Varðandi mælingar Símans.
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 305
- Skráði sig: Mán 13. Sep 2010 11:04
- Staðsetning: Jörðin
- Staða: Ótengdur
Varðandi mælingar Símans.
Sælir Vaktarar.
Langaði að forvitnast hvort að einhver ykkar sem er hjá símanum hefur verið með alveg fáranlega háa upphalstalningu. Þá er ég að tala um eitthvað sem hrinlega getur ekki staðist því samkvæmt þeim er ég búinn að upphala 800GB á tæpum mánuði sem er mjög langt frá sannleikanum því ég fylgist með þessu öllu sjálfur og ekki erfitt fyrir mig að lesa upplýsingar úr mínu eigin router monitoring. Ég gerði einnig heiðarlega tilraun til að hringja og tilkynna þeim að það væru villur í þessu hjá þeim en þeir voru ekki lengi að skjóta mínar kenningar niður því jú ég nota utorrent! En einnig sagði ég honum að upload mitt via utorrent nær ekki 40GB yfir mánuðinn þannig að eitthvað annað er að. anyone?

- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Varðandi mælingar Símans.
Loggfællinn í routernum þínum lýgur ekki. Efast stórlega um þessar tölur.
800GB upphal á 28 dögum gerir 28.6GB á sólarhring eða 1.19GB á klukkutíma alla daga og nætur.
Þú ert heppinn að þeir eru ekki byrjaðir að rukka
800GB upphal á 28 dögum gerir 28.6GB á sólarhring eða 1.19GB á klukkutíma alla daga og nætur.
Þú ert heppinn að þeir eru ekki byrjaðir að rukka
Re: Varðandi mælingar Símans.
Er þetta ekki nákvæmlega ástæðan fyrir því að þeir eru ekki byrjaðir að rukka?GuðjónR skrifaði:Loggfællinn í routernum þínum lýgur ekki. Efast stórlega um þessar tölur.
800GB upphal á 28 dögum gerir 28.6GB á sólarhring eða 1.19GB á klukkutíma alla daga og nætur.
Þú ert heppinn að þeir eru ekki byrjaðir að rukka
Mælingarnar hjá þeim eru í einhverju rugli.
Re: Varðandi mælingar Símans.
Senda erindi/ábendingu á Póst og fjarskiptastofnun og eins mögulega neytendastofu bara.
Þó svo þeir séu ekki byrjaðir að rukka þá er bara sjálfsagt mál að gera grein fyrir ruglinu eins og það er í dag.
Þó svo þeir séu ekki byrjaðir að rukka þá er bara sjálfsagt mál að gera grein fyrir ruglinu eins og það er í dag.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Varðandi mælingar Símans.
Gæti verið sýkt tæki sem veldur.
En um að gera að færa sig til fyrirtækis sem rukkar ekki tvöfalt:
http://www.vodafone.is" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.hringdu.is" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.simafelagid.is" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.tal.is" onclick="window.open(this.href);return false;

Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Varðandi mælingar Símans.
Fyrstu 5 dagana í nóv átti ég að hafa uploadað 250 GB, þannig að ég varð að gjöra svo vel að uppfæra pakkan hjá þeim í 600 GB þar sem þessi 300 voru að klárast. Hélt reyndar að þeir myndu ekki byrja með þetta fyrr en 1.des þannig að það var bara stillt á unlimited í uTorrent. Setti strax í 1 kb/s og uploadið hætti að telja svona rosalega, en samkvæmt uTorrent þá var ég einungis búinn að uploada um 50 GB. Hringdi í Símann í einhver 4 skipti og þeir sögðu alltaf að þetta væri bara á mínum enda.
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 305
- Skráði sig: Mán 13. Sep 2010 11:04
- Staðsetning: Jörðin
- Staða: Ótengdur
Re: Varðandi mælingar Símans.
Mun alveg hiklaust fara eitthvað annað þegar ég hef kost á því, fannst þetta bara svo merkilega háar tölur að mér finnst skrítið að það hafi ekki verið fjallað meira um málið. Að mínu mati er þetta hreinlega glæpur og ég er hneykslaður að neytandastofa sé hreinlega ekki búinn að kæra þetta. Hvernig er þetta út í heimi er einhver annar erlendis að rukka fyrir upphal?
Re: Varðandi mælingar Símans.
Hérna í Svíþjóð er það sem ræður verðinu á tengingunni er einungis hraðinn á tengingunni , hér er ekkert talið til eða frá. Ég renndi í gegnum notendaskilmálana á minni tengingu um daginn og ég sá enga klausu um að cappa stórnotendur , þó ég sé viss um að það sé til staðar einhversstaðar klausa um það en ég sá það allavega ekki.
Annars finnst mér þessi upload mæling vera frekar skref aftur í tíman heldur fram í ISP heiminum. Ég var viðskiptavinur símans en þetta hefði ýtt mér frá því að vera það áfram.
Annars finnst mér þessi upload mæling vera frekar skref aftur í tíman heldur fram í ISP heiminum. Ég var viðskiptavinur símans en þetta hefði ýtt mér frá því að vera það áfram.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1726
- Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Varðandi mælingar Símans.
Af hverju segið þið að Síminn sé ekki byrjaður að rukka?
Samkvæmt þjónustu síðunni hjá mér er nýja kerfið byrjað og ég kominn yfir limitið.
Ég gleymdi einu sinni að loka torrent eftir download og uploadaði einhverjum 32gb samkvæmt Bit Torrent og það stemmir við talninguna hjá Símanum, svo það virðist sem það séu engar villur í talningunni hjá mér.
Er bara með 150gb og það er ekkert smá auðvelt að fara uppí það mikið.

Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x
Re: Varðandi mælingar Símans.
Þetta er víst það sem koma skal, Þetta net nutrality eða hvað sem það heitir - til að hindra það að risar eins og netflix geti keypt sér bettri bandvídd og gert út um þá sem hafa ekki efni á svoleiðs. Í stuttu máli þá á hver pakki á netinu að hafa jafnt vægi þá hvort sem það sé erlendis eða innanlands og þar sem við búum á eyju sem heitir Ísland og við erum bundin við sæstrengi sem ég held að ríkið eigi núna þá erum við pretty fuckt þar sem hraði er ekki issuið heldur utanlandssamband.
Símvirki.
Re: Varðandi mælingar Símans.
"Net neutrality" kveður eingöngu á um að öll traffík eigi að vera jöfn, þ.e.a.s. að einn pakki á ekki að fá forgang umfram annan. Það er líka talað um að það megi ekki niðurgreiða eina traffík með gjöldum á aðra. Allavega eins og ég skil "net neutrality", Endilega leiðréttið mig hafi ég misskilið eitthvað.BugsyB skrifaði:Þetta er víst það sem koma skal, Þetta net nutrality eða hvað sem það heitir - til að hindra það að risar eins og netflix geti keypt sér bettri bandvídd og gert út um þá sem hafa ekki efni á svoleiðs. Í stuttu máli þá á hver pakki á netinu að hafa jafnt vægi þá hvort sem það sé erlendis eða innanlands og þar sem við búum á eyju sem heitir Ísland og við erum bundin við sæstrengi sem ég held að ríkið eigi núna þá erum við pretty fuckt þar sem hraði er ekki issuið heldur utanlandssamband.
Einmitt það að við búum á eyju og þurfum að treysta á "dýra" sæstrengi gerir það að verkum að, allavega í mínu huga, að þessi rök um að þetta sé í samræmi við "net neutrality" falla um sjálf sig. Með þessu móti erum við farin að niðurgreiða utanlandsumferðina með því að greiða fyrir innanlands umferð.
Ég er harður í þeirri afstöðu minni að eina leiðin til að fylgja "net neutrality" á eyjunni okkar er að ekki sé sérstaklega greitt fyrir gagnamagn. Eingöngu þannig er öll umferð jöfn. Við höfum lengi verið eitt af mjög fáum löndum þar sem þarf að greiða sérstaklega fyrir erlenda umferð en á sama tíma þá erum við líka eitt af mjög fáum löndum þar sem það eru ekki í boði þjónustuleiðir með ótakmarkaðri umferð. Í flestum, ef ekki öllum, þeim löndum þar sem ég hef verið að skoða þetta þar sem að meginreglu er rukkað fyrir umferð þá eru líka ótakmarkaðir pakkar í boði.
Tek fram að ég tel varla nýlegt útspil Hringdu með þar sem það á aðeins við ADSL en ekki hraðari tengingar. Styð þeirra framtak heilshugar en betur má ef duga skal.
Ég held samt að aðalvandamálið varðandi þetta hér á landi sé einmitt fákeppni í sæstrengjum. Bind þó nokkrar vonir til að Emerald Express strengurinn muni breyta því eitthvað aðeins fyrir okkur neytendur en er ekki bjartsýnn, eins öfugsnúið og það kann að hljóma.
Hér kemur svo skyldu samsæriskenningin: Ég hef einmitt alveg frá því sumar haft grun um að þessi óvænta breyting Símans á sínu viðskiptamódeli sé tilkomin vegna Emerald Express. Ég hef ekki rekist á fréttatilkynningu um að Síminn hafi gert samning um afnot af nýja strengnum og því dettur mér í hug að þeir hafi ekki náð samningum. Síminn hafi því ákveðið að innleiða þessar breytinga svo þeir ættu auðveldara með að fela að þeir væru ekki lengur samkeppnishæfir varðandi erlenda umferð. Vodafone t.d. hefur hins vegar samið um notkun á strengnum (sjá hér).