Ég var að flytja aftur í sveitina þar sem 4G heimanet er besti kosturinn, Náði hátt upp í 150mb niður og altaf 50 upp og 29 í ping með Huawei B525 sem 4G modem og svo hafði ég Asus DSL-AC68U router til að dreifa wifi um heimilið sem svínvirkaði, en nú er mér spurn því ég seldi báðar græjurnar þegar ég flutti burt hvort ég þurfi svona að fara í svona dýran búnað fyrir þennan hraða, er með 110 fermetra timburhús þar sem Standart hvítur router frá símanum stendur í öðrum enda hússins og hann drifur í stofuna á hinum enda hússins en netið er stundum trekkt í sjónvarpinu, hvort það sé wifi styrknum eða landlínunni að kenna veit ég ekki.
Svo ég skilji þig rétt, er 4G net besti kosturinn þar sem þú ert núna eða ertu að pæla í að skipta aftur í 4G? Ef svo er, hvernig tengingu ertu að nota í dag?
Ódýrustu routerar í dag ráða auðveldlega við 150 Mbit. Gerðu hraðamælingu á Speedtest annars vegar þar sem sjónvarpið er og hins vegar 1-2m frá router, þá sérðu allavega hvort þetta sé drægnisvandamál. Það er yfirleitt ekki vandamál í timburhúsum en það getur auðvitað ýmislegt truflað.
Hvernig ertu annars að horfa á sjónvarpið? Er þetta myndlykill Símans, app í sjónvarpi, Apple TV eða eitthvað annað og hvort er það tengt með snúru eða wifi?
Er semsagt að skipta aftur í 4G já, er eins og er með VDSL, það var lagt í götuna hjá mér fyrir 2 árum en hef lent oft í því að hraðinn falli úr 55mb niður í 11 eða vera eins og það sé óstöðugt þó ekkert innanhúss ætti að valda, ég sé í sjónvarpinu að ég fæ hálft wifi samband en það stundum strögglar og er með vesen sem gæti verið þessi óstöðugleiki í tengingunni, er með sjónvarp símans en er að skoða að fá mér einhverskonar margmiðlunar spilara og taka inn Hulu, Disney+, Netflix, Viaplay og nota Nord Vpn appið til að fá aðgang að betra efni á netflix, er mikið að skoða Nvidia Shield þó hann sé væntanlega overkill. En þá skiptir góður 4g mótakari mestu, og svo fín router með drægni ætti að duga.
Þú getur notað app í símanum til að greina sendistyrkinn á þráðlausa netinu innanhúss hjá þér. Eins ef þú ert með beini með loftnetsstöngum þá er hægt að nota þetta meðan maður fiktar í stöðunni á stöngunum til þess að bæta merkið frá beininum.
Ef sendistyrkurinn hjá sjónvarpinu er áberandi lítill + að mörg tæki séu á þráðlausa þá er kannski ekki endilega við nettenginguna að sakast.
Wifi analyzer eða wifi signal meter ætti að skila þér einhverju sniðugu í bæði google play eða app store.
pantaði Huawei B535 frá símanum hendi í sterkan router og nota 535 sem modem ef hann dugar ekki til að dreifa WIFI, henti mér í pakka með 4G heimilisnet og 2 farsíma sem deila endalausu gagnamagni, undir 16k á mánuði frá símanum.