Uppfærslupælingar. Er með Haf 912 og AsRockP5B-DE

Svara

Höfundur
semper
has spoken...
Póstar: 182
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 13:17
Staðsetning: Hafnarfjörður - Bangkok
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Uppfærslupælingar. Er með Haf 912 og AsRockP5B-DE

Póstur af semper »

Keypti flottasta kassann fyrir unglinginn minn, Haf 912 með rauðum ljósum og alles. Setti allt það besta sem ég átti til inn í hana, en það er greinilega ekki nógu gott núna. AsRock P5B-DE móðurborð með 4 gb DDR 2 minni (kannski meira, man það ekki). Intel core duo örri, ekki sérlega hraður. Hann kvartar að tölvan ráði ekki við leikina sem hann er að spila, hvort sem er online eða ekki. Get ekki sett ótakmarkaðann pening í þetta, en allar hugmyndir og pælingar vel þegnar. Held að móðurborðið verði að fara svo við komum allavega DDR3 í þetta og einhvern öflugri örgjörva. Reyni að finna út úr skjákortinu, en það er nokkuð örugglega ekki upp á marga fiska.
Bankinn er ekki vinur þinn
Skjámynd

Hannesinn
Gúrú
Póstar: 564
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 16:48
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærslupælingar. Er með Haf 912 og AsRockP5B-DE

Póstur af Hannesinn »

Við vinnufélagi minn höfum verið að prufa okkur áfram með svona eldri vélbúnað og með fáum undantekningum, þá virka 6GB DDR2, Q6600 og GTX750 kort alveg ágætlega. Meira að segja Assassin's Creed Unity, sem er drullukröfuharður virkar ágætlega í 1680x1050, þó svo að hann þurfti að yfirklukka greyið Q6600'inn vel yfir 3.0GHz'in til að fá hann smooth.

Ef þú getur reddað þér Q6600 fyrir lítið, þá er það og GTX750ti hugsanlega ódýrasta uppfærslan sem þú getur fengið. Það er verið að selja svoleiðis kort á 14 þús. hérna á vaktinni, sjá http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=63510
Ef ekki, ertu alltaf að fara í uppfærslu upp á einhverja tugþúsundi.
Enjoy your job, make lots of money, work within the law. Choose any two.

Höfundur
semper
has spoken...
Póstar: 182
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 13:17
Staðsetning: Hafnarfjörður - Bangkok
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærslupælingar. Er með Haf 912 og AsRockP5B-DE

Póstur af semper »

Hannesinn skrifaði:Við vinnufélagi minn höfum verið að prufa okkur áfram með svona eldri vélbúnað og með fáum undantekningum, þá virka 6GB DDR2, Q6600 og GTX750 kort alveg ágætlega. Meira að segja Assassin's Creed Unity, sem er drullukröfuharður virkar ágætlega í 1680x1050, þó svo að hann þurfti að yfirklukka greyið Q6600'inn vel yfir 3.0GHz'in til að fá hann smooth.

Ef þú getur reddað þér Q6600 fyrir lítið, þá er það og GTX750ti hugsanlega ódýrasta uppfærslan sem þú getur fengið. Það er verið að selja svoleiðis kort á 14 þús. hérna á vaktinni, sjá http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=63510
Ef ekki, ertu alltaf að fara í uppfærslu upp á einhverja tugþúsundi.
Takk fyrir þessa fínu ábendingu, Finnst þetta hljóma eins og eitthvað sem er gerandi og skynsamlegt. Held móðurborðinu sem sagt. Nú er bara að finna Q6600 einhversstaðar og GTX750ti (kíki á linkinn). Er mhz á minninu ekki soldið issue líka?
Bankinn er ekki vinur þinn

Emarki
Ofur-Nörd
Póstar: 249
Skráði sig: Mán 03. Maí 2010 22:19
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærslupælingar. Er með Haf 912 og AsRockP5B-DE

Póstur af Emarki »

Fyrsta sem maður þarf að vita. Hvað ætlarðu að eyða miklu í þetta ?
Svara