Home Assistant
-
Höfundur - spjallið.is
- Póstar: 441
- Skráði sig: Sun 05. Sep 2010 17:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Home Assistant
Skv Home Assistant Analytics er amk 74 að nota HA á Íslandi
Forvitinn að vita hvort það sé ekki hægt að starta umræðu
Er einhver að nýta t.d. apis.is fyrir upplýsingar ?
Komið endilega með skjáskot/montmyndir af skjáborðinu ! Sárvantar innblástur
Re: Home Assistant
Ég er á kafi í þessu, skal reyna að skella einhverjum skjámyndum inn fljótlega, ef einhver þarf inspó
Re: Home Assistant
Ég er að nota HA líka. er samt ekki með neitt eitthvað svakalega flott . keyri mest bara á automations og stýri ljósum þannig með hreyfiskynjurum og þessháttar. er ekki búin að setja upp nein flott dashboard eða þannig nema fyrir bílinn , opna browser í bílnum og aflæsi hurðini og kveiki þau ljós sem ég vill og svona áður en ég fer inn
Re: Home Assistant
Nú spyr sá sem ekki veit.
Hver er helsi munurinn á að nota þetta vs Apple HomeKit?
Eru fleiri möguleikar eða snýst þetta aðallega um að þú getur hýst sjálfur og þal haft meiri stjórn?
Hver er helsi munurinn á að nota þetta vs Apple HomeKit?
Eru fleiri möguleikar eða snýst þetta aðallega um að þú getur hýst sjálfur og þal haft meiri stjórn?
Re: Home Assistant
Töluvert sveigjanlegra og bíður uppá að tengjast mikið fleiri tækjum og þjónustunessinn skrifaði:Nú spyr sá sem ekki veit.
Hver er helsi munurinn á að nota þetta vs Apple HomeKit?
Eru fleiri möguleikar eða snýst þetta aðallega um að þú getur hýst sjálfur og þal haft meiri stjórn?
Re: Home Assistant
Miklu meiri möguleikar í Home Assistant. Það er til integration fyrir allt á milli himins og jarðar, en það er alls ekki svo með Homekit skilst mér, en annars þekki ég Homekit nú ekki mikið. Svo auðvitað það líka, þ.e að hýsa locally og hafa meiri stjórn á öllu.
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 632
- Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
- Staðsetning: Terran Empire
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Þú í raun hýsir homekit alltaf sjálfur. Það að vera með homekit-hub (homepod, appletv, ipad sem fer ekki út húsi) gefur þér möguleikan á að stýra þessu remote líka.nessinn skrifaði:Nú spyr sá sem ekki veit.
Hver er helsi munurinn á að nota þetta vs Apple HomeKit?
Eru fleiri möguleikar eða snýst þetta aðallega um að þú getur hýst sjálfur og þal haft meiri stjórn?
En til að útskýra í léttu máli munin og þá á ég við persónulega reynslu. HA er öflugra tól og gefur þér ítarlegri stjórn. Það þarf samt ekki endilega að vera betra, fer eftir því hverju þú ert að sækjast eftir.
Fyrir mér þá lýt ég á HA sem tól til að fá betri upplýsingar um stöðuna á heimilinu og aftur í tíman, einnig er gott að nota til upplýsingamiðlunar allskonar um aðra hluti sem þú villt fá. Mjög gott að hafa allt svona á einum skjá. Þægindi við að stýra eru fín en gætu verið betri að mínu mati.
Ef þú ert í homekit þá er ekkert vitlaust að hafa HA með, þú velur þá í HA hvað þú vilt fá upp í homekit og trúðu mér þú villt ekki fá allt yfir, sumt á bara ekki heima þar, kosturinn hér er að með því að brúa tæki yfir sem ekki hafa hoemkit-support. Svo er hægt að hafa HA keyrandi til upplýsinga og að stýra öðrum þáttum sem þurfa ekki athygli.
Til er samt frekar fínt tól sem hagar sér líkt og HA en er gert með homekit í huga, það heitir Homebridge og er mjög þægilegt í umsýslu. HA gefur þér samt dýpri stjórn þó að Homebridge fer mjög nálægt oft.
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Ég er aðeins byrjaður að fikta í HA. Hvaða svona nýliði friendly guide myndu þið mæla með til að byrja?
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
-
Höfundur - spjallið.is
- Póstar: 441
- Skráði sig: Sun 05. Sep 2010 17:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Hvað ertu kominn langt og hvernig viltu nýta HA?ZiRiuS skrifaði:Ég er aðeins byrjaður að fikta í HA. Hvaða svona nýliði friendly guide myndu þið mæla með til að byrja?
Mér fannst JuanMTech frábær þegar ég byrjaði. Þægileg vídeós
Fjarsjóðskista af hugmyndum frá 'TheHookUp'
Mæli með að setja upp NodeRED fyrir automations. Tók smá tíma að læra en algjörlega þess virði
https://www.youtube.com/watch?v=hBEb_FCLRU8
Redditið er einnig skemmtilegt fyrir innblástur af hugmyndum. Yfirleitt sé ég eina og eina hugmynd sem ég implementa hjá mér
https://www.reddit.com/r/homeassistant/
-
Höfundur - spjallið.is
- Póstar: 441
- Skráði sig: Sun 05. Sep 2010 17:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Work in progress en svona lookar mitt
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2309
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Er búinn að vera fikta með þetta í rúmt ár og er með spjaldtölvu veggfesta í stofunni sem sýnir þennan skjá.
Þetta er voðalega mikið dund, eins og t.d. með veðurspánna. Það eru til nokkrar útfærslur af veðurspám sem eru mis flottar, er núna að prufa iframe frá veðurstofunni en ég þyrfti helst að breyta theme'inu svo þetta stingi ekki jafn mikið í augun
Er svo með Shelly relay á bakvið ljósrofana sem tengjast líka HA, fannst algjörlega nauðsynlegt að geta notað veggrofana á ljósin ef ég ætlaði að snjallvæða þau + betra samþykki frá kærustunni. Hinsvegar finnst mér svo ömurlegt að stjórna ljósum með snertiskjá svo að EINA ljósið sem er aðgengilegt á spjaldtölvunni er snjall innstunga sem kveikir á lampa
Svo er HA tengt við Apple Homekit svo að ljósin og birtast í Home'inu þar, get t.d. slökkt/kveikt öll ljósin í gegnum AppleTV sem er mjög þægilegt.
Nota einnig AdGuard.
Læta HA stjórna nokkrum automations:

- Ef enginn er heima og útidyrahurðin er opnuð EÐA ef ég/kæró erum ekki heima en komum svo heim þá kviknar ljósið í forstunni. Mjög þægilegt þegar maður kemur heim með fullar hendur.
- Sitthvort ljósið undir hvorri hlið rúmsins + hreyfiskynjari, svo þegar maður fer á fætur á næturna þá kviknar ljós undir rúminu þeim megin sem stigið er niður. Mjög þægilegt með ungabarn sem þarf athygli á næturna.
- Ef við förum bæði út og gluggar eru opnir þá fær sá sem er síðastur út notification um það.
- Ef rakastig einhverstaðar fer yfir eitthvað ákveðið þá kemur priority notification (vatnsleki?).
- Ef hitastig fer undir ákveðið einhversstaðar þá kemur priority notification (brotin rúða?).
- Ef það er hreyfing innandyra þegar hvorki ég né kæró erum heima þá kemur priority notification.
Last edited by GullMoli on Mið 02. Jún 2021 15:49, edited 6 times in total.
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
-
Höfundur - spjallið.is
- Póstar: 441
- Skráði sig: Sun 05. Sep 2010 17:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Ég er að vinna svolítið með Windy embedded sem webpage. Skemmtilega myndrænt og litríkt (hreyfimynd, ekki static)Þetta er voðalega mikið dund, eins og t.d. með veðurspánna. Það eru til nokkrar útfærslur af veðurspám sem eru mis flottar, er núna að prufa iframe frá veðurstofunni en ég þyrfti helst að breyta theme'inu svo þetta stingi ekki jafn mikið í augun
https://www.windy.com/-Embed-widget-on- ... ,-21.808,5
Last edited by Zethic on Mið 02. Jún 2021 13:33, edited 2 times in total.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2309
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Zethic skrifaði:Ég er að vinna svolítið með Windy embedded sem webpage. Skemmtilega myndrænt og litríkt (hreyfimynd, ekki static)Þetta er voðalega mikið dund, eins og t.d. með veðurspánna. Það eru til nokkrar útfærslur af veðurspám sem eru mis flottar, er núna að prufa iframe frá veðurstofunni en ég þyrfti helst að breyta theme'inu svo þetta stingi ekki jafn mikið í augun
https://www.windy.com/-Embed-widget-on- ... ,-21.808,5
windy.PNG
Hm sniðugt! Ég var á tímabili einmitt með einfalt windy iFrame en vedur.is iFrame'ið er svo svakalega plássfrekt að það þurfti að víkja. Mörg veður components í boði sem eru snyrtilegri, ætli ég skipti ekki yfir í eitt af þeim nema skipti vindstigunum úr km í m/s.
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
Re: Home Assistant
Við hjá Bliku bjóðum líka upp á iframe sem taka minna pláss en vedur.is iframið. Ég hugsa það gæti hentað ágætlega í svona dashboard.
https://blika.is/iframe
https://blika.is/iframe
-
Höfundur - spjallið.is
- Póstar: 441
- Skráði sig: Sun 05. Sep 2010 17:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Glæsilegt ! Prufa þettasveinng skrifaði:Við hjá Bliku bjóðum líka upp á iframe sem taka minna pláss en vedur.is iframið. Ég hugsa það gæti hentað ágætlega í svona dashboard.
https://blika.is/iframe
Er einhver að nota Shelly 2.5 á bakvið ljósarofa ? Er að díla við sambandsleysi sem virðist vera ofhitnun á shelly stykkinu þegar bæði ljósin eru í gangi
Er með vírað ca. svona
Re: Home Assistant
Hvar hafiði verið að kaupa shelly og hvaða hurða/gluggarofa eruði að nota?
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Hvaða hita og rakaskynjara eru þið að nota fyrir herbergi?
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
Re: Home Assistant
Hérna er mitt setup. Er með tvær spjaldtölvur uppá vegg, eina á hvorri hæð.
Amazon Fire HD 8
Heimatilbúin "screensaver" skjámynd sem kemur upp eftir 5 mín idle tíma
Amazon Fire HD 10
Heimatilbúin "screensaver" skjámynd sem kemur upp eftir 5 mín idle tíma
Svo er ég með nokkur mismunandi view, hér eru þau sem eru mest notuð af familíunni:
Þetta er aðalskjámyndin: Hérna er dedicated view fyrir eldhúsið: Annað fyrir stofuna: Hér er view fyrir heimabíóið: Loks er hér view til að stýra öllu sem viðkemur heita pottinum: Dashboardin eru svo í raun bara hluti af þessu, er líka með fullt af automations til að gera hitt og þetta. T.d kveikja/slökkva öll útiljós m.v. við sólarupprás/sólsetur. Ef hreyfing er útí bílskúr þá kvikna ljósin þar. Ef hreyfing er skynjuð fyrir framan hús þá sendist notification með mynd á android tv tækin á heimilinu. Svo þegar ég kveiki á skjávarpanum í heimabíóinu þá sjálfkrafa slökkna öll ljós og gardínurnar lokast sjálfkrafa, svona svo fátt eitt sé nefnt.
Svo er ég með NFC tags hér og þar sem eru tengd ákveðinni virkni, get t.d skannað NFC tög utaná húsinu til að opna bílskúrshurðina og aðalinnganginn osv.frv.
Er búinn að integrate-a inní þetta Smartthings, Philips Hue, Shelly relay, Ring dyrabjöllu, Unifi netbúnað og myndavélar, Harmony fjarstýringar, Yamaha heimabíómagnara, Denon heimabíómagnara, allskyns rest þjónustur, t.d heimasmíðaðar þjónustur sem tala við Rasbperry PI til að opna/loka bílskúrshurðinni, lesa hitastig úr heita pottinum o.sv.frv. o.sv.frv. Algjörlega endalausir möguleikar.
Get ekki mælt nægilega mikið með Home Assistant

Ég er með Xiaomi aqara hurða/glugga skynjara og hreyfi skynjara tengt við HA með Zigbee dongle frá Deconz
Re: Home Assistant
Þetta er virkilega flott og fyrsta svona setup sem ég gæti séð fyrir mér að hafa hjá mér.hagur skrifaði:Hérna er mitt setup. Er með tvær spjaldtölvur uppá vegg, eina á hvorri hæð.
IMG_20210603_194407.jpg
Amazon Fire HD 8
Heimatilbúin "screensaver" skjámynd sem kemur upp eftir 5 mín idle tíma
IMG_20210603_212609.jpg
Amazon Fire HD 10
Heimatilbúin "screensaver" skjámynd sem kemur upp eftir 5 mín idle tíma
Svo er ég með nokkur mismunandi view, hér eru þau sem eru mest notuð af familíunni:
Þetta er aðalskjámyndin:
dashboard.png
Hérna er dedicated view fyrir eldhúsið:
eldhus.png
Annað fyrir stofuna:
stofa.png
Hér er view fyrir heimabíóið:
heimabio.png
Loks er hér view til að stýra öllu sem viðkemur heita pottinum:
heiturpottur.png
Dashboardin eru svo í raun bara hluti af þessu, er líka með fullt af automations til að gera hitt og þetta. T.d kveikja/slökkva öll útiljós m.v. við sólarupprás/sólsetur. Ef hreyfing er útí bílskúr þá kvikna ljósin þar. Ef hreyfing er skynjuð fyrir framan hús þá sendist notification með mynd á android tv tækin á heimilinu. Svo þegar ég kveiki á skjávarpanum í heimabíóinu þá sjálfkrafa slökkna öll ljós og gardínurnar lokast sjálfkrafa, svona svo fátt eitt sé nefnt.
Svo er ég með NFC tags hér og þar sem eru tengd ákveðinni virkni, get t.d skannað NFC tög utaná húsinu til að opna bílskúrshurðina og aðalinnganginn osv.frv.
Er búinn að integrate-a inní þetta Smartthings, Philips Hue, Shelly relay, Ring dyrabjöllu, Unifi netbúnað og myndavélar, Harmony fjarstýringar, Yamaha heimabíómagnara, Denon heimabíómagnara, allskyns rest þjónustur, t.d heimasmíðaðar þjónustur sem tala við Rasbperry PI til að opna/loka bílskúrshurðinni, lesa hitastig úr heita pottinum o.sv.frv. o.sv.frv. Algjörlega endalausir möguleikar.
Get ekki mælt nægilega mikið með Home Assistant
Í hverju bjóstu þetta til?
Re: Home Assistant
Þetta er allt bara uppsett í Lovelace, sem fylgir HA. Custom screensaver spjaldið er svo bara smá HTML/CSS í custom card component.nessinn skrifaði: Þetta er virkilega flott og fyrsta svona setup sem ég gæti séð fyrir mér að hafa hjá mér.
Í hverju bjóstu þetta til?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2309
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
Keypti mitt bara beint frá https://shop.shelly.cloud þegar það var útsala.slapi skrifaði:Hvar hafiði verið að kaupa shelly og hvaða hurða/gluggarofa eruði að nota?
Svo er ég að nota Aquara hurðaskynjara sem nota Zigbee, þarft þá sniffer eins og Conbee2 eða CC2531 (Fæst án firmware á flestum stöðum en hérna er hann með firmware'inu nú þegar https://itead.cc/product/cc2531-usb-dongle/ ).
Hef heyrt að Shelly hurðaskynjararnir séu ekki jafn góðir.
Ég held að þetta fáist líka hjá þessum:
https://snjallingur.is
https://rafkaup.is/voruflokkur/ljosastyring/shelly/
https://www.dot.is/index.php/raftaeki/s ... y-1-detail
https://www.snjallhornid.is/products/shelly-1
https://snjallt.is/vara/shelly-1/
https://rafkaup.is/voruflokkur/ljosastyring/shelly/
Aqara, mæli 100% með þeim.ZiRiuS skrifaði:Hvaða hita og rakaskynjara eru þið að nota fyrir herbergi?
Mjög flott, ég þarf greinilega að fá mér stærri spjaldtölvu. Var með nákvæmlega sama theme pakka og þú en það hafði meiri performance áhrif á spjaldtölvuna en ég átti von á. Svo default dark theme dugar í bili.hagur skrifaði:Hérna er mitt setup. Er með tvær spjaldtölvur uppá vegg, eina á hvorri hæð.
Svo mæli ég með Wallpanel Android appinu til að birta HA á spjaldtölvu, það er frítt http://thanksmister.com/wallpanel-android/
Last edited by GullMoli on Fös 04. Jún 2021 08:44, edited 1 time in total.
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
Re: Home Assistant
Hvaða myndavélar ertu að nota ?hagur skrifaði:Allskonar texti og myndir af snilldar uppsetningu
Hvaða NFC tög ertu með utan á húsinu ?
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Home Assistant
hvar hefur þú verið að versla þettta?GullMoli skrifaði:Aqara, mæli 100% með þeim.ZiRiuS skrifaði:Hvaða hita og rakaskynjara eru þið að nota fyrir herbergi?
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
Re: Home Assistant
Ég er með Unifi Protect kerfi, er með G3 Flex og G3 Dome myndavélar (G4 Doorbell og G3 Instant á leiðinni í pósti )svensven skrifaði:Hvaða myndavélar ertu að nota ?hagur skrifaði:Allskonar texti og myndir af snilldar uppsetningu
Hvaða NFC tög ertu með utan á húsinu ?
Er með eina gamla Foscam PTZ cameru útí bílskúr og svo er ég með Ring dyrabjöllu sem ég er að fara að skipta út. Ring integration-ið er ekki sérstaklega gott, býður t.d ekki uppá live feed úr myndavélinni.
NFC tögin eru þessi hér: https://www.shopnfc.com/en/on-metal-nfc ... n-pvc.html