Einhverjir hérna inni sem nota Pfsense sem load balancer ? Er að pæla hvernig Pfsense er að reynast í þeim efnum ?
Er að athuga hvort Nginx eða Pfsense henti betur sem Load balancer fyrir framan Rancher server-a í HA umhverfi (K3s) , þarf einnig að pæla í SSL termination .
Hérna er sýnidæmi um upsetningu á pfsense load balancer og HA proxy sem ég á reyndar eftir að fara betur í gegnum: https://www.netgate.com/resources/video ... se-24.html
Uppsetning Myndi vera sirka svona (2 master serverar og 4 worker serverar + 2 load balancer-ar + SQL server)
Revenant skrifaði:pfsense load balancer er bara gui ofan á haproxy pakkann.
Ef þú fílar viðmótið og vilt ekki fara ofan í haproxy eða nginx config skrár þá er ekkert að því að vera með load balancer á routerinum.
Já , akkúrat. Reyndar annar fídus sem ég fýla ágætlega sem er Pfblocker sem sér um DNS og IP Blackholing.
Mig grunar að ég þurfi að vera með layer 4 load balancer fyrir K3s notendur og Layer 7 load balancer fyrir external traffic.
Er soldið að hugsa upphátt með að skrifa hérna á vakinni og vona að einhverjar ljósperur kvikni
Held ég hafi verið að flækja málin. Ætla að byrja að setja upp test umhverfi heima og nota nginx reverse proxy (fyrir external traffic og ssl skírteini) og annan nginx load balancer fyrir k3s notendur. Skoða svo Pfsense load balancer þegar ég set upp umhverfi hjá Digital ocean.