Svarið sem ég fékk er að það er basically verið að DDoS-a útlandagáttina, það er verið að flooda gáttina reglulega sem endar í lélegum hraða út og þeir eru að vinna í því að laga það. Hef ekkert lent í veseni með hraðann innanlands.
Sonatorrek skrifaði:Svarið sem ég fékk er að það er basically verið að DDoS-a útlandagáttina, það er verið að flooda gáttina reglulega sem endar í lélegum hraða út og þeir eru að vinna í því að laga það. Hef ekkert lent í veseni með hraðann innanlands.
Væri fínt að fá meira official svar hérna inn.
Mjög áhugavert, það myndi skýra af hverju þessi ömurlegri hraði kemur af og til í ljósi þess að fyrirtækið er ekkert að maxa sig, en já væri gaman að fá loksins official skýringu frá Hringdu, menn vilja vita af hverju þetta er að gerast.
Er einmitt búinn að vera með choke upp að ca. 25% í cs. Get ekki horft á twitch í high/source þó ég sé með kapal tengdan í tölvuna (100 mb tenging). 85 til 130 ping á europe north serverum, 65-80 á europe west. Mig langar rosalega að vera hjá hringdu en ég sé fram á að þurfa að fara til vondafone aftur...
jæja núna get ég ekki horft á ruv.is fésið down þannig ég er spá að fara annað þetta er ekki hægt sérlega um helgi að ræða annað hvort það er Hringiðan eða vodofone þó mar þarf að borga sennilega meira 2 til 3 þús kr meira
GullMoli skrifaði:Ég er með Google DNS og er í sömu vandræðum og aðrir..
Já Google DNS virðist líka vera mjög leiðinlegt. Northern Europe serverinn hjá playmoTV er hins vegar að virka ágætlega (en þá þarf maður helst áskrift að playmoTV).
lágmark ef þeir voru að laga eða gera eitthvað í kerfinu að láta vita fyrirfram það gæti netið væri hægt en sér ekkert á heimsíðunna um það sem er ekki gott !!
er með google dns í gangi og hef ekki lennt í að neitt detti út, en er búinn að vera að lenda í svakalegur packet loss þrátt fyrir stöðugt MS í leikjum eins og wow og lol, en svo á wow það til að hoppa í 1200+ MS
Tjah. Ég ætla allavega að gefa þeim smá tíma í að redda þessu. Síðast þegar ég var hjá þeim beið eg reyndar í þrjá mánuði þangað til að ég gafst upp og fór til Vondafone og fór þaðan strax aftur útaf bull talningar síu sem er aldrei í lagi.
Ég er alveg hæst ánægður með hraðann hjá mér og í raun aldrei orðið var við að Twitch hagi sér illa né YouTube.
Eina skiptið sem ég hef átt í vandræðum með Hringdu var þegar vandamálið var á mínum enda, en það virðist hafa verið routerinn sem var ekki að standa sig.
Nýjustu hraðaprufanir (m. 2 YouTube stream í gangi)
New York
London
Uppá forvitnina, hvaða router-a eru menn að nota, hvað eru mörg tæki tengd os.frv?
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Þessi helgi hefur verið mjög slæm eins og þið hafið upplifað. Basically teljum við þetta vera flókna netárás sem kemur og fer og sem reynist afar erfitt að tækla. Það er ömurlegt að þetta vandamál hafi ekki verið leyst af okkar hálfu og hefði verið betra af okkur að gera ykkur grein fyrir stöðunni fyrr um helgina.
Við höfum notið ykkar aðstoðar við að reyna finna út úr þessu sem hefur hjálpað til. Við þiggjum áfram allar ábendingar sem gætuð hjálpað sem þið mættuð annað hvort senda á mig eða gunnih.