Var með deyjandi WD ext. disk, hann hitnaði alltaf brjálæðislega þegar ég reyndi að nota hann. Þannig að ég fór að leita að e-u til að kæla hann á meðan ég bjargaði gögnunum, og hvað er mjög kalt, jú ísmolar!
Þetta svínvirkar, áður gat ég komist inn á hann í 3-4 mínútur áður en hann sagði stopp, núna er ég að copy-a 80gig útaf honum án vandræða...
þá gerir maður eins og ég er með þarna og hefur ísmolana í þremur pokum til að vera safe... þetta er bara rétt á meðan ég bjarga gögnunum sko síðan hendi ég disknum... enég ætla að eiga þessa stýringu og búa til nýjan usb firewire flakkarameð góðri kælingu
ÉG gerði þetta og þetta er snilld ég semsagt setti bara örugglega yfir 20 ísmola(hehe) í lítinn plastpoka og batt hnút á hann, setti svo bara það ofan í stærri poka, batt fyrir hann og klippti af endanum(taldi að 2 plastpokar væru nóg trygging). Síðan barasta tróð ég honum inn í rakkana ekkert til vandræða
Breytt: er samt soldið hræddur um að það komi gat á báða pokana :S - Ég bætti öðrum stærri poka við upp á öryggið - ég er ekki með myndavél í augnablikinu, tek mynd seinna
Last edited by Sveinn on Mán 11. Okt 2004 14:05, edited 1 time in total.
Sveinn skrifaði:ÉG gerði þetta og þetta er snilld ég semsagt setti bara örugglega yfir 20 ísmola(hehe) í lítinn plastpoka og batt hnút á hann, setti svo bara það ofan í stærri poka, batt fyrir hann og klippti af endanum(taldi að 2 plastpokar væru nóg trygging). Síðan barasta tróð ég honum inn í rakkana ekkert til vandræða
Breytt: er samt soldið hræddur um að það komi gat á báða pokana :S - Ég bætti öðrum stærri poka við upp á öryggið - ég er ekki með myndavél í augnablikinu, tek mynd seinna
LOL!! einn sem var alveg að missa pointið með upprunalega póstinum Ég myndi ekki telja þetta nógu öruggt/sniðugt/nauðsynlegt til þess að hafa sem langtíma lausn/tilraun/whatever. En drullusniðug hugmynd til síns brúks....... (þ.e. tímabundið lausn til gagnabjörgunnar)
Sem betur fer komu vinir mínir í heimsókn og ég sýndi þeim þetta og einn sagði mér að það myndi myndast raki utan á pokanum, þannig ókei ég tók þetta af samt skondið að harði diskurinn var ískaldur haa
hárrétt... held það hafi samt ekki verið diskurinn heldur staðreyndin að það var ekki gert ráð fyrir neinni kælingu whatsoever inní boxinu sem hann var í... þessvegna er ég að smíða nýtt
ehhe já, ég kom til sveins í dag og hann sýndi mér þessa snilldar hugmynd og eg sagði bara " er pokinn ekki SVOLDIÐ rakur.." en pokinn var alveg ágætlega rakur sko