fannar82 skrifaði:MM, svo er ég að pæla í öðru.. Hvað eru menn að fá á teljaranum hjá þeim ? ég er búinn að vera í 57 gb núna í góða viku :L
Þeir fylgjast ekki með þessu, er með 10Gb tengingu er alltaf yfir og aldrei cappaður eða neitt.
Finnst líka allveg sama ef erlenda netið dettur í út nokkrar mínútur þar sem ég er að fá þetta fjandi ódýrt og netið er bara nokkuð stöðugt nema einstaka sinnum.
Ættirðu þá ekki að stækka tenginguna svo það sé ekki þörf á að cappa?
Virkar Netflix hjá ykkur núna?
Næ að downloda að utan með allt að 4Mbs en einhverra hluta vegna þá virkar Netlixið í Apple TV ekki sem skyldi, krakkarnir að reyna að horfa á teiknó en það frýs á 3 mínútna fresti.
Reyndar finnst mér Netflixið eitthvað skrítið eftir að þeir fóru að beina allri traffík í gegnum London, hvernig er þetta hjá ykkur?
Ég er með ljósnet hjá Hringdu og internetið er ekki búið að vera gott síðustu daga. Færði mig frá símanum og er fyrir vonbrigðum þar sem netið var alltaf steady hjá símanum.
Það sem ég tek mest eftir er ping í tölvuleikjaspilun og stream á netinu er búið að vera hræðilegt.
Last edited by toaster on Fim 30. Okt 2014 21:21, edited 1 time in total.
Þetta London dæmi verður til þess að ég fer annað fyrir jól, er bara að skoða hvort ég fari í ljós og breyti hér heima aðeins með þessu.
Ókeypis Hulu þjónustan og margt annað USA dæmi er farið að hökta og get ímyndað mér að Netflix geri það líka vegna þessara breytinga.
Það er fínt að vera styrkja nýjan aðila á markaðinum EF maður er að fá sömu þjónustu.
Þetta er ekki sama þjónustan og þetta USA dæmi var stórt skref í einhverja átt sem ég hreinlega bara fatta ekki, bara verri þjónusta og sparnaður hjá þeim.
Vá hvað ég er feginn að vera búinn að losna við hringdu. Hætti hjá þeim fyrir ca 1,5 ári og ég sé að fólk er ennþá í mega vandræðum með þá. Það þýðir ekkert að tala við þá í síma. Allir starfsmenn er þrautþjálfaðir í að ljúga.
Nú er ég með Síman sem ISP ( ADSL-12mbs/300GB ) og ég var að spá að færa mig yfir í Hringdu (ADSL-12mbs/ótakmörkuð GB ), hvernig er þjónustan svona í alvöru talað ? Fæ ég stable tengingu ? Eða er þetta bara algjört kjaftæði ? Takk
Það koma alveg tímar þar sem maður er í svona frekar hægu sambandi en það er alveg sárasjaldan allavega hjá mér.
Fæ alltaf svör mjög fljótlega hjá þeim ef ég sendi einhverjar fyrirspurnir sem hafa reyndar ekki verið margar.
Ég er allavega mjög sáttur hjá þeim.
Lenti í smá veseni fyrir svona 2 vikum og þá var víst mikið af nýju fólki að koma inn hjá þeim. Svo er þetta bara búið að vera eins og áður eftir það, mjög fín tenging.
07:16
Kemst bara inná innlendar síður einsog er.
Prufaði að setja á google dns til að gá hvort dns-inn væri málið en þá datt netið alveg út.
07:36
og þá er það komið í lag, ekki viss hvort þetta var vandamál hjá mér eða hringdu.