Ætlaði að smella þessu upp í Hyper-V hjá mér en fékk að mig vantaði storage drivers í install ferlinu á Windows 10. Hef aldrei lent í því áður með uppsetningu á hyper-v vél. Hef ekki nennt að skoða það nánar.
Ég prufaði þetta fyrst á vm og leist vel á, setti svo upp á thinkpad t400s og virkar allt fínt nema fingrafaraskanninn ekkert bsod eða vesen ennþá búinn að (það er rangt að tala um að rönna, ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!) í 2 daga núna
berteh skrifaði:Ég prufaði þetta fyrst á vm og leist vel á, setti svo upp á thinkpad t400s og virkar allt fínt nema fingrafaraskanninn ekkert bsod eða vesen ennþá búinn að (það er rangt að tala um að (það er rangt að tala um að rönna, ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!), ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!) í 2 daga núna
Microsoft hefur farið mikið fram á liðnum árum, sérstaklega í stability. Viðmótið er auðvitað umdeilt, sérstaklega Windows 8 en performance frá Windows 7 onwards er erfitt að finna að. Ég man eftir Windows 95 beta útgáfunum, þar voru böggar í lagi. Blue screen of death er orðið svo sjaldgæft að það vekur oft meiri gleði en hitt, svona eins og að hafa séð fjögurra laufa smára.
Smá nostalgía: Það sóttu þetta margir til gæja sem var kallaður "Blitz" minnir mig í gegnum BBS kerfi á blússandi 28.8k hraða. Ég man ómögulega hvað BBS-ið hét. Man einhver hérna eftir þessu? Hann var til húsa í Kópavogi, Smiðjuvegi minnir mig, og var síðan reyndar handtekinn fyrir verslun með stolna íhluti að mig minnir.
Er þetta virkilega e-ð issue í mjög early beta-release? Ég veit ekki um marga sem myndu reyna að nota svona óþroskaða útgáfu sem daily OS.
Ég ætla rétt að vona að þetta sé vegna þess að þeir eru enn að þróa þetta.
Trúi ekki að þeir myndu hafa þessar klausur í official release - þeir myndu algerlega jarða sig lifandi.
djöfull er lookið flott og setupið á 10 - flott hvernig þeir eru kominr með multble desktop sem er búið að vera forever á linux ahhahah en flott setup og hvernig þeir sameina metro lookið í starttakkan og samt með flottan start takka - er spenntur að sjá hvernig final releas verður.