Beyglaður Örgjörvi?
Beyglaður Örgjörvi?
Ég var að installa nýjum örgjörva í vélina mína í dag þegar hann rann úr höndunum á mér og datt í gólfið. Núna þegar ég ræsi vélina kemur ekkert á skjáinn. Er að velta því fyrir mér hvort hann sé bara ónýtur eða hvort það er hægt að gera við hann?
- Viðhengi
-
- 22222.jpg (79.92 KiB) Skoðað 2202 sinnum
AMD Ryzen 1700 | 16gb Corsair Vengance 3200mhz | Samsung 840 pro | AMD Radeon Rx 480 | Asus b350 prime plus | Asus 27" MG278Q 1440p 144hz
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Eru einhverjir pinnar bognir?
Örgjörvar eru svakalega viðkvæm tæki. Líklega ónýtur. Hvernig örgjörvi er þetta?
Örgjörvar eru svakalega viðkvæm tæki. Líklega ónýtur. Hvernig örgjörvi er þetta?
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Nei engir pinnar brotnir en þetta er amd fx 8350
AMD Ryzen 1700 | 16gb Corsair Vengance 3200mhz | Samsung 840 pro | AMD Radeon Rx 480 | Asus b350 prime plus | Asus 27" MG278Q 1440p 144hz
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Þar sem þú varst að skipta um eitthvað í móðurborðinu þá skaltu vera alveg 100% á því að allt sé á sínum stað og sitji almennilega.
Vinnsluminni og slíkt
Prufaðu líka að endurræsa bios, taka rafhlöðuna úr og setja hana aftur í eftir smá stund.
Flettu líka móðurborðinu upp og leitaðu að pípkóðum Flest móðurborð gefa frá sér píp ef eitthvað er ekki í lagi sem er tengt við móðurborðið.

Það þarf líka svakalega litið milli móðurborðsins og örgjörvans til að ekkert virki. Passaðu að allt sé alveg beint og alveg hreint.
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Takk fyrir ráðleggingarnar. Ég setti örgjörvan aftur í og fékk tölvuna til að ræsa sig en núna blue screenar hún þegar hún reynir að boota windows.
AMD Ryzen 1700 | 16gb Corsair Vengance 3200mhz | Samsung 840 pro | AMD Radeon Rx 480 | Asus b350 prime plus | Asus 27" MG278Q 1440p 144hz
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1227
- Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
- Staðsetning: In the forest
- Staða: Ótengdur
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Ef þú varst að skipta um hardware gæti þurft að setja upp nýtt stýrikerfi.
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Það þarf nú yfirleitt ekki að skipta um stýrikerfi þegar skipt er um örgjörva.
Hinsvegar kemur villukóði þegar bsod kemur sem á að gefa þér vísbendingar um hvað sé að valda þessu.
Hvaða móðurborð ertu með? Ertu alveg 100% á því að móðurborðið styðji örgjörvann?
http://www.tomshardware.co.uk/answers/i ... -bsod.html

Og svo er einnig um að gera að fara sparlega með kælikremið. Meira kælikrem != betri leiðni.
-
- Vaktari
- Póstar: 2277
- Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
- Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
- Staða: Ótengdur
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Mér sýnist líka vera alltof mikið kælilkrem á örgjörvanum.
CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:Asus 1080ti strix | RAM: 16gb 3200 Corsair | PSU: RM650x | Case:Corsair 275R |
-
- 1+1=10
- Póstar: 1162
- Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
- Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
- Staða: Ótengdur
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Eins og fólk bendir hér á, þá er allt of mikið kælikrem á örgjörvanum.
Þótt það heiti kælikrem, þá hjálpar það ekki við kælingu, þetta er til þess að koma í veg fyrir að loft sé á milli örgjörvans og kælikerfis.
Þetta eru micoscopic raufar sem þarf að fylla til að loftið hindri ekki hitaleiðnina.

Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
-
- Vaktari
- Póstar: 2277
- Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
- Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
- Staða: Ótengdur
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Pinnarnir líta út fyrir að vera beyglaðir á myndinni,Svo er líka eins og það sé smá kælikrem á þeim á einumstað, og eins og ég var búinn að nefna hérna fyrir ofan að þá er örgjörvinn á kafi í kælikremi.
- Viðhengi
-
- pinnar.jpg (285.92 KiB) Skoðað 1717 sinnum
CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:Asus 1080ti strix | RAM: 16gb 3200 Corsair | PSU: RM650x | Case:Corsair 275R |
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Er ég sá eini sem veiti því athygli að hornið á örgjörvanum nær okkur til vinstri á myndinni er brotið? Það eru alveg pottþétt rásir þarna og mjög ólíklegt að hann virki rétt eftir þetta.
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Það eru líklegast engar rásir þarna, dieið er ekki nema á stærð við fingurnögl og situr á miðri plötunni. Flatarmál kubbsins er bara svona stórt til að koma öllum IO pinnunum fyrir og fyrir optimal hitaleiðni.
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
Re: Beyglaður Örgjörvi?
tdog skrifaði:Það eru líklegast engar rásir þarna, dieið er ekki nema á stærð við fingurnögl og situr á miðri plötunni. Flatarmál kubbsins er bara svona stórt til að koma öllum IO pinnunum fyrir og fyrir optimal hitaleiðni.
Athyglisvert
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Beyglaður Örgjörvi?
hann er með amd cpu ekki intel, svo var spurningin hvort það væru einhverjar rásir sem liggja þarna frá pinnum, ekki rásir í actual sílikon flögunni.snaeji skrifaði:tdog skrifaði:Það eru líklegast engar rásir þarna, dieið er ekki nema á stærð við fingurnögl og situr á miðri plötunni. Flatarmál kubbsins er bara svona stórt til að koma öllum IO pinnunum fyrir og fyrir optimal hitaleiðni.
Athyglisvert
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1591
- Skráði sig: Þri 02. Nóv 2010 20:42
- Staðsetning: Cicada - 3301
- Staða: Ótengdur
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Engin rás á þessum slóðum (virðist vera)
- Viðhengi
-
- 302a994f_image.jpeg (1.71 MiB) Skoðað 1456 sinnum
Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-3800X @ 4.6 ghz -
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3600MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 850W - GTX3080
Samsung 950pro 256Gb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb Raid0 - 2Tb Samsung 1TB 970 EVO CUSTOM Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3600MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 850W - GTX3080
Samsung 950pro 256Gb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb Raid0 - 2Tb Samsung 1TB 970 EVO CUSTOM Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Jú þær eru þar til staðar þótt þú sérð þær ekki, Þær eru mitt á milli og leiða rásir í pinnana.jojoharalds skrifaði:Engin rás á þessum slóðum (virðist vera)
Örgjörva PCB plattan er svipuð og þessari mynd bara mun meira í gangi á plötunni. Það þarf á eithvern veg að leiða frá kubbnum í rétta pinna.
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Mhm, til að koma IO pinnunum fyrir. Það þarf einhver rás að komast í alla IO pinna þannig að ef þetta nær að pinna þá er möguleiki á að eitthvað hafi fudgast.tdog skrifaði:Það eru líklegast engar rásir þarna, dieið er ekki nema á stærð við fingurnögl og situr á miðri plötunni. Flatarmál kubbsins er bara svona stórt til að koma öllum IO pinnunum fyrir og fyrir optimal hitaleiðni.
En m.v. að tölvan hafi ræst sig eftir þetta hlýtur þetta að vera í lagi. Ég skippaði yfir vitleysuna um að það væri of miklu kælikremi að kenna að tölvan ræsir sig ekki og missti af svarinu hans OP þar sem hann tók fram að hún ræsti sig eftir þetta.
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Þetta heitir ekki kælikrem, þetta heitir hitaleiðandi krem.Minuz1 skrifaði: Þótt það heiti kælikrem, þá hjálpar það ekki við kælingu.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
-
- 1+1=10
- Póstar: 1162
- Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
- Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
- Staða: Ótengdur
Re: Beyglaður Örgjörvi?
http://tl.is/product/arctic-cooling-mx-2-30grchaplin skrifaði:Þetta heitir ekki kælikrem, þetta heitir hitaleiðandi krem.Minuz1 skrifaði: Þótt það heiti kælikrem, þá hjálpar það ekki við kælingu.
Stór túpa af Arctic Cooling Mx-2 kælikremi fyrir örgjörva
Sjáum nú til, hérna er varan þýdd sem kælikrem...
http://kisildalur.is/?p=2&id=562
hérna er þetta þýtt sem hitaleiðandi krem.
Ok, þannig að það eru mismunandi þýðingar á orðinu Cooling
Sem er kæling, það sem ég er að benda á er að þetta er ekki notað vegna gífurlegs kæligetu, heldur vegna ófullkominar framleiðslu á örgjörva/kæliplötu.
Annars er þetta bara kítti...fuck it.
Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það
Re: Beyglaður Örgjörvi?
heitir Arctic Cooling Thermal compound (arctic cooling er nafnið á fyrirtækinu...) thermal compound er heitið á vörunni..Minuz1 skrifaði:http://tl.is/product/arctic-cooling-mx-2-30grchaplin skrifaði:Þetta heitir ekki kælikrem, þetta heitir hitaleiðandi krem.Minuz1 skrifaði: Þótt það heiti kælikrem, þá hjálpar það ekki við kælingu.
Stór túpa af Arctic Cooling Mx-2 kælikremi fyrir örgjörva
Sjáum nú til, hérna er varan þýdd sem kælikrem...
http://kisildalur.is/?p=2&id=562
hérna er þetta þýtt sem hitaleiðandi krem.
Ok, þannig að það eru mismunandi þýðingar á orðinu Cooling
Sem er kæling, það sem ég er að benda á er að þetta er ekki notað vegna gífurlegs kæligetu, heldur vegna ófullkominar framleiðslu á örgjörva/kæliplötu.
Annars er þetta bara kítti...fuck it.
en já, of mikið krem getur valdið t.d bsod, þar sem hitinn gæti verið að bsoda tölvunni vegna ófullkomnar þéttingar milli örgjörva og kælingar
AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Þótt sumar verslanir þýði það rangt, enda eins og þú sagðir, þetta kælir ekki neitt, þá þarf ekki að halda í röngu þýðinguna enda er hún ekkert nema villandi.
Ég er ekki að segja að hitaleiðandi krem sé eitthvað official rétta orðið en þetta er gert til að leiða hita, kælikrem er hinsvegar gjörsamlega fráleitt enda kælir þetta ekki neitt.
Ég er ekki að segja að hitaleiðandi krem sé eitthvað official rétta orðið en þetta er gert til að leiða hita, kælikrem er hinsvegar gjörsamlega fráleitt enda kælir þetta ekki neitt.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Re: Beyglaður Örgjörvi?
Geggjað! Ætla að kaupa þetta á morgun og smella þessu á vélina! Hello -273.16°C.Xovius skrifaði:http://iceprakt.is/voru/perozin/