Áhvað að fara útí smá mod.
Herbergið sem ég er í þar sem ég bý er lítið svo ég þurfti að geta eitthvað í gamla Antec P180 sem ég var með við hliðiná borðinu.
Byrjaði grunninn á venjulegu skrifborði frá ikea. minnsta gerðin með skúffu. Heilir 73cm í breidd.
http://www.ikea.is/products/19140
Byrjaði á því að fá tölvu frá vinnufélaga og tætti hana sundur, og eina sem ég hirti var móðurborðaskúffan.
Fór svo og mældi allt og keypti svo járnplötur í þetta og byrjaði að púsla saman. meira svona borað og hent saman en jæja
Eftir nokkrar tilraunir komst þetta allt saman og náði að setja tölvu í þetta.
Ekkert 110% en virkar og það er fínt fyrir fyrstu mod tölvu.
vantar t.d. nokkra hluti í þetta eins og usb að framan og power takka en hver þarf þannig. Starta tölvunni með skrúfjárni ef ég þarf að slökkva allveg annar set ég hana bara í sleep og kveiki með músinni.
Tölvan er frekar hljóðlát nema í leikjum þá byrjar hún smá að öskra en ég á allveg eftir að kíkja betur á að koma hitanum frá að aftan.
Hafði smá tíma á milli handanna þegar ég var í kaffi i vinnuni og mat svo ég nýtti hann í þetta. En nuna er ég byrjaður i skóla svo ég nýti allan minn tíma í að læra. En v2 verður einhverntímann búið til og verður þá í meiri high class skala en þessi tölva.
Hérna koma nokkrar símamyndir. Endilega komið með hugmyndir hvað mætti fara betur og hvað ykkur líkar við þetta.