Kynjafræði - dæs
Kynjafræði - dæs
Í ákveðnum framhaldskóla er kynjafræði orðin að skyldufagi á öllum brautum.
Unglingurinn kemur heim og yfir kvöldmatnum segir hann að í kynjafræði læri þau að 9 af 10 körlum nauðgi konum.
Allt viðmót kennarans sem vill svo til að er kona er á þessa leið. Karlar eru óæðri konum.
Nokkuð augljóst að krakkarnir fá ekki mikla samúð með þessu fagi.

-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Er þetta ekki bara í Borgarholtsskóla eða er þinn í öðrum skóla?
Re: Kynjafræði - dæs
Rétt til getið, Borgarholtsskóli. Kennarinn heldur bekknum í heljargreipum virðist vera.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Borgarholtsskóli er að því er ég best veit eini skólinn sem hefur tekið þetta upp. Téður kennari hefur barist fyrir því ötullega undanfarin ár að gera þetta að skyldugrein.
Það sést reyndar á herferð hennar þessa dagana að þar fer ekki manneskja sem er sérstaklega vel til þess fallin að "fræða" unglinga. Innræta já, fræða nei.
Það er tvennt í stöðunni fyrir unglinginn, reyndar ekki í þínu tilfelli en fyrir komandi árganga.
1) Fylgjast ekki með í tímum og taka ekkert af því sem kennarinn segir alvarlega. Ná svo prófinu með lágmarks þáttöku.
2) Sleppa því að skrá sig í þetta námskeið eins lengi og mögulegt er og vona að skólinn hætti þessari vitleysu.

Já, ég sé að þetta er tiltölulega nýlega orðið að skyldufagi í skólanum.
Kynjafræði er án efa þarft fag sem slíkt en það var viðmót kennarans sem krakkarnir tóku eftir. Hún var virkilega stuðandi og sérstaklega í garð drengjanna. Hún virtist hreinlega hata þá.
Merkilegt annars að umfjöllunin á netinu er öll frekar jákvæð, sjá https://www.visir.is/g/20212110487d

- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Þessu tengt ... eða ekki...
- Viðhengi
-
- 6038C3E0-F080-40DA-8E58-B0ECE8EC274C.jpeg (254.98 KiB) Skoðað 2865 sinnum
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Þetta er klikkað. Er hlynntur að kynjafræði sé kennd en að ljúga að krökkunum og láta þeim líða illa með sjálf sig er algjört no no.
Ég hef alltaf frontað kennara sem mér finnst bullshita, gerði það reyndar einusinni svo harkalega að kennari bakkaði með reikniformúlu sem var svo á endanum rétt og ég baðst innilega og auðmjúklega afsökunar. (fyndin minning samt).
Það er alveg hægt að ná upp góðu rapport við kennara upp á gagnrýni og spurningar án þess að vera með dólg.
Spurning um hvort að þessi kennari sé ekki opinn fyrir slíku.
Svo önnur spurning - Fyrsti tíminn og smá misheyrn = gæti verð stormur í vatnsglasi + drengurinn óvanur að umgangast mikla karaktera.

- Nörd
- Póstar: 137
- Skráði sig: Fös 30. Ágú 2013 20:23
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Það hlýtur nú líka alveg að vera séns á einhverjum misskilning þarna. Hef heyrt þeim tölum kastað fram að 9 af hverjum 10 manneskjum sem er nauðgað eru konur.
En auðvitað að ef viðmót og framsetning kennarans á þessu námsefni er ekki í lagi, þá skal að sjálfsögðu bara láta vita af því til skólans.

No bullshit hljóðkall
Re: Kynjafræði - dæs
Ef eitthvað er unnið með því að stuða þá vinnur þessi kennari. Vonandi verður veturinn ekki allur svona, en boðskapurinn var enginn miskilningur skv. unglingnum.
Kennarinn er ansi herskár þessa dagana virðist vera, https://www.dv.is/frettir/2021/8/23/mer ... thad-rett/
og https://www.dv.is/frettir/2021/8/21/sve ... u-glaepum/

Last edited by vatr9 on Mán 23. Ágú 2021 21:20, edited 2 times in total.
Re: Kynjafræði - dæs
Slapp við að þurfa að taka þessa skylduáfanga. Veit ekki hvort Hanna, sú sem er á bakvið þetta og er gjarnan kölluð "Hanna feministi" af nemendum, sé í alvöru að segja að 90% karlmanna er nauðgarar, leyfi mér að efast það... En veit það svosem ekkert fyrir víst
Get þó sagt ykkur aðra sögu, enda var Hanna sögukennarinn minn. Einn daginn fengum við það verkefni að velja 3 hljómsveitir eða Solo artista frá hippatímabilinu og græja powerpoint kynningu um þær/þá. Man ekki nákvæmlega hvað minn hópur endaði á að velja samhliða Bítlunum en enginn kvenmaður var hluti af þessum grúbbum. Auðvitað segir Hanna þá að við hefðum átt að þekkja hana betur og að hún myndi draga okkur smá niður um einkunn fyrir að hafa ekki valið eina konu Þetta er svosem bara eitt dæmi sem sat soldið í mér því að hún leyfir sínum persónulegum skoðunum skila sér á okkar einkunn. Það var engin forkrafa um kynjakvóta fyrir þetta verkefni, þannig að það var bara verið að refsa okkur fyrir okkar tónlistarsmekk. Mér var svosem alveg drull um einkunina frekar en kennsluaðferðina. Skref í kolranga átt, sérstaklega hjá "kynjafræðing" sem ætti að vita betur.... Ekkert eina skiptið sem ég var ósammála Hönnu en þarna var mér nokkuð misboðið.
Kynjafræði er svosem alveg eitthvað sem að má ræða um, alls ekkert einfalt umræðuefni. Mér finnst Hanna þó frekar taka "my way or the highway" approachið og ég held að hún henti ekki sem kennari í þessu námsefni. Sögutíminn breyttist oft í kynjafræðiumræðu (Nemendur baituðu hana oft í það til að gera daginn styttri ) þannig að fékk alveg að kynnast því hvernig þessir tímar hafi gengið fyrir sig. Margir valid punktar sem að hún kom með en ég komst að því frekar fljótt að best væri bara að segja já, amen eða þegja bara þegar ég var ekki alveg sammála því sem var verið að segja. Sem sökkaði því venjulega hef ég gaman af pólítískri umræðu á milli jafningja, sérstaklega á þessum aldri

Takk fyrir þessa sögu Roggo.
Annars finnst mér merkilegt að skólinn álíti þetta fag svo nauðsynlegt að það er gert að skylduáfanga óháð því hvað er þú ert að læra.
Þannig hefur þessi kennari það í hendi sér að koma í veg fyrir að einhver geti lokið námi ef nemandinn er með uppsteit og vill ekki "fermast".
Hefðu einhver önnur fög komið sér betur sem skyldufög, manni dettur t.d. fjármálafræðsla í hug.

Last edited by vatr9 on Mán 23. Ágú 2021 22:13, edited 1 time in total.
Re: Kynjafræði - dæs
Þetta er einmitt áfanginn sem þurfti til að minnka brottfall stráka úr skóla.
Þetta munar öllu fyrir bifvélavirkjana að hafa tekið kynjafræðina þegar þeir eru að bilanagreina bílana.
Ekki má heldur gleyma þessum hræðilegu dagatölum upp um alla veggi á verkstæðunum.

Last edited by Tbot on Mán 23. Ágú 2021 23:13, edited 1 time in total.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1819
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Ertu viss um að barnið þitt sé að segja rétt frá? Tók það kanski ekki nógu vel eftir? Eða er það að misskilja?vatr9 skrifaði:Í ákveðnum framhaldskóla er kynjafræði orðin að skyldufagi á öllum brautum.
Unglingurinn kemur heim og yfir kvöldmatnum segir hann að í kynjafræði læri þau að 9 af 10 körlum nauðgi konum.
Allt viðmót kennarans sem vill svo til að er kona er á þessa leið. Karlar eru óæðri konum.
Nokkuð augljóst að krakkarnir fá ekki mikla samúð með þessu fagi.
90% af fólki sem er nauðgað eru konur, það þýðir ekki að 90% af nauðgurum séu karlmenn!
Um að gera að leiðrétta svona misskilning
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |
-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Upphaflega innleggið segir að sagt hafi verið að "9 af 10 körlum nauðgi konum" eða þá að 90% af karlmönnum nauðgi.einarhr skrifaði:Ertu viss um að barnið þitt sé að segja rétt frá? Tók það kanski ekki nógu vel eftir? Eða er það að misskilja?vatr9 skrifaði:Í ákveðnum framhaldskóla er kynjafræði orðin að skyldufagi á öllum brautum.
Unglingurinn kemur heim og yfir kvöldmatnum segir hann að í kynjafræði læri þau að 9 af 10 körlum nauðgi konum.
Allt viðmót kennarans sem vill svo til að er kona er á þessa leið. Karlar eru óæðri konum.
Nokkuð augljóst að krakkarnir fá ekki mikla samúð með þessu fagi.
90% af fólki sem er nauðgað eru konur, það þýðir ekki að 90% af nauðgurum séu karlmenn!
Um að gera að leiðrétta svona misskilning
Veit ekki hvort þetta er kannski bara gott dæmi um svona misskilning.
Til OP: Fáðu þessi orð staðfest, það ætti að vera frekar auðvelt að hrekja þessa staðhæfingu og þá frekar auðvelt að gjaldfella þann sem heldur slíku fram. (Sem fær mig til að halda að þessi orð hafi ekki verið sögð nákvæmlega svona og meiningin líklega ekki þessi).
Til annara sem hafa tjáð sig í þessum þræði: þið eruð dæmi um afhverju fleiri en bara nemendur í Borgó þurfa að komast í kynjafræði. Þeir taka það til sín sem vilja.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1819
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Nákvæmlega, var einmitt að meina að 90% af þolendum eru konur en að sjálfsögðu eru ekki 90% af öllum körlum sem nauðga. Smá fljótfærni og illa skrifað af mérDaz skrifaði:Upphaflega innleggið segir að sagt hafi verið að "9 af 10 körlum nauðgi konum" eða þá að 90% af karlmönnum nauðgi.einarhr skrifaði:Ertu viss um að barnið þitt sé að segja rétt frá? Tók það kanski ekki nógu vel eftir? Eða er það að misskilja?vatr9 skrifaði:Í ákveðnum framhaldskóla er kynjafræði orðin að skyldufagi á öllum brautum.
Unglingurinn kemur heim og yfir kvöldmatnum segir hann að í kynjafræði læri þau að 9 af 10 körlum nauðgi konum.
Allt viðmót kennarans sem vill svo til að er kona er á þessa leið. Karlar eru óæðri konum.
Nokkuð augljóst að krakkarnir fá ekki mikla samúð með þessu fagi.
90% af fólki sem er nauðgað eru konur, það þýðir ekki að 90% af nauðgurum séu karlmenn!
Um að gera að leiðrétta svona misskilning
Veit ekki hvort þetta er kannski bara gott dæmi um svona misskilning.
Til OP: Fáðu þessi orð staðfest, það ætti að vera frekar auðvelt að hrekja þessa staðhæfingu og þá frekar auðvelt að gjaldfella þann sem heldur slíku fram. (Sem fær mig til að halda að þessi orð hafi ekki verið sögð nákvæmlega svona og meiningin líklega ekki þessi).
Til annara sem hafa tjáð sig í þessum þræði: þið eruð dæmi um afhverju fleiri en bara nemendur í Borgó þurfa að komast í kynjafræði. Þeir taka það til sín sem vilja.
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Er kennarinn formaður hópsins „Öfgar“?vatr9 skrifaði:í kynjafræði læri þau að 9 af 10 körlum nauðgi
-
- Vaktari
- Póstar: 2260
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Ég var í Borgó fyrir 10 árum. Var sem betur fer búinn með stúdent en ég fékk að heyra nákvæmlega þetta frá þeim sem voru með mér í námi. Konan sem var að kenna kynjafræði hreinlega hataði strákana
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3737
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Muniði ekki eftir því þegar Lanmót Borgó þótti andfélagslegt og tölvuleikir væru þjálfa karla til þess að beita konur ofbeldi samanber GTA.
Aron og Hanna stóðu í þessu á sínum tíma. Good-times
https://timarit.is/page/3936507#page/n93/mode/2up

- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Hljómar eins og gefins einingar
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller

- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Jesús strákar eru þið að grínast í þessum þræði? Þið hljómið nákvæmlega eins og liðið á incel forums (já ég kíkti stundum á þá mér til skemmtunar).
Ég var í Borgó fyrir rúmum 10 árum og hún kenndi mér tvo áfanga og þetta voru án djóks einu bestu áfangar sem ég hef tekið, bæði einkunnarlega séð og skemmtilegir. Það að hún hati karlmenn og reyni að gera eins lítið úr þeim er eitt mesta bullshit sem ég hef lesið. Auðvitað gagnrýnir hún karlslæga hugsun og miða við umræðuna á þessum þræði er bara full ástæða til þess.
OP vertu ánægður að strákurinn þinn sé í þessum áfanga því ég er viss um það að hann mun vera mjög þakklátur fyrir þá í framtíðinni.

Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
Re: Kynjafræði - dæs
Hér er líklega ástæðan fyrir því að fáir karlar þora að tjá sig um þessi mál. Ef aðferðirnar eru gagnrýndar fá menn á sig einhvern Incel stimpil.ZiRiuS skrifaði:Jesús strákar eru þið að grínast í þessum þræði? Þið hljómið nákvæmlega eins og liðið á incel forums (já ég kíkti stundum á þá mér til skemmtunar).
Ég var í Borgó fyrir rúmum 10 árum og hún kenndi mér tvo áfanga og þetta voru án djóks einu bestu áfangar sem ég hef tekið, bæði einkunnarlega séð og skemmtilegir. Það að hún hati karlmenn og reyni að gera eins lítið úr þeim er eitt mesta bullshit sem ég hef lesið. Auðvitað gagnrýnir hún karlslæga hugsun og miða við umræðuna á þessum þræði er bara full ástæða til þess.
OP vertu ánægður að strákurinn þinn sé í þessum áfanga því ég er viss um það að hann mun vera mjög þakklátur fyrir þá í framtíðinni.
Ég lýsti upplifun nemanda í fyrsta tíma og því miður var hún öll á neikvæðum nótum. Það er gleðilegt að þú upplifðir þetta á jákvæðari hátt og ég vona að það verði líka á endanum hjá mínum unglingi.
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Kennarinn ber ekki einn ábyrgð á upplifun nemenda, þeir verða að leggja sig fram og a.m.k. hlusta og spyrja. Þetta að 9 af 10 karlmönnum séu nauðgarar er t.d. annað hvort skelfilega rangt heyrt eða skelfilega rangt sett fram.vatr9 skrifaði:Hér er líklega ástæðan fyrir því að fáir karlar þora að tjá sig um þessi mál. Ef aðferðirnar eru gagnrýndar fá menn á sig einhvern Incel stimpil.ZiRiuS skrifaði:Jesús strákar eru þið að grínast í þessum þræði? Þið hljómið nákvæmlega eins og liðið á incel forums (já ég kíkti stundum á þá mér til skemmtunar).
Ég var í Borgó fyrir rúmum 10 árum og hún kenndi mér tvo áfanga og þetta voru án djóks einu bestu áfangar sem ég hef tekið, bæði einkunnarlega séð og skemmtilegir. Það að hún hati karlmenn og reyni að gera eins lítið úr þeim er eitt mesta bullshit sem ég hef lesið. Auðvitað gagnrýnir hún karlslæga hugsun og miða við umræðuna á þessum þræði er bara full ástæða til þess.
OP vertu ánægður að strákurinn þinn sé í þessum áfanga því ég er viss um það að hann mun vera mjög þakklátur fyrir þá í framtíðinni.
Ég lýsti upplifun nemanda í fyrsta tíma og því miður var hún öll á neikvæðum nótum. Það er gleðilegt að þú upplifðir þetta á jákvæðari hátt og ég vona að það verði líka á endanum hjá mínum unglingi.
Ég á eina í menntó með greiningu og ef kennarar taka ekki tillit þá fer hún úr tíma, til námsráðgjafa, fær að ljósrita greininguna sína og fer með til kennarans. Algjör trunta, eins og pabbi sinn
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Kynjafræði - dæs
Ekki hef ég orðið var við skort á körlum að tjá sig um þessi málvatr9 skrifaði:Hér er líklega ástæðan fyrir því að fáir karlar þora að tjá sig um þessi mál.