allt bæjarfélagið og allir þeir sem að hafa mannaforráð sem að myndu hugsa svona.
Skil þig mjög vel.

Finnst samt sem áður að það ætti að skoða leiðir til að hafa þetta rafrænt á öruggan hátt.

Þar maður getur í dag tekið nánast marg milljóna króna lán án þess að hitta starfsmann í banka ef þetta er nægilega öruggt fyrir avoleiðis hví þá ekki kosningu.
Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3567
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Staða: Ótengdur

Re: Rafræn skilríki og Kosningar

Póstur af dori »

Dúlli skrifaði:Finnst samt sem áður að það ætti að skoða leiðir til að hafa þetta rafrænt á öruggan hátt.

Þar maður getur í dag tekið nánast marg milljóna króna lán án þess að hitta starfsmann í banka ef þetta er nægilega öruggt fyrir avoleiðis hví þá ekki kosningu.
Það eru bara allt önnur sjónarmið í því að þú getir skrifað undir eitthvað rafrænt opinberlega og að útfæra rafrænar kosningar sem eru bæði leynilegar og öruggar.

Kosturinn við kosningar með pappírs kjörseðlum er að það er rosalega auðvelt að kenna einhverjum að fylgjast með talningu þannig að hann geti staðfest að það hafi ekki verið einhver monkey business. Útfærsla á kosningasvindli sem er nægilega umfangsmikið til að hreyfa við úrslitum er mjög erfið og krefst þess að hafa mikið af samstarfsmönnum (og þar af leiðandi miklir möguleikar á að það leki að eitthvað hafi verið gert) en á sama tíma tiltölulega auðvelt að spotta að eitthvað skrýtið hafi gerst ef eftirlitsmenn setja innsigli á kassa og fylgjast með þeim þegar þeir eru opnaðir og bera saman tölur.

Mér vitanlega hefur það aldrei verið gert en ég held að það séu alveg fræðilegar leiðir til að gera öruggar og leynilegar kosningar rafrænt með einhverjum undirritunum. En þá er ferlið allt í einu orðið mjög flókið, auðvelt að fokka upp öryggi eða því að kosningarnar séu leynilegar og erfitt að þjálfa upp eftirlitsmenn.

Ég vona að kosningar sem skipta máli verði aldrei rafrænar.
Svara