Eldgosið í Fagradalsfjalli
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Eldgosið ákvað að snúa á mig og hætti um klukkan 03:00 í nótt aftur.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Ég hef sjaldan séð jafn mikinn bjarma frá gosinu og í gærkvöldi.jonfr1900 skrifaði:Eldgosið ákvað að snúa á mig og hætti um klukkan 03:00 í nótt aftur.
Tók þessa mynd klukkan 01:19 í nótt frá Kjalarnesi.
Allar sögur af andláti gossins eru stórlega ýktar svo ekki sé meira sagt.
- Viðhengi
-
- 41C47C63-7EF4-4D06-BFFD-FE62321F170A.jpeg (708.2 KiB) Skoðað 2908 sinnum
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Varstu að dusta rykið af fyrsta myndavélasímanum þínum þegar þú tókst þessa mynd?GuðjónR skrifaði:
Allar sögur af andláti gossins eru stórlega ýktar svo ekki sé meira sagt.
Vekur upp gamlar minningar um frábær myndgæði
- Viðhengi
-
- sony_ericsson_t68i.gif (29.85 KiB) Skoðað 2870 sinnum
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Í öðrum fréttum er það að eitthvað er byrjað í Kötlu en ég veit ekki hvort að þetta sé hefðbundin sumarvirkni eða hvort að þetta sé eitthvað annað. Jarðskjálftavirknin minnir á það sem hefur komið af litlum eldgosum í Kötlu á síðustu árum.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Hún má bara halda áfram að sofa.jonfr1900 skrifaði:Í öðrum fréttum er það að eitthvað er byrjað í Kötlu en ég veit ekki hvort að þetta sé hefðbundin sumarvirkni eða hvort að þetta sé eitthvað annað. Jarðskjálftavirknin minnir á það sem hefur komið af litlum eldgosum í Kötlu á síðustu árum.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
iPhone 12 Pro Maxmjolkurdreytill skrifaði:Varstu að dusta rykið af fyrsta myndavélasímanum þínum þegar þú tókst þessa mynd?GuðjónR skrifaði:
Allar sögur af andláti gossins eru stórlega ýktar svo ekki sé meira sagt.
Vekur upp gamlar minningar um frábær myndgæði
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Núna er eldgosið í Fagradalsfjalli komið í þann fasa að gjósa bara og gjósa og ekkert stopp eins og hefur verið síðustu vikur. Hraunið þessa stundina rennur aðalega niður í Meradali á yfirborðinu en það virðist vera flæði neðanjarðar í syðri-Meradali sem er fyrir ofan Nátthaga. Hraunið þar mun hlaðast upp þangað til að það fer allt niður í Nátthaga.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Og menn héldu að þetta væru búiðjonfr1900 skrifaði:Núna er eldgosið í Fagradalsfjalli komið í þann fasa að gjósa bara og gjósa og ekkert stopp eins og hefur verið síðustu vikur. Hraunið þessa stundina rennur aðalega niður í Meradali á yfirborðinu en það virðist vera flæði neðanjarðar í syðri-Meradali sem er fyrir ofan Nátthaga. Hraunið þar mun hlaðast upp þangað til að það fer allt niður í Nátthaga.
2021-08-06 (27).png
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Þetta eldgos hefur ekki farið eftir því sem eldfjöll á Íslandi hafa verið að gera síðustu 100 árin. Þegar jarðvísindin hófust á Íslandi fyrir alvöru. Síðan grunar mig núna að það sem er að færa þessu eldgosi kviku er kerfi kvikuhólfa sem er undir eldstöðvum á Reykjasskaga og Reykjaneshrygg. Mig grunar að núna sé farið að flæða úr kvikuhólfi sem er mjög neðarlega í þessari rás sem virðist vera þarna í möttlinum (væntanlega í efstu 100 til 200 km).
Síðan er það spurning hvort að nýir gígar fari aftur að opnast. Svona eldgos eiga það til að búa til nýja gíga án fyrirvara og þá stundum á stöðum sem eru samhliða þeim gíg sem gýs.
Það virðast samt allir búast við því að eldgosið haldi fyrri hegðun uppi en ég sé ekki nein merki þess núna að það muni gerast. Ég get auðvitað haft rangt fyrir mér.

- Of mikill frítími
- Póstar: 1722
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Mér hefur þótt hrikalega fyndið og hallærislegt af þessum vísindamönnum, sem ég veit ekki hvað eru búnir að segja oft að þessu gosi sé lokið.
Þetta gos byrjaði án þess að sjást á nokkrum mælum, afhverju er þá nokkuð að marka þessa mæla núna?
Að telja/halda að maður viti allt um jörðina sýnir bara þröngsýni og heimsku.
Þetta gos byrjaði án þess að sjást á nokkrum mælum, afhverju er þá nokkuð að marka þessa mæla núna?
Að telja/halda að maður viti allt um jörðina sýnir bara þröngsýni og heimsku.
Last edited by Moldvarpan on Lau 07. Ágú 2021 07:28, edited 1 time in total.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Flestir þeirra hafa í raun aldrei sagt að því sé lokið. Þeir hafa hinsvegar talað um að það gæti verið á lokametrunum. Þessi fræði eru svolítið að að vega og meta þessi gögn, velta hlutunum upp. Þeir passa sig flestir að koma með afdráttarlaus svör um upphaf og enda gosa, að fenginni reynslu.Moldvarpan skrifaði:Mér hefur þótt hrikalega fyndið og hallærislegt af þessum vísindamönnum, sem ég veit ekki hvað eru búnir að segja oft að þessu gosi sé lokið.
Þetta gos byrjaði án þess að sjást á nokkrum mælum, afhverju er þá nokkuð að marka þessa mæla núna?
Að telja/halda að maður viti allt um jörðina sýnir bara þröngsýni og heimsku.
Að segja að gosið hafi byrjað án þess að nokkuð hafi sést á mælum, er í raun rétt en samt ekki rétt. Kristín Jónsdóttir hjá veðurstofunni nefndi það nokkrum dögum fyrir gos eftir að jarðskjálftarnir hættu, að það eitt gæti líka verið fyrirboði goss, rétt eins og í Kröflueldum, þar sem öll spennan var farinn og í raun jarðlögin mjög mjúk fyrir kvikuna að, hita sig upp hægt og rólega upp yfirborðið, þar sem skorpan er orðin svo margbrotin eftir alla þessa jarðskjálfta. Þá er í raun engin gosórói sem á sér stað.
Enginn hefur haldið því fram að vita allt um jörðina og jarðfræðina, sérstaklega þegar kemur að goskerfum sem við höfum ekki sé gjósa í hundruði ára.
Ég held einmit að jarðfærðingar sé að læra heilmikið um þetta gos, það er að kenna okkur margt. Enda hefur svona gos ekki átt sé stað lengi. Kannski jú Surtsey að einhverju leyti svipuð.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1722
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Jújú, þessir vísindamenn hafa verið með ýmsar fullyrðingar um þetta. Meira segja hérna á vaktinni.
Er goshlé? 28.6.2021
Gosóróinn hefur tekið sig upp aftur 29.6.2021
Ekkert rauðglóandi hraun – gosið mögulega búið 2.7.2021
„Það er líf!“ 3.7.2021
Lengsta goshlé frá upphafi 7.7.2021
„Þessu gosi er ekki lokið“ 8.7.2021
„Gosið er á blússandi siglingu“ 13.7.2021
Gosið tók sér „kríu“ í dag 18.7.2021
Mögulega farið að síga á seinni hlutann 22.7.2021
Sjaldan jafnmikill kraftur í gosinu 29.7.2021
Gosið mögulega að fara á nýtt stig 6.8.2021
Það er eins og það hafi verið keppni á að reyna vera fyrstur til þess að lýsa þessu gosi lokið.
Það var ljóst frá byrjun að þetta gos yrði óvenjulegt, en samt eru menn að þráast við að reyna vita hvað er í gangi.
Það veit það enginn. Þetta mun bara koma í ljós. Við erum með tvö augu og tvö eyru, við ættum að hlusta tvöfalt meira á umhverfið en við gjömmum og þykjumst vita allt.

Já það er rétt, þarna eru fjölmiðlar að keppast við, þeir sækja fréttirnar. Það eru engir vísindamenn að keppast við að segja því sé lokið. Menn eru ekki að þráast við hvað sé í gangi, menn eru að greina hlutina og gosið kemur þeim á óvart, og í vísindasamfélaginu hafa menn mismunandi kenningar, það er hollt fyrir alla. Það var ekki endilega ljóst frá byrjun að gosið yrði óvenjulegt, menn bjuggust við að það myndi byrja mikið og svo fjara hægt og rólega út, eins og flest gos haga sér.Moldvarpan skrifaði:Jújú, þessir vísindamenn hafa verið með ýmsar fullyrðingar um þetta. Meira segja hérna á vaktinni.
Er goshlé? 28.6.2021
Gosóróinn hefur tekið sig upp aftur 29.6.2021
Ekkert rauðglóandi hraun – gosið mögulega búið 2.7.2021
„Það er líf!“ 3.7.2021
Lengsta goshlé frá upphafi 7.7.2021
„Þessu gosi er ekki lokið“ 8.7.2021
„Gosið er á blússandi siglingu“ 13.7.2021
Gosið tók sér „kríu“ í dag 18.7.2021
Mögulega farið að síga á seinni hlutann 22.7.2021
Sjaldan jafnmikill kraftur í gosinu 29.7.2021
Gosið mögulega að fara á nýtt stig 6.8.2021
Það er eins og það hafi verið keppni á að reyna vera fyrstur til þess að lýsa þessu gosi lokið.
Það var ljóst frá byrjun að þetta gos yrði óvenjulegt, en samt eru menn að þráast við að reyna vita hvað er í gangi.
Það veit það enginn. Þetta mun bara koma í ljós. Við erum með tvö augu og tvö eyru, við ættum að hlusta tvöfalt meira á umhverfið en við gjömmum og þykjumst vita allt.
Mér finnst að þú sért kannski að pirra þig á umfjöllunni um gosið í fjölmiðlum. Það er það sem er skondið, hvern dag koma svona fyrirsagnir um hverja einustu breytingu á gosinu, það verður hvimleitt. Það eru ekki vísindamenn sem eru ólmir hringja í fréttamiðlana.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1722
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Fyndið hvað þú segir að þetta sé rétt, en samt byrjaru að reyna tæta þetta í sundur.
Gott sem allar þessar fréttir sem ég benti á, eru með tilvitnanir eða viðtöl við vísindamenn.
Það veit enginn hvað þetta eldgos mun gera, svo allar þessar "greiningar" eru algjörlega tilgangslausar.
En það er greinilega enginn skortur á "sérfræðingum" þegar það kemur að gosinu.
Ég er ekki að pirra mig á þessu, eins og ég sagði, fyndið og hallærislegt, hvernig þessir "sérfræðingar", vísindamenn og fjölmiðlar, keppast um að koma hverri vitleysunni á fætur annari á framfæri.
Þú mátt vera ósammála mér, gæti ekki verið meira sama.
Gott sem allar þessar fréttir sem ég benti á, eru með tilvitnanir eða viðtöl við vísindamenn.
Það veit enginn hvað þetta eldgos mun gera, svo allar þessar "greiningar" eru algjörlega tilgangslausar.
En það er greinilega enginn skortur á "sérfræðingum" þegar það kemur að gosinu.
Ég er ekki að pirra mig á þessu, eins og ég sagði, fyndið og hallærislegt, hvernig þessir "sérfræðingar", vísindamenn og fjölmiðlar, keppast um að koma hverri vitleysunni á fætur annari á framfæri.
Þú mátt vera ósammála mér, gæti ekki verið meira sama.
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Eldgosið hætti í morgun um klukkan 08:00 eftir að hafa gosið í rúmlega tvo og hálfan dag. Þetta er mjög áhugavert en ég veit ekki afhverju þetta er að gerast. Eldgosið hætti mjög snögglega í morgun.
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Ég veit ekki hversu djúpur sjórinn er þarna en þetta er áhugavert. Þetta á að vera að gerast vestur af Krísuvíkurbergi sem ég veit ekki hvar er. Síðan væri gott að ef fólk sér svona að taka mynd af fyrirbærinu. Það einfaldar alla hluti.
Barst tilkynning um bólstra yfir hafinu (mbl.is)
Barst tilkynning um bólstra yfir hafinu (mbl.is)
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Verð að viðurkenna að það er lítil hræðslurödd í heilabúinu sem er að spyrja hvort það sé ekki kominn tími til að flytja eins langt burt og hægt er frá þessum eldgosabeltum.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Hvað sem þú gerir, ekki flytja upp á Kjalarnes.ekkert skrifaði:Verð að viðurkenna að það er lítil hræðslurödd í heilabúinu sem er að spyrja hvort það sé ekki kominn tími til að flytja eins langt burt og hægt er frá þessum eldgosabeltum.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Held að þetta hafi bara verið gabb.jonfr1900 skrifaði:Ég veit ekki hversu djúpur sjórinn er þarna en þetta er áhugavert. Þetta á að vera að gerast vestur af Krísuvíkurbergi sem ég veit ekki hvar er. Síðan væri gott að ef fólk sér svona að taka mynd af fyrirbærinu. Það einfaldar alla hluti.
Barst tilkynning um bólstra yfir hafinu (mbl.is)
Til sölu í augnablikinu: Sennheiser HD600 heyrnatól
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Þegar gasið frá Íslandi kemur til Danmerkur (eða meginlands Evrópu) þá ætti það að vera orðið nógu þunnt til þess að sleppa því að drepa mann.ekkert skrifaði:Verð að viðurkenna að það er lítil hræðslurödd í heilabúinu sem er að spyrja hvort það sé ekki kominn tími til að flytja eins langt burt og hægt er frá þessum eldgosabeltum.
Ísland situr á þessu og þetta er allt saman kvika.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Helvítis brölt að fara þarna upp í gær miðað við í vor, þetta var 12km ganga fram og tilbaka og miklu miklu brattara. Skemmtilegt samt að sjá hvað hraunið hefur farið langa leið.
34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Það mætti alveg gjósa nógu mikið þannig að ferðamenn kæmust ekki nær eldgosinu. Þar sem mikið af þeim eru þarna bara til þess að trufla myndavél Rúv og það er rosalega pirrandi.
-
Höfundur - FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Þá er næsti kafli hafinn í eldgosum á Reykjanesi og Reykjaneshrygg sýnist mér. Það eru hafnar að mér sýnist kröftugar jarðskjálftarhrynur ekkert svo langt frá landi þessa stundina.
Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli
Er þetta ekki fulldramatískt? Þetta er lengst út á hafi og fáir bátar fara þarna daglega um... Ef það kæmi gos þarna þá er mjög ólíklegt að það nái alla leið upp á yfirborði og verði með öllu ósýnilegt bæði á mælum og mannsaugajonfr1900 skrifaði:Þá er næsti kafli hafinn í eldgosum á Reykjanesi og Reykjaneshrygg sýnist mér. Það eru hafnar að mér sýnist kröftugar jarðskjálftarhrynur ekkert svo langt frá landi þessa stundina.