Ég er með Unifi ap-ac-lite sem hefur þjónað öllum mínum þörfum vel hingað til, en er farinn að klikka, t.d. er ég ítrekað að lenda í því að hann aftengist routernum og tengist aftur í sífellu.
Er búinn að reyna allt, annað en að skipta um poe injector og ég veit ekki einu sinni hvort það muni laga vandamálið.
Ég er hvort eð er að spá í að uppfæra í MU-MIMO, en er ekki alveg viss hvað ég ætti að fjárfesta í.
Þetta er meðalstór íbúð með steyptum veggjum og Uap-ac-lite hefur alveg dugað uppá drægni og hraða.
Er með cirka 20+ tæki sem tengjast þráðlaust og routerinn styður hvað sem er, en er ekki með innbyggðu WiFi radio-i
Er hrifinn af Unifi búnaði, en er ekkert fastur á því.
Hvað eru menn að nota heima hjá sér?
Hvernig þráðlausan access punkt ætti ég að fá mér?
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 395
- Skráði sig: Mið 29. Feb 2012 15:48
- Staðsetning: Keflavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hvernig þráðlausan access punkt ætti ég að fá mér?
Getur örugglega fengið gefins svona injector hér á vaktinni til að prufa, annars kosta þeir ekki svo mikið og alveg virði þess að prufa.