þegar ég vaknaði í morgun var allt fullt af errors útaf geymslu diskinum mínum kemur this file is corrupted or unreadable alveg sama hvað ég klikka á
þetta er geymslu diskurinn ekki system
120gb hitachi nýr
hdd check neitar að scanna hann
defragment neitar líka
antivir kemur með meldingu um að filar séu locked og geti því ekki verið breytt?
adaware neitar að scanna diskinn
er ég að tapa þessum 109gb af dóti?
einhver lausn á þessu?
Það sem þú veist ekki særir þig ekki og ég veit yfirleitt ekki neitt
Náðu þér í WindowsXP Pro geisladiskinn (ef þú átt hann til) og bootaðu upp á honum, veldu Recovery Console svo úr setuppinu, þar sem þú lendir í DOS prompt, og gerðu chkdisk /r eða chkdsk /p (man ekki hvort), gerðu sömuleiðis "fixmbr"
Ég verð bara að nota tækifærið og segja ykkur frá því sem ég lenti í um daginn. Ég kom að tölvunni minni einn daginn þar sem hún neitaði að ræsa sig, ég heyrði bara "the click of death" í sífellu í disknum. Diskurinn var Samsung 120GB (innan við ársgamall) sem var splittaður í 2 partition, system og svo svona persónulegt stuff, þmt. 25GB af ljósmyndum sem ég hef tekið síðastliðið ár (og já, ég skammast mín fyrir að segja, ekkert backup) - Svo ég fékk vægt hjartaáfall.
Næstu 3 dagar voru vægast sagt erfiðir, ég fór í gegnum ÖLL húsráð sem ég hef nokkurntíman heyrt af, fletti m.a. í gegnum "200 ways of reviving a dead harddrive", undir lokin var ég búinn að berja diskinn, setja hann í frysti í 6klst, skrúfa stýriplötuna af og pota í hana og skrúfa aftur á, og að lokum var ég kominn með verðtilboð frá sérhæfðu fyrirtæki úti sem hljóðaði upp á 100.000 - 500.000 kr. fyrir björgun. Ég gafst ekki upp.
Þrátt fyrir "the click of death" - þá sást diskurinn í BIOS, en það var ekki hægt að boota á honum né hægt að accessa hann á neinn hátt, svo ég neitaði að gefast upp, ég setti vélina mína aftur upp á öðrum HDD, prófaði að ræsa upp inn í recovery console, og prófaði skipanirnar 'fixmbr' og 'fixboot', og í kjölfarið sást diskurinn og ég gat chkdsk'að hann, og því næst náð gögnunum yfir! Sectorarnir sem geymdu MBR (master boot record) og allt þetta klabb voru hreinlega ónýtir, og af einhverjum fáránlegum ástæðum orsakaði þetta þessi hræðilegu hljóð sem fylgja diskum sem taldir eru gjörsamlega ónýtir.
Vona að þessi frásögn verði einhverjum til hjálpar í framtíðinni, og vil líka minna á, TAKIÐ BACKUP! ! ! - Í kjölfarið fékk ég mér DVD skrifara og annan HDD, og ætla núna að eiga 2-3 copy af klabbinu mínu, alltaf.
kiddi skrifaði:Náðu þér í WindowsXP Pro geisladiskinn (ef þú átt hann til) og bootaðu upp á honum, veldu Recovery Console svo úr setuppinu, þar sem þú lendir í DOS prompt, og gerðu chkdisk /r eða chkdsk /p (man ekki hvort), gerðu sömuleiðis "fixmbr"
en þegar ég boota upp með diskinn vill recovery console bara eiga við system diskinn?
Það sem þú veist ekki særir þig ekki og ég veit yfirleitt ekki neitt
jesús kristur tölvan fríkaði út
ég restartaði henni og það kom melding um að það þyrfti að tékka á consistancy á einum diskinum og svo þegar hún gerði það þá þurkaði hún allt út bara diskurinn er ok núna en allt farið
Það sem þú veist ekki særir þig ekki og ég veit yfirleitt ekki neitt
prófaðu Get data back!!! Það var um daginn búið að formatta harðan disk 3svar og keyra inn windows í framhaldinu, samt náði ég gömlum skjölum af disknum.
Ef gögnin eru enn til staðar þá ætti forritið að finna þau, ef ekki ertu í slæmum málum.
arnarj skrifaði:Það var um daginn búið að formatta harðan disk 3svar og keyra inn windows í framhaldinu, samt náði ég gömlum skjölum af disknum.
Format merkir bara sector'a sem auða, en 'núllar' ekki gögnin á þeim þannig að þú gætir formattað 100 sinnum án þess að missa gögnin
Svo hugsa ég að þau gögn sem að þér tókst að bjarga hafi ekki verið á sama stað og Windows'ið var sett upp á
sumir hafa lent í því að glænýr diskur er hreinlega gallaður, þegar diskur er nokkra mánaða gamall má færa rök fyrir því að það sé kominn smá reynsla á hann og því sé hann öruggari. En það er fer náttúrulega eftir reynslu hvers og eins hvað menn telja gott og slæmt, eins og með allt annað.
arnarj skrifaði:Það var um daginn búið að formatta harðan disk 3svar og keyra inn windows í framhaldinu, samt náði ég gömlum skjölum af disknum.
Format merkir bara sector'a sem auða, en 'núllar' ekki gögnin á þeim þannig að þú gætir formattað 100 sinnum án þess að missa gögnin
Svo hugsa ég að þau gögn sem að þér tókst að bjarga hafi ekki verið á sama stað og Windows'ið var sett upp á
Ég þekki það alveg, ég var bara í raun að nota þetta sem dæmi til að segja honum að þó hann sjái ekki gögnin þýðir það ekki að þau séu glötuð.
Ég hef t.d. líka lent í því að fá errora á 300gb Maxtor disk og var alveg í sjokki yfir að vera búin að glata öllu af disknum, þ.e. ég hætti síðan að sjá diskinn í windows. En get data back bjargaði megninu af öllu stuffinu, það var lengi að mallast yfir á annan disk en árangurinn var góður miðað við hvað ég þorði að vona.

Ahh, ok. Ég skildi þetta þannig að þú héldir að gögnin myndu alltaf eyðast meira við hvert format. Maður veit ekkert hvað aðrir hérna kunna
Jamm, GDB hefur líkað bjargað mér þegar eitthvað Linux fikt í mér fokkaði upp FAT töflunni á WD80GB disknum mínum. Fékk 100GB disk lánaðan frá vini mínum og fékk allt tilbaka
amm, ég orðaði þetta kannski dálítið noobalega Ég hefði örugglega gert það sama og þú og sett út á þetta ef einhver annnar hefði orðað þetta svona, hehe
p.s. það væri nú forvitnilegt að vita hvort GDB bar árangur.