Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2260
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur

Ætlaði mér að þræða netkapal heim hjá mér bakvið parketlistana í páskafríiunu. Komst samt fljótlega að því að það væri ekki að fara að ganga með þessum listum.
Það hlítur einhver hérna að hafa farið í svona verkefni. Mér skilst að það sé hægt að fá lista þar sem gert er ráð fyrir snúrum bakvið. Væri gaman að vita hvar þeir fást.
Allar ráðlegingar velkomnar

i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Gúrú
- Póstar: 539
- Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
- Staða: Ótengdur
Re: Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
Flutti inní íbúð sem ég keypti 2009. Fyrrverandi eigandi hafði byrjað að taka hana í gegn en runnið á rassinn með það og eitt af því sem vantaði voru gólflistar. Setti lista frá Ronning og notaði tækifærið og bætti við tenglum og Cat . Er reyndar að vinna hjá Ronning þannig að ég er ekki alveg hlutlaus ☺
Slóðin þar sem hægt er að sjá úrvalið er https://www.ronning.is/gólflistarennur
Slóðin þar sem hægt er að sjá úrvalið er https://www.ronning.is/gólflistarennur
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2260
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
Þarf að kíkja á þetta hjá þér. Er ekki vaktara afsláttur
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
Re: Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
Hvernig parket er þetta og listar ?
Þú ert vanalega með hátt í 0,5cm frá parketi í vegg og flest allir listar eru með smá rauf og er lítið sem ekkert mál að setja tvo cat5e allavega.
Hví cat6 ? Sérð ekki mikin mun í heima húsi eða í neinum tölvuleikjum.

- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
- Staðsetning: Babýlon norðursins
- Staða: Ótengdur
Re: Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
Dúlli skrifaði:Hvernig parket er þetta og listar ?
Þú ert vanalega með hátt í 0,5cm frá parketi í vegg og flest allir listar eru með smá rauf og er lítið sem ekkert mál að setja tvo cat5e allavega.
Hví cat6 ? Sérð ekki mikin mun í heima húsi eða í neinum tölvuleikjum.
Afþví að kannski ef hann býr ennþá þarna eftir 5 ár og langar í 10gbit lan þá er það möguleiki .. verðmunurinn er ekki slíkur að ég myndi leggja 5 í stað 6 í dag í varanlega lögn sem ég sæi fram á að nota næstu ár
Re: Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
Það er í raun smekksatriði og eftir því hvað hann mun gera með netið hjá sér. 1Gb er bara helvíti fínt og það er auðveldara og þægilegra að leggja cat5e þar sem hann er ekki eins stífur og mjóri.Blackened skrifaði:Dúlli skrifaði:Hvernig parket er þetta og listar ?
Þú ert vanalega með hátt í 0,5cm frá parketi í vegg og flest allir listar eru með smá rauf og er lítið sem ekkert mál að setja tvo cat5e allavega.
Hví cat6 ? Sérð ekki mikin mun í heima húsi eða í neinum tölvuleikjum.
Afþví að kannski ef hann býr ennþá þarna eftir 5 ár og langar í 10gbit lan þá er það möguleiki .. verðmunurinn er ekki slíkur að ég myndi leggja 5 í stað 6 í dag í varanlega lögn sem ég sæi fram á að nota næstu ár
En aftur á móti ef hann er að eltast við tækni og hafa allt topp of the line þá er cat6 flott. En ef þetta er bara fyrir netráp og þetta basic stuff þá er þægilegast að fara the easy way.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
- Staðsetning: Babýlon norðursins
- Staða: Ótengdur
Re: Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
Jájá það er reyndar alveg rétt.. 5 er talsvert auðveldari í lagningu og 1Gb er andskotans nóg en hitt venst ótrúlega
Norðmennirnir sem ég vinn fyrir hlægja bara ef maður talar um að leggja cat5.. menn eru yfirleitt að vinna verkin til margra ára og þá er allt eins gott að leggja kapla sem að styðja meiri hraða jafnvel þó að maður þurfi ekki bandvíddina núna eða eftir 4ár
Ég man nú bara að það eru alls ekki mörg ár síðan maður var að leggja cat5 kapla og jafnvel splitta þeim afþví að "100mbit" voru andskotans nóg
...Djöfull sem maður sparkar í sig í dag fyrir að hafa ekki lagt 2 kapla afþví að gigabit er the way to go í dag!
En það er alveg rétt.. það er miklu auðveldara að leggja cat5 og bandvíddin er alveg nóg.. en ef að mikið er gott þá hlýtur meira að vera betra

Ég er alveg samála. Er sjálfur aftur á móti með 100Mb enþá og sé enga þörf á að fara í 1Gb, þar sem notkunninn hjá mér er í raun þetta basic stuff og svo streama innanhús.Blackened skrifaði:Jájá það er reyndar alveg rétt.. 5 er talsvert auðveldari í lagningu og 1Gb er andskotans nóg en hitt venst ótrúlega
Norðmennirnir sem ég vinn fyrir hlægja bara ef maður talar um að leggja cat5.. menn eru yfirleitt að vinna verkin til margra ára og þá er allt eins gott að leggja kapla sem að styðja meiri hraða jafnvel þó að maður þurfi ekki bandvíddina núna eða eftir 4ár
Ég man nú bara að það eru alls ekki mörg ár síðan maður var að leggja cat5 kapla og jafnvel splitta þeim afþví að "100mbit" voru andskotans nóg
...Djöfull sem maður sparkar í sig í dag fyrir að hafa ekki lagt 2 kapla afþví að gigabit er the way to go í dag!
En það er alveg rétt.. það er miklu auðveldara að leggja cat5 og bandvíddin er alveg nóg.. en ef að mikið er gott þá hlýtur meira að vera betra
Og svo það er líka spurninginn ef maður mun búa á sama stað eftir 2 ár ? 4 ár ? 6 ár ? óþarfi að gera sig future proof ef maður er bara á saman stað.
Skil vel ef þetta sé fyrirtæki eða notandi með háar kröfur en ef þetta er bara þetta basic þá er betra að nota þessar aukakrónur í eithvað annað. hehehe
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2260
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
Þar sem að ég á íbúðina (eða mun eiga hana eftir sirka 30 ár) þá er þetta framtíðar aðgerð.
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1227
- Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
- Staðsetning: In the forest
- Staða: Ótengdur
Re: Þræða Cat6 undir parketlista. Reynsla. Hvar fást réttu listarnir?
Ég var einmitt með einn Cat6 kapal, sem bara vildi ekki tengjast á 1Gbps, var að gera mig geðveikann, lagði Cat5 við hliðina og náði strax fullum hraða.
Örugglega verið skemmdur á þessari löngu leið, óþolandi að vera með einn sem er útundan í hraða.