Kem vinnsluminninu ekki í !

Svara

Höfundur
Pirate^
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Lau 24. Apr 2004 21:05
Staðsetning: Selfoss
Staða: Ótengdur

Kem vinnsluminninu ekki í !

Póstur af Pirate^ »

Mér vantar aðstoð með það að koma vinnsluminni í tölvuna..
sko ég er alltaf með tvö vinnsluminni 1 sem er 256mb og annað sem er 128mb og ætlaði síðan að prufa að setja annað 256mb, en það var ekki alveg að virka þannig að ég tók það bara aftur úr og kveikti síðan bara aftur á tölvuni en þegar ég var búinn að starta henni stóð bara að ég væri með 256mb of ram, ég var ekki alveg ánægður með það þannig að ég ætlaði að taka 128mb minnið úr og setja það aftur í en kom því bara ekki í eftir löng átök að reyna að troða því í. :evil:
gæti verið að ég sé að gera einhvað vitlaust ?
Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Staða: Ótengdur

Re: Kem vinnsluminninu ekki í !

Póstur af MezzUp »

Pirate^ skrifaði:gæti verið að ég sé að gera einhvað vitlaust ?
Nokkuð örugglega :)
En það þarf nú oft smá ákveðni til þess að koma þessu í. Hvítu fliparnir sem að þú ýttir á til þess að taka þetta út eiga að vera „úti“ en smella svo “inn„ þegar minnið er komið í.
Þú passaðir vitaskuld að snúa því ekki öfugt!!?? :roll: :)

Höfundur
Pirate^
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Lau 24. Apr 2004 21:05
Staðsetning: Selfoss
Staða: Ótengdur

Póstur af Pirate^ »

en ég prufaði að taka 256 mb minnið úr sem hefur alltaf verið í tölvuni það var ekkert mál að koma því í aftur :?
Skjámynd

zaiLex
Tölvutryllir
Póstar: 685
Skráði sig: Fim 30. Okt 2003 01:46
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Kem vinnsluminninu ekki í !

Póstur af zaiLex »

MezzUp skrifaði: Þú passaðir vitaskuld að snúa því ekki öfugt!!?? :roll: :)
Það skiptir engu hvernig það snýr er það nokku ? :S, eða var þetta eikkað djók hjá þér ? ekki lemja mig.
Skjámynd

noizer
Tölvutryllir
Póstar: 699
Skráði sig: Fös 24. Sep 2004 18:40
Staða: Ótengdur

Póstur af noizer »

nei minnið verður að snúa rétt

Já það getur verið erfitt að koma minni í, í minni tölvu þurfi ég að láta kassann á hliðina og lemja minninu í :wink:
Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Staða: Ótengdur

Re: Kem vinnsluminninu ekki í !

Póstur af MezzUp »

zaiLex skrifaði:
MezzUp skrifaði: Þú passaðir vitaskuld að snúa því ekki öfugt!!?? :roll: :)
Það skiptir engu hvernig það snýr er það nokku ? :S, eða var þetta eikkað djók hjá þér ? ekki lemja mig.
Neinei, ekkert djók hjá mér, og nei ég skal ekki lemja þig :)
Það skiptir öllu máli hvernig kubburinn snýr, en allir vinnsluminniskubbar(SIMM, DIMM, RIMM) eru 'lyklaðir' (e. keyed) með raufum á kubbunum og pinnum í slottinu sem tryggja að vinnsluminnið fari einungis inn á einn veg.
Svara