Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
-
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 548
- Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
- Staðsetning: 113 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Góðan daginn,
Er með Synology NAS box og er að fá tilkynningu um nokkra bad sector á drifinu hjá mér. Status er samt normal og átta mig ekki alveg á alvarleika málsins, sennilega er drifið ekkert að krassa. Var samt að spá í að nota tækifærið og uppfæra diskana úr 2tb í 4tb. hallast að WD RED frekar en Seagate Ironwolf einfaldlega þar sem þeir eru aðeins ódýrari.
Eins og sést á myndinni stendur á NASinu hjá mér "4k native HDD" > No. Þá kemur stóra spurningin, hvaða diskar eru 4k native HD og er það eitthvað sem ég á að eltast við? Ég er ekki að átta mig á þessu þrátt fyrir smá googl.

- Viðhengi
-
- NAS.jpg (33.71 KiB) Skoðað 2660 sinnum
Last edited by arnarj on Mið 01. Apr 2020 12:22, edited 1 time in total.
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Hérna kemur fram hvaða diskar eru 4Kn (þetta eru ákveðnir Enterprise diskar)arnarj skrifaði: Eins og sést á myndinni stendur á NASinu hjá mér "4k native HDD" > No. Þá kemur stóra spurningin, hvaða diskar eru 4k native HD og er það eitthvað sem ég á að eltast við? Ég er ekki að átta mig á þessu þrátt fyrir smá googl.
https://www.synology.com/en-global/comp ... re=4Kn&p=1
Á þessari síðu kemur þetta líka fram
Þannig að þú sem ert ekki að nota 4Kn diska átt þú að sjálfsögðu ekki að versla þessa sértæku diskaAlways use and manage 4K native (4Kn) hard drives separately.
Just do IT
√
√
-
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 548
- Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
- Staðsetning: 113 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Takk, var einmitt búinn að sjá þetta en vildi fá meira feedback þar sem ég átta mig ekki 100% á þessu. Eru sem sagt engin þörf fyrir venjulegan notanda sem vill ekki að HDD hafi takmarkaða streymigetu að spá í þessu? Þannig að ég kaupi bara "venjulegan" disk sem sinnir öllum þörfum, þ.e. bara diska hugsaða fyrir NAS þar sem ég er með Synology NAS?
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Í stuttu máli þá á venjulegur notandi ekki að pæla í 4kn diskum nema þú hafir einhverjar sérþarfir fyrir það.arnarj skrifaði:Takk, var einmitt búinn að sjá þetta en vildi fá meira feedback þar sem ég átta mig ekki 100% á þessu. Eru sem sagt engin þörf fyrir venjulegan notanda sem vill ekki að HDD hafi takmarkaða streymigetu að spá í þessu? Þannig að ég kaupi bara "venjulegan" disk sem sinnir öllum þörfum, þ.e. bara diska hugsaða fyrir NAS þar sem ég er með Synology NAS?
Þannig að hefðbundinn diskur fyrir NAS mun eflaust henta þér (ef hann er á þessum Products Compatibility List-a).
Hins vegar geta málin farið að flækjast ef þú ert að nota Synology boxið fyrir sýndavélar (Hyper-v eða Vmware en þú sagðir fyrir venjulega notendur þá ætla ég ekkert að pönkast í þér) þá eru hraðvirkari diskar heppilegri. Sjálfur nota ég ekki Synology box en ég mæli allavega með því að þú takir afrit af öllu stöffinu og syncar því með cloud sync yfir í Backblaze cloud storage tímabundið allavegana áður en þú ferð að uppfæra diskana.
Last edited by Hjaltiatla on Mið 01. Apr 2020 15:59, edited 1 time in total.
Just do IT
√
√
-
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 548
- Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
- Staðsetning: 113 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Takk, NAS er bara gagnageymsla og af henni er streymt (1-2 streymi í einu),það er 1GB interface á boxinu. Vil auðvitað að diskarnir séu ekki flöskuhálsar ef maður verður t.d. með 4k efni. Nota stýrikerfið sem kemur með boxinu Þannig að þá þarf ég ekkert að spá í þessu.
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Það skiptir máli hvernig Diskar eru poolaðir saman (hvernig raid er uppsett) til að átta sig almennilega á Disk I/O throughput til að átta sig hvort það gæti myndast flöskuháls við að streyma 4k myndefni. Reikna með að write hraðinn skipti ekki miklu máli heldur Read hraðinn þar sem gögn streyma frá boxinu (Plex væntanlega).arnarj skrifaði:Takk, NAS er bara gagnageymsla og af henni er streymt (1-2 streymi í einu),það er 1GB interface á boxinu. Vil auðvitað að diskarnir séu ekki flöskuhálsar ef maður verður t.d. með 4k efni. Nota stýrikerfið sem kemur með boxinu Þannig að þá þarf ég ekkert að spá í þessu.
Just do IT
√
√
-
- Vaktari
- Póstar: 2599
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Þetta "4K native HDD" tengist ekkert 4k upplausn. Bara skjóta því inn.
-
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 548
- Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
- Staðsetning: 113 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Plex er ein leiðin sem ég nota. Ég nota bara default skráakerfið sem synology stýrikerfið notar (DSM) og þekki engin nánari detail.Hjaltiatla skrifaði:Það skiptir máli hvernig Diskar eru poolaðir saman (hvernig raid er uppsett) til að átta sig almennilega á Disk I/O throughput til að átta sig hvort það gæti myndast flöskuháls við að streyma 4k myndefni. Reikna með að write hraðinn skipti ekki miklu máli heldur Read hraðinn þar sem gögn streyma frá boxinu (Plex væntanlega).arnarj skrifaði:Takk, NAS er bara gagnageymsla og af henni er streymt (1-2 streymi í einu),það er 1GB interface á boxinu. Vil auðvitað að diskarnir séu ekki flöskuhálsar ef maður verður t.d. með 4k efni. Nota stýrikerfið sem kemur með boxinu Þannig að þá þarf ég ekkert að spá í þessu.
-
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 548
- Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
- Staðsetning: 113 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Vissi það, 4k diskar eru með 4096 bytes pr. sector á meðan hefðbundið er að vera með 512 bytes pr. sector.SolidFeather skrifaði:Þetta "4K native HDD" tengist ekkert 4k upplausn. Bara skjóta því inn.
Hér er smá lesning en framtíðin virðist vera í 4k diskum, því er ég að spá í þessu áður en ég eyði 40þ+ í nýja "venjulega" diska
https://www.seagate.com/gb/en/tech-insi ... master-ti/
"Around 2010, hard drive companies began migrating away from the legacy sector size of 512 bytes to a larger, more efficient sector size of 4,096 bytes, generally referred to as 4K sectors and now referred to as the Advanced Format by IDEMA (The International Disk Drive Equipment and Materials Association)."
Last edited by arnarj on Mið 01. Apr 2020 21:45, edited 1 time in total.
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar nýjan stærri disk í NAS. Kaupa 4k HD?
Held þessi lína útskýri muninn á 4K og 4Kn diskumarnarj skrifaði:Vissi það, 4k diskar eru með 4096 bytes pr. sector á meðan hefðbundið er að vera með 512 bytes pr. sector.SolidFeather skrifaði:Þetta "4K native HDD" tengist ekkert 4k upplausn. Bara skjóta því inn.
Hér er smá lesning en framtíðin virðist vera í 4k diskum, því er ég að spá í þessu áður en ég eyði 40þ+ í nýja "venjulega" diska
https://www.seagate.com/gb/en/tech-insi ... master-ti/
"Around 2010, hard drive companies began migrating away from the legacy sector size of 512 bytes to a larger, more efficient sector size of 4,096 bytes, generally referred to as 4K sectors and now referred to as the Advanced Format by IDEMA (The International Disk Drive Equipment and Materials Association)."
https://www.reddit.com/r/DataHoarder/co ... ard_drive/Modern HDs use 4K physical sectors, but usually emulate 512 byte sector drives for compatibility (this has no ill effects provided writes are 4K aligned). 4K native drives don't. You're unlikely to encounter a 4K native drive, they're not sold through retail channels.
Common shorthand: "512e" and "4Kn".
Just do IT
√
√