Heilir og sælir,
Ég er kominn hér til þess að segja ykkur frá leik sem ég hef haft mikinn áhuga á frá örófi alda, Deer Hunter...
Þessi leikjasería gengur út á það að þú ert settur í spor veiðimanns og gengur leikurinn út á að veiða stærstu og flottustu dádýrs tarfana. Ekki er neinn söguþráður í leikjunum og enda engin furða, þetta eru simulatorar.
Fyrstu leikirnir féllu í grýttan farveg, þeir þóttu ekki ná fram raunveruleika en þóttu samt gefa góða mynd af sportinu. Þeir voru einnig ekki fyrir alla, því Disney myndin Bambi hafði haft djúpstæð áhrif á suma. Leikirnir þróuðust hratt og voru þeir fljótir að tileinka sér nýjustu tækni í tölvuleikjum.
Þá er komið að nýjasta afsprenginu, Deer Hunter 2005. Þessi leikur notar nýjustu tækni og er Unreal Tournament 2004 vélin notuð til hins ýtrasta. Leikurinn hefur allt það sem áhugamenn um veiðar dreyma um. Þú getur sett saman þínar eigin byssur, valið kúlustærð, liti á skefti og hvaða kíkir kemur með. Úrvalið af byssum er líka fjölbreytt, það eru framhlaðningar, bogar, lásabogar, haglabyssur og rifflar af öllum gerðum og stærðum. Svo eru allar hegðanir á dýrunum sjálfum einkar vel úr garði gerðar. Þau hafa allan varan á og eru fljót að þjóta í burtu við fyrsta þrusk. Síðan eru umhverfin... váá... ég meina... þú veist'... hvað er hægt að segja? Þau eru svo raunveruleg. Það er bara eitthvað við það að sitja í fylgsni á köldum nóvember degi og bíða eftir bráð, manni verður bara kalt, svo raunverulegt er þetta. Eitt sem ég myndi vilja vara fólk á: Þessi leikur er tímafrekur og maður fer oft tómhentur til svefns. Hann getur verið pirrandi, en þegar þú fellir dýr sem þú ert búinn að vera sitja um í langan tíma þá fyllist maður af sælu...
Einnig vil ég benda á að netspilun er bráðskemmtileg en hún virkar einungis ef þroskaðir einstaklingar eru að spila, það er ekkert gaman að vera með einhverjum sem skýtur á allt sem hreyfist....
Allavega, ég vildi benda ykkur á þennan leik, mér finnst hann frábrugðin eldri DH leikjum, það er auðveldara að stíga inn í þennan og byrja. Einnig er þessi leikur fínt afslöppunartól, ekkert stress í honum (nema fyrir óþolinmóða kannski ).
Takk fyrir
Deer Hunter 2005 for teh win!
-
Höfundur - spjallið.is
- Póstar: 415
- Skráði sig: Lau 25. Okt 2003 03:06
- Staðsetning: Mosfellsbær
- Staða: Ótengdur
Deer Hunter 2005 for teh win!
OC fanboy