Breytingar hjá Hringdu
Breytingar hjá Hringdu
Sælir vaktarar!
Mig langar til að byrja á því að bjóða ykkur í afmælisveislu Hringdu þann 4. mars næstkomandi (núna á föstudag). Þetta mun byrja klukkan 4 og verður sölu- og þjónustuveri lokað þá. Kjörið tækifæri til að hitta fólkið á bakvið tjöldin eða jafnvel hitta fólk frá hinum fjarskiptafyrirtækjunum þar sem þeim er boðið. Ef það heillar ykkur ekki þá verða í boði takmarkaðar veitingar en nægur frír bjór!
Á sama tíma langar mig að gefa ykkur smá uppfærslu á því sem er að gerast hjá okkur. Nú í febrúar stórbættum við utanlandssambandið okkar, við bæði stækkuðum það og bættum redundancy. Bufferinn er orðinn ansi stór og er lítið mál fyrir okkur að stækka ennþá meira ef til þess þarf!
Og svo eru það verðbreytingar. Þær eru hinsvegar bara á góðum nótum þar sem við erum að lækka verðin hjá okkur á ljósleiðara talsvert mikið, á sama tíma erum við að einfalda vöruframboðið okkar og ýta ennþá meira undir það að við viljum selja mismunandi hraða með ótakmörkuðu gagnamagni frekar en að rukka fyrir notkunina.
Ljósleiðari 10 GB breytist í Ljósleiðara 15 GB og verðið lækkar úr 3.595 kr. niður í 1.990 kr.
Við spáðum mikið í því hvort við ættum alfarið að hætta með gagnamagnspakka en enduðum á því að halda þessum eina pakka. Þetta er okkar minnsti pakki og kemur til móts við þá sem nota netið gífurlega lítið. Hann er þá ódýrasti pakkinn á markaðnum og ef þú ert með nýjasta boxið frá GR geturðu fengið 500 Mbit/s hraða, annars defaultarðu í 100 Mbit.
Ótakmörkuðu pakkarnir okkar breytast talsvert mikið líka. Við fösum út bæði 75/75 Mbit/s og 200/200 Mbit/s pökkunum og bjóðum þá einungis upp á 50/50, 100/100 og 500/500 Mbit/s pakka. Ný framsetning á þeim er svona:
50/50 Mbit/s var á 6.490 kr. og lækkar niður í 3.990 kr.
100/100 Mbit/s var á 8.690 kr. og lækkar niður í 5.990 kr.
500/500 Mbit/s var á 11.490 kr. og lækkar niður í 7.390 kr.
Það fer út tölvupóstur á alla kúnna sem tilkynnir breytingarnar nánar á morgun, 1. mars. En til að útskýra það stuttlega þá fara þeir sem eru í 50/50 og 75/75 Mbit/s sjálfkrafa í 100/100 Mbit/s pakkann. Þeir sem voru í 50/50 lækka þá úr 6.490 kr. í 5.990 kr. og fá tvöfaldan hraða, þeir sem eru í 75/75 lækka úr 7.490 kr. og fá líka meiri hraða. Þeir viðskiptavinir sem eru í 50/50 og vilja frekar haldast í honum með nýju verði hafa þá tækifæri í heilan mánuð til þess að hafa samband við okkur. Allir í 200/200 lækka úr 9.990 kr. í 7.390 kr. og færast sjálfkrafa í 500/500 Mbit/s.
Við gerum litlar breytingar á ljósneti (e. VDSL) og ADSL en við hækkum 10 GB í 15 GB og 50 GB í 75 GB, öll verð eru óbreytt.
Allar hraðabreytingar gerast í kvöld/á morgun, en verðbreytingar taka gildi 1. apríl.
Þessar breytingar eru gerðar til að komast á móts við aukna samkeppni á markaðnum ásamt því að við viljum vera bestir!
Vonumst til að sjá eitthvað af ykkur á föstudaginn og viljum endilega heyra hvað ykkur finnst um breytingarnar!
Kveðja,
Gunnar

Re: Breytingar hjá Hringdu
Sæll, eina sem ég rakst á að var ekki nefnt var staðsetning. Mæting í búðina hjá ykkur eða?
Annar er allt mjög fallegt og skýrt sett fram ásamt því að hjóma sem góð breyting fyrir neytendur. En þar sem við höfum þig hérna langaði mig að varpa fram einni spurningu.
Eruð þið með einhverja síðu þar sem maður getur fylgst með álagi á þær tengingar sem þið eruð með út úr landinu og við RIX (svona eins og maður man eftir frá því í gamladaga þegar simnet var og hét ... og var rekið af áhugamönnum en ekki bókhöldurum).
Kv. Gunnar

-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
- Staðsetning: Babýlon norðursins
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Og ein spurning fyrir okkur Landsbyggðarliðið fyrir norðan.
Eruð þið ennþá bara að bjóða uppá Ljósleiðaratengingar í gegnum gPon hjá Tengir á Akureyri og þá 100/25 eða eru einhver plön um að fara í svissana hjá þeim og fara í 500/500?
Eruð þið ennþá bara að bjóða uppá Ljósleiðaratengingar í gegnum gPon hjá Tengir á Akureyri og þá 100/25 eða eru einhver plön um að fara í svissana hjá þeim og fara í 500/500?
Re: Breytingar hjá Hringdu
Sæll!Cikster skrifaði:Sæll, eina sem ég rakst á að var ekki nefnt var staðsetning. Mæting í búðina hjá ykkur eða?
Annar er allt mjög fallegt og skýrt sett fram ásamt því að hjóma sem góð breyting fyrir neytendur. En þar sem við höfum þig hérna langaði mig að varpa fram einni spurningu.
Eruð þið með einhverja síðu þar sem maður getur fylgst með álagi á þær tengingar sem þið eruð með út úr landinu og við RIX (svona eins og maður man eftir frá því í gamladaga þegar simnet var og hét ... og var rekið af áhugamönnum en ekki bókhöldurum).
Kv. Gunnar
Það passar, mæting er í Ármúla 23
Við erum með ýmsa hluti til að fylgjast með, þ.á.m. Nagios, Cacti og Smokeping en það er allt á læstu neti. Skal taka umræðu um hvort ætti að opna fyrir eitthvað af því en get ekki ábyrgst að það verði gert.
Hæ,Blackened skrifaði:Og ein spurning fyrir okkur Landsbyggðarliðið fyrir norðan.
Eruð þið ennþá bara að bjóða uppá Ljósleiðaratengingar í gegnum gPon hjá Tengir á Akureyri og þá 100/25 eða eru einhver plön um að fara í svissana hjá þeim og fara í 500/500?
Ætla byrja á því að segja að við munum gera breytingar á GPON in general, í dag eru þær tengingar skráðar sem VDSL hjá okkur þar sem þær voru á sama hraða (100/25) en Míla er farin að bjóða upp á 100/100 Mbit/s á GPON og eru aðgangsgjöldin dýrari en á koparnum.
Eins og staðan er í dag erum við ennþá einungis með GPON hjá Tengi (á Akureyri) og það er ekki á borðinu hjá okkur að breyta því. Við þyrftum að koma upp aðstöðu á Akureyri, hraðbraut á milli og vera með menn á staðnum - það er ekki raunhæft akkúrat núna en við erum alltaf að vinna að einhverju nýju, það gæti vel verið að við ákveðum að fara í þetta á einhverjum tímapunkti og þá mun það gerast hratt. Tengir hefur komið vel fram við okkur og vonum við frekar að við getum styrkt það samband með auknum hraða heldur en að fara framhjá þeim.
Kveðja,
Gunnar
Re: Breytingar hjá Hringdu
Langar að nota þráðinn og henda einni spurningu á ykkur með gsm kerfið
Er hjá nova núna og er oft að fá hræðilegt 4g og 3g netsamband bæði á reykjavíkursvæðinu og milli reykjavíkur og snæfellsnes. Hvernig er þeim málum háttað hjá ykkur?
Annars mjög sáttur við ljósnetið hjá ykkur í ólafsvík

B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.
-
- Fiktari
- Póstar: 93
- Skráði sig: Þri 16. Jún 2015 17:59
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Vil bara segja að þetta er alveg frábært hjá ykkur. Ég byrjaði með netþjónustu hjá Hringdu um mánaðarmótin janúar–febrúar og gæti ekki verið ánægðari. Alls ekki amalegt að lækka reikninginn og ekki verra að fá hraðara net líka! Toppþjónusta og náttúrulega frábær nettenging. Takk kærlega fyrir mig.
Reynir Aron
Svona tölvukall
Svona tölvukall
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1227
- Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
- Staðsetning: In the forest
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Flott verð á 500/500, maður gæti alveg farið að íhuga að breyta
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Þetta eru frábærar fréttir!!!
Nú er engin afsökun að vera ekki með 500/500. Frábær verð hjá ykkur.
Uppáhalds fjarskiptafélagið mitt.

- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Love it!
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Re: Breytingar hjá Hringdu
Jæja nú færi ég mig yfir til Hringdu
Intel Core i5 4690K @ ? GHz ♠ Custom water cooling ♠ Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=53292
Re: Breytingar hjá Hringdu
Hef verið með stærstu tengingu hjá Hringdu síðan 2011 þegar ég sagði endanlega bless við Vodafone eftir 6 mánuði, fyrst 50/50 svo 100/100 og fyrir nokkrum mánuðum 500/500 sem kostaði sitt í uppfærslu á ljósleiðaraboxinu heima og fjárfesting í alvöru router. Tókum líka net frá Hringdu yfir dark fiber í notkun í vinnuni í fyrra haust (úr vodafone ADSL, ullabjakk), get ekki mælt nóg með þessum gaurum. Núna lækka ég um 4100kr á mánuði heima, svona á að byrja mánuðinn!
34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Re: Breytingar hjá Hringdu
Snillingar :-)
Ég er fastur hjá Vodafone (er með nettengingu í gegnum vinnuveitanda) og get aðeins vonað að þetta góða útspil ykkar setji pressu á þá.
Annars væri ég líklega farinn yfir til ykkar.

Er þetta rétt skilið hjá mér:
Þeir sem voru í gagnamagni 10GB fara sjálfkrafa í 15 GB gagnamagn og verðið lækkar.
Þeir sem voru í einhverju 50 eða 100 gagnamagni færast sjálfkrafa yfir í 100 Mbit.
Þeir sem voru í 50 eða 100 munu þá hækka í verði, en fá í staðinn ótakmarkað. Hækkunin er sanngjörn fyrir 100 GB en frekar snörp fyrir 50 GB pakkann. Spurning um að fólk sem er í 50 GB sé bent á að það geti fengið frekar 15 GB pakkann og svo keypt auka 50 GB eftir þörfum? Það er þá að enda í 4000 kalli fyrir 65 GB.

- Ofur-Nörd
- Póstar: 259
- Skráði sig: Mið 12. Feb 2014 12:56
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Nei ekki alveg. Við færum engan um pakka nema hann lækki í verði. Viðskiptavinir sem eru í 50 GB og 100 GB haldast í þeim áskriftarleiðum nema þeir óski eftir breytingu.linenoise skrifaði:Er þetta rétt skilið hjá mér:
Þeir sem voru í gagnamagni 10GB fara sjálfkrafa í 15 GB gagnamagn og verðið lækkar.
Þeir sem voru í einhverju 50 eða 100 gagnamagni færast sjálfkrafa yfir í 100 Mbit.
Þeir sem voru í 50 eða 100 munu þá hækka í verði, en fá í staðinn ótakmarkað. Hækkunin er sanngjörn fyrir 100 GB en frekar snörp fyrir 50 GB pakkann. Spurning um að fólk sem er í 50 GB sé bent á að það geti fengið frekar 15 GB pakkann og svo keypt auka 50 GB eftir þörfum? Það er þá að enda í 4000 kalli fyrir 65 GB.
Re: Breytingar hjá Hringdu
Flott. Þá er þetta alveg kýrskýrt. Líst vel á þetta. Held það sé kominn tími til að kveðja 100 GBHringduEgill skrifaði:Nei ekki alveg. Við færum engan um pakka nema hann lækki í verði. Viðskiptavinir sem eru í 50 GB og 100 GB haldast í þeim áskriftarleiðum nema þeir óski eftir breytingu.linenoise skrifaði:Er þetta rétt skilið hjá mér:
Þeir sem voru í gagnamagni 10GB fara sjálfkrafa í 15 GB gagnamagn og verðið lækkar.
Þeir sem voru í einhverju 50 eða 100 gagnamagni færast sjálfkrafa yfir í 100 Mbit.
Þeir sem voru í 50 eða 100 munu þá hækka í verði, en fá í staðinn ótakmarkað. Hækkunin er sanngjörn fyrir 100 GB en frekar snörp fyrir 50 GB pakkann. Spurning um að fólk sem er í 50 GB sé bent á að það geti fengið frekar 15 GB pakkann og svo keypt auka 50 GB eftir þörfum? Það er þá að enda í 4000 kalli fyrir 65 GB.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3065
- Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
- Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Ég var með 100 MB tengingu og 100 GB gagnamagn á 4990 kr. hvar lendi ég núna?
Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
Re: Breytingar hjá Hringdu
beatmaster skrifaði:Ég var með 100 MB tengingu og 100 GB gagnamagn á 4990 kr. hvar lendi ég núna?
Semsagt, gömlu leiðirnar haldast. Ég ætla samt klárlega að fara í 100 Mbit ótakmarkað, enda ódýrara en 100 GB + auka 50 GB nokkrum sinnum á ári.HringduEgill skrifaði:Við færum engan um pakka nema hann lækki í verði. Viðskiptavinir sem eru í 50 GB og 100 GB haldast í þeim áskriftarleiðum nema þeir óski eftir breytingu.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 259
- Skráði sig: Mið 12. Feb 2014 12:56
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Þú helst bara í þeirri leið þar til þú óskar eftir breytingu!beatmaster skrifaði:Ég var með 100 MB tengingu og 100 GB gagnamagn á 4990 kr. hvar lendi ég núna?
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1784
- Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Hvað eru gáttirnar stórar hjá ykkur í dag?
-
- Fiktari
- Póstar: 93
- Skráði sig: Þri 16. Jún 2015 17:59
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Hringdu notar Nova/Vodafone GSM dreifikerfið svo það ætti að vera alveg eins.Viggi skrifaði:Langar að nota þráðinn og henda einni spurningu á ykkur með gsm kerfið
Er hjá nova núna og er oft að fá hræðilegt 4g og 3g netsamband bæði á reykjavíkursvæðinu og milli reykjavíkur og snæfellsnes. Hvernig er þeim málum háttað hjá ykkur?
Annars mjög sáttur við ljósnetið hjá ykkur í ólafsvík
Reynir Aron
Svona tölvukall
Svona tölvukall
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Breytingar hjá Hringdu
Var að koma yfir til hringdu í dag 50/50 Mbit/s 3990 kr leiðin varð fyrir valinu . So far so good
Ætli maður endi ekki fljótlega í 500/500 Mbit/s tengingum hjá ykkur.

Just do IT
√
√