Lennti í því áðan að ég var að vinna verkefni í tölvunni minni og lyklaborðið og músin hættu að virka. Þannig að ég ákvað að enduræsa tölvunna. Núna þá byrjar hún að ræsa og hættir síðan byrjar og hættir endalaust næ ekki að sjá neitt á skjánum áður en hún hættir .
Getur verið að móðurborðið sé farið eða er þetta eitthvað annað?
Ef þetta er fartölva, eru einhver ljós sem lýsa/blikka þegar þú startar? Þú gætir fundið út hvað er að út frá hljóðum (eins og Stutturdreki er að benda á) eða með ljósunum á tölvunni.
Myndi skjóta á PSU fyrst þú kemst ekki lengra en þetta. Gæti líka verið eitthvað öryggi eða þéttar í PSU eða móðurborðinu en þá ættirðu að fá beeps (þau eru error codes og út frá þeim hægt að fletta upp hvað er með vesen).
Ef þú hefur breytt einhverju hardwdare-i nýlega þá myndi ég prófa að breyta því til baka. Annars er bara að fara yfir öll tengi, prófa að taka allt úr kassanum nema algert minimal til að tölvan ræsi sig (taka td. auka diska og skjákort úr ef þú ert með onboard skjákort) eða fara með hana í bilanagreiningu á verkstæði að eigin vali.
Posus skrifaði:Lennti í því áðan að ég var að vinna verkefni í tölvunni minni og lyklaborðið og músin hættu að virka. Þannig að ég ákvað að enduræsa tölvunna. Núna þá byrjar hún að ræsa og hættir síðan byrjar og hættir endalaust næ ekki að sjá neitt á skjánum áður en hún hættir .
Getur verið að móðurborðið sé farið eða er þetta eitthvað annað?
Rosalega mikið sem kemur til greina, myndi bara fara með hana í viðgerð.