Nú vantar ykkar aðstoð

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild
Skjámynd

Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Sallarólegur »

Missi ég þá titilinn Internetsérfræðingur? :crying
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

thalez
Fiktari
Póstar: 85
Skráði sig: Lau 08. Júl 2006 12:08
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af thalez »

Komið. Gangi ykkur vel.
"A computer is a machine for manipulating data according to a list of instructions."
Skjámynd

Nördaklessa
</Snillingur>
Póstar: 1025
Skráði sig: Lau 27. Mar 2010 18:16
Staðsetning: Terra
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Nördaklessa »

AntiTrust skrifaði:Aj nei nú er ég fjandakornið (næstum því) orðlaus.

Getum við ekki bara hrúgað saman öllum þessum tonnum af tölvubúnaði sem við eigum flestir inní geymslu að safna ryki og komið okkur fyrir í Kolaportinu eina helgina eða e-ð álíka og látið ágóðann renna í þetta?
Ég á ýmsa tölvuhluti sem safna ryki
MSi z270 Tomahawk | i7 7700k | Msi GTX 1060 Gaming X 6GB | 16GB 3000mhz Corsair vengeance | Samsung 750 Evo 120Gb | WD Black Caviar 640Gb | BenQ G2420HDB | HAF 912 Plus | Og það er alltaf eitthvað hljóð í bílnum mínum...
Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2334
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Klaufi »

Komið,

En þetta finnst mér alveg stórbrenglað kerfi, ég, já...
Ég er eiginlega bara orðlaus.

Viva La Vaktin!
Mynd
Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1478
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af depill »

FreyrGauti skrifaði:Getur þú ekki gert kröfu á Friðjón og látið lýsa hann gjaldþrota, og þá gert kröfu í þrotabúið?
Það nefnilega kostar að gera fólk gjaldþrota, þess vegna er fólk oft ekki gert gjaldþrota ef kröfuhafi heldur að hann muni ekki hafa neitt uppúr krafsinu við það.

donzo
spjallið.is
Póstar: 413
Skráði sig: Fim 19. Jún 2008 18:17
Staðsetning: Rúminu hans Zedro..
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af donzo »

Komið frá mér, gangi þér vel !

Hellfire
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Mið 17. Apr 2013 17:21
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Hellfire »

Tekuru við bitcoin?
er með eitthvað. Mig langar að geta hjálpað þótt það sé ekki mikið
Skjámynd

razrosk
Ofur-Nörd
Póstar: 271
Skráði sig: Þri 15. Sep 2009 20:16
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af razrosk »

komið!
CompTIA A+/Network+/Security+/PDI+
Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2334
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Klaufi »

Hellfire skrifaði:Tekuru við bitcoin?
Já.

Ef ekki, þá ertu ekki að hýsa rétt spjallborð Guðjón.. :lol:

*Edit*
Ef vilji er fyrir því, þá get ég tekið á móti Bitcoin eða öllum öðrum crypto's og komið því yfir í krónur fyrir Guðjón.

BTC Address: 1HzYDm8f8t9oVhgPrn64F2G8r3WvaqZgV4
Mynd
Skjámynd

Orri
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Orri »

Alveg sjálfsagt að leggja Vaktinni lið!

Vonandi færðu þó peninginn frá Friðjóni á endanum, annað væri fáránlegt..
Dan A4 M-ITX - Ryzen 3600XT - EVGA 2080 Super XC Gaming - 32GB DDR4 3200MHz - Gigabyte B550i Aorus Pro AX - 1TB 970 EVO NVMe - LG 38'' 21:9 WQHD+ IPS

Tesy
</Snillingur>
Póstar: 1064
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 01:20
Staðsetning: 108 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Tesy »

Komið frá mér, vonandi greiðir Friðjón á endanum!
ASUS X570-F | Ryzen 9 3900XT með Noctua NH-D15 | ASUS 1080ti | 32GB 3200MHz RAM | 2TB Samsung 970 EVO Plus NVMe
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af GuðjónR »

Varúð, lengsti þráður Vaktarinna!
Sveittur að reyna að svara öllum á einum þræði :)
Dúlli skrifaði:Helvítis leiðindi, hvernig er þetta hægt ? er það ekki hann sem tapaði og hvernig virkar það að greiða bara ekki getur þú ekki gert það sama og hann gerði ?
Nei það get ég ekki gert. Tæknilega séð skuldar Friðjón mér og ég lögmanninum. Skiptir þá engu hvort Friðjón fer í áranguslaust fjárnám eða gjaldþrot.
Magni81 skrifaði:Done!

Gangi þér vel með þetta.
Innilegar þakkir :)
Klemmi skrifaði:Komið frá mér.

Þakka þér kærlega fyrir að halda úti þessum vef, rosalega finnst mér skrítið að þeir sem sýknaðir eru af ákæru geti setið uppi með málsvarnarkostnað, allavega í þeim tilfellum sem hann er innan skynsamlegra marka.
Innilegar þakkir klemmi minn, og takk sömuleiðis fyrir að vera partur af samfélaginu svona lengi :)
En já, þetta er galli í kerfinu.
AntiTrust skrifaði:Aj nei nú er ég fjandakornið (næstum því) orðlaus.

Getum við ekki bara hrúgað saman öllum þessum tonnum af tölvubúnaði sem við eigum flestir inní geymslu að safna ryki og komið okkur fyrir í Kolaportinu eina helgina eða e-ð álíka og látið ágóðann renna í þetta?
Góð hugmynd! ;)
MrSparklez skrifaði:Úff ef ég væri ekki fátækur námsmaður þá myndi ég hjálpa til, alveg ömurlegt situation hjá þér, gangi þér vel með þetta og vona að sem flestir leggji inná hjá þér.
Takk fyrir það ;)
Gunnar Andri skrifaði:Komið frá mér.
Gangi þér sem best með þetta.
Innilegar þakkir Gunni minn.
siggi83 skrifaði:Komið.
Gangi þér vel. :happy
Innilegar þakkir :)
rapport skrifaði:Ég er orðlaus yfir fávitaskap þessa manns og hvernig kerfið virkar.

Af hverju sækir lögfræðingurinn þetta ekki til hans, það er búið að dæma hann til að borga þetta, þú ættir að vera frjáls allra mála.

En ég er sammála hugmyndinni hér að ofan, það ætti að stofna hérna þráð fyrir fólk að setja inn tæki sem hægt er að selja upp í þetta viðbjóðslega óréttlæti.

Ojjj hvað ég er reiður fyrir þína hönd...
Lögmaðurinn minn er á fullu að sækja þetta á hann. Væri það ekki kaldhæðni ef ég yrði svo maðurinn sem keyrir hann í þrot? :evillaugh
depill skrifaði:Skammast mín að ég keypti mús og systir mín síma af þessum gæja ( maður þorir varla að nota verri orð ).

Ég lagði allavega 10 þúsund krónur inná þig Guðjón, vonandi breytir það einhverju þó ekki mikið sé.
Innilegar þakkir fyrir stuðninginn, það munar um minna skal ég segja þér. ;)
Ef þú skammast þín fyrir það, hvað má ég þá segja. :face
rapport skrifaði:Bjó til þráð sem vonandi skilar einhverju...

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=63228" onclick="window.open(this.href);return false;

Mun líka leggja inn á þig seinna í dag.
Flott framtak!
Takk fyrir það :)
Tbot skrifaði:Það sem mig langar að vita:

Er Sigurður búinn að greiða Friðjóni 500.000- ???

Ef ekki, getur þú þá ekki náð að koma þarna á milli þannig að 500.000- fari til þín?
Góð spurning.

Málið er að Sigurður er með heimilistryggingu, honum er gert að greiða Vilhjálmi 500.000.- sem hann hefur þegar gert, þ.e. tryggingin hans. Friðjón er líka með svona tryggingu og rann tryggingin hans líka til Vilhjálms og dugði víst ekki til. Eftir stendur ég er ekki með málsvarnartryggingu og þar sem Friðjón segist ekki geta borgað þá lendur að á mér að greiða þessar 700.000.-
Kristján skrifaði:Komið frá mér.

Lengi lifi Vaktin!!!!
Innilegar þakkir :)
chaplin skrifaði:
Núna tveim mánuðum eftir úrskurð þá segist Friðjón ekki vera borgunarmaður fyrir eigin dómssátt.
Dómarinn: A þú átt að greiða B XXX.XXX
A: Nahh..
Dómarinn: Ahh.. shit.. eee.. okey.. Sorry B, hann sagði nei, þú verður bara að borga sjálfur.

Virkar þetta bara svona?

Annars auðvita styrkir maður þig, sendi PM þegar ég hef lagt inn á þig.
Takk fyrir það :)
Það virkar næstum því svona, dómarinn úrkurðar málsvarnarlaun og sá sem er dæmdur til þess að geiða þau á að gera það. En ef viðkomandi getur það ekki þá er gengið að eigum hans ef einhverjar eru.
Kristján skrifaði:ég hefði haldið hann VERÐI að borga þetta og ef hann getur það ekki þá tekur hann lán eða yfirdrátt og skuldar bankanum frekar
Þetta veltur á siðferðisvitund viðkomandi hvernig hann bregst við, ég mun gera þetta sem þú segir. Bið um ykkar hjálp og það sem vantar uppá verður greitt með yfirdrætti.
Bjosep skrifaði:Er maðurinn búinn að lýsa sig gjaldþrota? Ef ekki, framkvæmir lögfræðingurinn þinn ekki bara fjárnámsbeiðni eða hvað sem það kallast?
Hann er ekki gjaldþrota „ennþá“, en fjárnámskrafa hefur verið lögð fram. Sinni hann henni ekki þá hef ég það í hendi mér að gera hann gjaldþrota.
kiddi skrifaði:Ef ég skil þetta rétt þá var Friðjón tæknilega aldrei skuldbundinn til að borga lögfræðingi Guðjóns, en Guðjón er hinsvegar skuldbundinn sínum eigin lögfræðingi - eðlilega. Hvort sem Guðjón fær greitt eða ekki frá Friðjóni, kemur lögfræðingi Guðjóns ekki við í rauninni, því miður. En áfram með styrkina!
Það er kjarni málsins.
biturk skrifaði:Þér verðið styrktir um mánaðarmôtin
Takk fyrir það ;)
rapport skrifaði:http://www.visindavefur.is/svar.php?id=66676
Varðandi þóknun lögmanns er það að svo að aðilanum sjálfum er dæmdur málskostnaður en ekki lögmanni hans. Málskostnaðarákvörðun dómarans er því ekki bindandi fyrir lögmanninn á neinn hátt þegar hann gerir umbjóðanda sínum reikning samkvæmt sinni gjaldskrá. Reikningurinn getur því verið hærri eða lægri en dæmdur málskostnaður.
Ágætasta útskýring...

Grautfúlt mál og það fer illa í mig á svo margan hátt, sérstaklega hvað ég leyfi mér að hugsa ljótar hugsanir til þessa manns.
Alveg rétt, áfallinn kostnaður var vel yfir milljón. Eiginlega nær tveimur milljónum.
En lögmaðurinn minn var svo almenninlegur að sætta sig við úrskurðinn (700.000) og láta það sem fram af stendur falla niður. Enda blöskraði honum málatilbúnaðurinn.
Nördaklessa skrifaði:Búinn að styrkja þig um 2500kr. :happy Lengi lifi vaktin!
Innilegar þakkir! :)
Perks skrifaði:Takk fyrir að eyða endalausum tíma (og núna stórri fjárhæð) til að búa til vettvang fyrir okkur hina til að nördast.
Styrkur lagður inn með glöðu geði
Innilegar þakkir!
Verð að viðurkenna að á tímabili var ég alveg kominn að því að gefast upp, en þegar ég finn stuðningin, samkenndina og áhuga ykkar á því að halda þessu áfram þá mun ég ekki láta mitt eftir liggja. Uppfært spjallborð fer í loftið fyrir jól! ;)
FreyrGauti skrifaði:Getur þú ekki gert kröfu á Friðjón og látið lýsa hann gjaldþrota, og þá gert kröfu í þrotabúið?
Jú, ég er búinn að rukka hann og þar sem það tókst ekki er búið að gera fjárnámskröfu. Svo sjáum við til hvernig spilast úr því.
Sallarólegur skrifaði:Missi ég þá titilinn Internetsérfræðingur? :crying
Nei nei. :)
thalez skrifaði:Komið. Gangi ykkur vel.
Innilegar þakkir :)
Klaufi skrifaði:Komið,

En þetta finnst mér alveg stórbrenglað kerfi, ég, já...
Ég er eiginlega bara orðlaus.

Viva La Vaktin!
Innilegar þakkir :)
Kerfið er algjörlega rotið inn að beini, það verður bara að segjast eins og er.
depill skrifaði:
FreyrGauti skrifaði:Getur þú ekki gert kröfu á Friðjón og látið lýsa hann gjaldþrota, og þá gert kröfu í þrotabúið?
Það nefnilega kostar að gera fólk gjaldþrota, þess vegna er fólk oft ekki gert gjaldþrota ef kröfuhafi heldur að hann muni ekki hafa neitt uppúr krafsinu við það.
Rétt, held það kosti 265k að keyra einstakling í þrot.
En málið er bara að þú átt bara „eina kennitölu“ á sjálfan þig og gjalþrot þó það fyrnist þá er stimpillinn á þér út ævina.
donzo skrifaði:Komið frá mér, gangi þér vel !
Innilegar þakkir!
Hellfire skrifaði:Tekuru við bitcoin?
er með eitthvað. Mig langar að geta hjálpað þótt það sé ekki mikið
Jájá, ég ætti að geta komið því í verð einhvernvegin :)
Takk fyrir það ;)

1FuWryR9WAtepUjXo2x9zfuapC7WqgEUHm
Klaufi skrifaði:
Hellfire skrifaði:Tekuru við bitcoin?
Já.

Ef ekki, þá ertu ekki að hýsa rétt spjallborð Guðjón.. :lol:
Segðu! hehehehe
razrosk skrifaði:komið!
Innilegar þakkir ;)
Orri skrifaði:Alveg sjálfsagt að leggja Vaktinni lið!

Vonandi færðu þó peninginn frá Friðjóni á endanum, annað væri fáránlegt..
Sammála!
Tesy skrifaði:Komið frá mér, vonandi greiðir Friðjón á endanum. Annað væri fáránlegt!
Innilegar þakkir :)
Já við verðum að vona það besta.

Þegar þetta er sent inn þá er söfnunin búin að standa yfir í 7 klst. og 114.156.- kr. hafa safnast! Þið eruð ótrúlegir. :)
Ég er orðlaus af þakklæti. O:)
Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1197
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af kiddi »

Guðjón R. skrifaði:Verð að viðurkenna að á tímabili var ég alveg kominn að því að gefast upp, en þegar ég finn stuðningin, samkenndina og áhuga ykkar á því að halda þessu áfram þá mun ég ekki láta mitt eftir liggja. Uppfært spjallborð fer í loftið fyrir jól!
Já það er aldeilis samhugur í mönnum hér :) Fyrirmyndarsamfélag! Ég myndi þiggja nokkrar stjörnur undir mitt nafn, búinn að millifæra! Ég hugsa að við getum alveg náð langleiðina upp í þessa upphæð, rúm 100þ. er náttúrulega frábært en samt tæp 600þ. til stefnu!

Svo er þetta frábær hugmynd hjá AntiTrust að selja hluti upp í þennan kostnað, en kannski óþarfi að fara alla leið í Kolaportið. Þegar ég mæti á skrifstofuna eftir helgi ætla ég að finna til eitthvað dót og selja, og einfaldlega fá kaupandann til að millifæra beint á Guðjón frekar en mig. Það er þægileg og fljótleg leið til að „búa til pening úr engu“.
Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 3992
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af jonsig »

Check ! Takk fyrir að umbera mig öll þessi ár Guðjón! þetta er minnsta sem ég get gert .

Tíminn sem tók að leggja inná þig og þegar ég sá þetta , var tíminn sem tók að ná í auðkennislykilinn .
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af GuðjónR »

kiddi skrifaði:
Guðjón R. skrifaði:Verð að viðurkenna að á tímabili var ég alveg kominn að því að gefast upp, en þegar ég finn stuðningin, samkenndina og áhuga ykkar á því að halda þessu áfram þá mun ég ekki láta mitt eftir liggja. Uppfært spjallborð fer í loftið fyrir jól!
Já það er aldeilis samhugur í mönnum hér :) Fyrirmyndarsamfélag! Ég myndi þiggja nokkrar stjörnur undir mitt nafn, búinn að millifæra! Ég hugsa að við getum alveg náð langleiðina upp í þessa upphæð, rúm 100þ. er náttúrulega frábært en samt tæp 600þ. til stefnu!

Svo er þetta frábær hugmynd hjá AntiTrust að selja hluti upp í þennan kostnað, en kannski óþarfi að fara alla leið í Kolaportið. Þegar ég mæti á skrifstofuna eftir helgi ætla ég að finna til eitthvað dót og selja, og einfaldlega fá kaupandann til að millifæra beint á Guðjón frekar en mig. Það er þægileg og fljótleg leið til að „búa til pening úr engu“.
Innilegar þakkir kiddi! :)
Það er nú það minnsta sem hægt er að gera fyrir SUPERDONOR, sem að auki hannaði þessar flottu stjörnur!
Tek undir að þetta er flott hugmynd.
jonsig skrifaði:Check ! Takk fyrir að umbera mig öll þessi ár Guðjón! þetta er minnsta sem ég get gert .

Tíminn sem tók að leggja inná þig og þegar ég sá þetta , var tíminn sem tók að ná í auðkennislykilinn .
Innilegar þakkir ;)
Og takk sömuleiðis fyrir að þola mig... :droolboy
Skjámynd

steinthor95
Ofur-Nörd
Póstar: 231
Skráði sig: Þri 15. Nóv 2011 15:49
Staðsetning: Akureyri og Þingeyjarsveit
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af steinthor95 »

Hundleiðinlegt að lenda í þessu. :thumbsd
En það eru nokkrar krónur komnar frá mér

Gangi þér vel og vonandi næst að safnast eitthvað :happy
Tölvan: Gigabyte P67X-UD3 - Intel Core i5-2500K - corsair H100i - Asus strix Gtx 970 4GB - Mushkin 16GB DDR3 1333MHz - 4 TB HDD - 240 gb Kingston SSD - Thermaltake 850w - Corsair 550D
Jaðartæki: 2x 24" BenQ LED - Razer Blackwidow - Bose Quietcomfort 25 - Logitech G602
Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1463
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af vesi »

Legg inn um mánaðarmót.

En smá pæling.

Á meðan vaktin er að safna þessari upphæð. Þeir seljendur sem ekki eru til í að látta allt andvirði hlutarins sem þeir eru að selja inn á þennan reikning, Hvað um 10% af hverjum seldum hlut á meðan söfnun stendur. Veit ekki hvað eru margar sölur sem fara hér í gegn á mánuði en grunar að það séu nokkrir tugir salna.
MCTS Nov´12
Asus eeePc
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af GuðjónR »

vesi skrifaði:Legg inn um mánaðarmót.

En smá pæling.

Á meðan vaktin er að safna þessari upphæð. Þeir seljendur sem ekki eru til í að látta allt andvirði hlutarins sem þeir eru að selja inn á þennan reikning, Hvað um 10% af hverjum seldum hlut á meðan söfnun stendur. Veit ekki hvað eru margar sölur sem fara hér í gegn á mánuði en grunar að það séu nokkrir tugir salna.
Takk fyrir það!
Flott hvað þið eruð hugmyndaríkir hérna :)
steinthor95 skrifaði:Hundleiðinlegt að lenda í þessu. :thumbsd
En það eru nokkrar krónur komnar frá mér

Gangi þér vel og vonandi næst að safnast eitthvað :happy
Innilegar þakkir!
Já það er hundleiðinlegt að lenda í svona, en ljósið í myrkrinu er samstaðan og að finna að maður er ekki einn í þessu :)
Mér finnst þetta ganga framar björtustu vonum.
Staðan núna: 149.656
Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3105
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Frost »

Ég mun leggja þér lið um mánaðamótin :D
Tölva, 2 skjáir, Varmilo lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól

Aimar
ÜberAdmin
Póstar: 1311
Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
Staðsetning: 201
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Aimar »

Ég finn til með þer. Eg var einn af þeim sem voru kærðir og sektaðir i download malinu fræga. Er ennþa að borða það.

Legg inn þvi mer finnst þessi siða alveg ómissandi og málefnið gott.
GPU: Asus Turbo 2080 ti - GA z590 gaming X - Intel Core i7 11700k - Corsair Rm750x - Noctua-U12S - iCUE 465X RGB Mid-Tower- AORUS RGB Memory DDR4 16GB x4 3733MHz - Samsung 970 EVO 1TB M.2 2280 SSD - Win 10 Pro 64bit - ASUS ROG Swift Curved PG348Q @ 100mhz
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af GuðjónR »

Frost skrifaði:Ég mun leggja þér lið um mánaðamótin :D
Frábært! :)
Aimar skrifaði:Ég finn til með þer. Eg var einn af þeim sem voru kærðir og sektaðir i download malinu fræga. Er ennþa að borða það.

Legg inn þvi mer finnst þessi siða alveg ómissandi og málefnið gott.
Innilegar þakkir!
Gott að heyra, það sem brýtur mann ekki styrkir mann bara. ;)

krat
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 381
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 21:14
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af krat »

Í ljósi þessa máls er þá ekki málið að uppfæra notenda skilmála á þessari síðu? til að fyrirbyggja að nokkuð svona gerist aftur ?
Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2334
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af Klaufi »

krat skrifaði:Í ljósi þessa máls er þá ekki málið að uppfæra notenda skilmála á þessari síðu? til að fyrirbyggja að nokkuð svona gerist aftur ?
Reglur skrifaði:12. gr

Vaktin og ábyrgðaraðilar hennar bera enga ábyrgð á þínum skrifum.
Með því að samþykkja þessa skilmála við nýskráningu staðfestir þú að þú berir sjálf/sjálfur ábyrgð á eigin skrifum.
Þetta á einnig við um tilvitnanir og allt sem birtist undir þínu notendanafni.

Vaktin afhendir fúslega gögn ef það hjálpar hagsmunum kærumála.
Mynd
Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2755
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Staðsetning: Flight level 100
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af zedro »

Þetta er nú meira helvítis ruglið þessi maður á að fara beinustu leið í steininn ef hann getur ekki greitt skuldir sínar....
Skutla smá í púkk þó lítið sé, ekkert grín að vera í 33% og háskólanámi :snobbylaugh
Fractal Design: Define S - Aerocool Strike-X 1100W - ASRock 990FX Extreme9 AM3+ ATX - FX-9590 Vishera w/BeQuiet Silent Loop 360mm - G.Skill 16GB (2x8GB) Sniper 1866MHz DDR3 - Sapphire Fury X - 480GB SSD OS + 2TB DATA
Kísildalur.is þar sem nördin versla

krat
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 381
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 21:14
Staða: Ótengdur

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Póstur af krat »

Klaufi skrifaði:
krat skrifaði:Í ljósi þessa máls er þá ekki málið að uppfæra notenda skilmála á þessari síðu? til að fyrirbyggja að nokkuð svona gerist aftur ?
Reglur skrifaði:12. gr

Vaktin og ábyrgðaraðilar hennar bera enga ábyrgð á þínum skrifum.
Með því að samþykkja þessa skilmála við nýskráningu staðfestir þú að þú berir sjálf/sjálfur ábyrgð á eigin skrifum.
Þetta á einnig við um tilvitnanir og allt sem birtist undir þínu notendanafni.

Vaktin afhendir fúslega gögn ef það hjálpar hagsmunum kærumála.
Greinilega ekki nóg ?
Svara