Já þetta er skíta fyritæki hætti hjá þeim í byrjun Des og var aftengdur 12 des en þurfti að borga allan des og svo fékk ég reykn fyrir jan líka og þeir svara hvorki síma né skilaboðum
Fór á facebook síðuna hjá þeim og þeir eiddu því með það sama og lokuðu á að ég gæri skrifað eitthvað á vegginn hjá þeim.
Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.
Tók nokkur ömurleg test á speedtest.net og ákvað að hringja inn í þjónustuverið kl 21:45. Á mínútunni tíu svaraði einhver, þóttist ekki heyra í mér og skellti á, líklega til að komast sem fyrst heim úr vinnunni. Ekki hringt til baka og búið að loka þjónustuverinu þegar ég hringi aftur.
Hraðinn er ömurlegur frá 10mbps og niður í algert sambandsleysi eftir hvaða server maður velur. Eins og áður er tenging hérna heima viðsættanleg.
Ég ætla að mæta á staðinn (Grensásveg) á morgun og krefjast skýringa. Reikna með því að það sé lítið annað í spilunum en uppsögn.
Kv. Hrannar
Last edited by Hauxon on Fim 16. Jan 2014 22:09, edited 1 time in total.
Er nú ekki búinn að fylgjast með öllum umræðunum en mér sýnist á verðinu og öðru að þetta sé ekki þjónusta sem hefur forgang á álagstímum, svona meira afgangs-bandvídd, budget/value tenging, ein af ástæðunum að ég sjálfur er enn hjá símanum nenni ekki að prófa meira, búinn að prófa að vera hjá Símanum fyrir meira en áratug síðan svo Íslandssíma, Ogvoddafokk, Hive, Tal, Vodafone og svo aftur til Símans.
Ég sendi tölvupóst á Ómar Örn Ólafsson tæknistjóra og Garðar Svansson tæknifulltrúa í þeirri von að fá eitthvað feedback.
Sælir mig langar að spyrja ykkur út í hvað er að gerast með útlandatenginguna hjá ykkur. Kvöld eftir kvöld þá er samband innanlands í lagi en samband við útlönd hörmulegt. Ég er margoft búinn að reyna að ná sambandi við þjónustuver undanfarna dagam það er ekki svarað í símann, beiðnum í gegnum netið er svarað 11 tímum seinna eða ekki. Reyndar var svarað eftir korters bið kl 22 og viðkomandi þóttist ekki heyra í mér og skellti á, líklega til að komast sem fyrst heim úr vinnunni. Ekki var hringt til baka.
Engar upplýsingar um bilunina er að finna á vef fyrirtækisins og þá hvers eðlis vandamálið er eða hvort unnið sé að viðgerð. Inni á http://www.vaktin.is" onclick="window.open(this.href);return false; er neikvæður umræðuþráður um Hringdu.is þar sem fjöldinn allur af fólki er að gefast upp. Ég er sjálfur í þeim hópi og kem við hjá ykkur á morgun að segja upp nema eitthvað stókostlegt gerist.
Ég er búinn að prófa all marga servera viðsvegar um evrópu og hraðinn er mest 10mbps og niður í 0.02 eða ekkert.
Þetta er enn neyðarlega með tilliti til þess að fyrir mánuði voruð þið að blása ykkur út af því að hafa tvöfaldað linkinn til útlanda.
Þegar vesenið byrjaði seinasta þriðjudag sagði ég hingað og ekki lengra. Ég er búinn að vera í vandræðum með netið í meira en 6 mánuði og var á einum tímapunkti á mörkunum að færa mig annað. Ég hef átt erfitt með að finna upplýsingar um gæði tenginga frá hringdu á netinu þannig að ég vissi ekki hvort búnaðurinn minn væri að orsaka þetta og ákvað því að bíða lengur. Vefsíðan twitch.tv, sem ég nota mikið, hefur átt við sín eigin vandamál að stríða sem flækti málið ennþá meira hjá mér. Að lokum sagði ég bara ''fuck it'' og skráði mig hjá Hringiðunni seinasta fimmtudaginn (var líka að skoða vodafone eða einhvern með sambærilega ljósleiðaratengingu með hátt gagnamagn) og var ég kominn á netið þeirra innan klukkustundar. Ég get fullyrt að þessa tvo daga hefur netið verið 100% solid og þetta er allt annað líf. Ég sé einungis eftir því að hafa ekki skipt fyrr. Hver er tilgangurinn með að hafa 100/100 ef áreiðanleikinn er ekki til staðar? Gamla 12Mbs ADSLið hjá vodafone virkaði betur fyrir mig en tengingin hjá Hringdu og er ég ekki að ýkja. Ég ætla hinsvegar að bæta því við að ég get ekki útilokað vandamál sem mér gæti hafa yfirsést en þetta lítur ekki vel út hjá hringdu. Þegar samningurinn hjá Hringiðunni rennur út (6 mánuðir) mun ég endurskoða hvort ég haldi áfram hjá þeim en so far so good.
Eins og þetta hefur verið hjá Hringdu er auðvelt að prófa þetta á http://www.speedtest.net" onclick="window.open(this.href);return false; þú þarft bara að velja nýjan server (ekki íslenskan).
Það mætti kannski minnast á það að Símafélagið virðast vera með næstódýrustu VDSL tenginguna - 250GB kosta 210 kr meira en hjá Hringdu. Þeir eru líka með atburðaskrá...
Fór í hádeginu á Grensásveginn. Svo virðist vera sem það sé búin að vera einhver DoS árás á þá sem þeir ráða ekkert við.
Maðurinn sem ég talaði við svaraði öllu mjög loðið og talaði svo lágt að eg heyrði varla í honum. Þ.a. að ég ákvað bara að
segja upp fyrst ég var þarna á staðnum. Óskaði þeim góðs gengis í baráttunni og keyrði beinustu leið yfir til Hringiðunnar
og skráði mig hjá þeim.
Það er eiginlega sorglegt hve vonlaust þetta var allt saman, loðin eða léleg svör og ekkert gert til að telja manni trú um að
þeir vissu hvað þeir væru að gera.
er búinn að vera þarna nánast frá upphafi og er mjög sáttur...er kannski ekkert í brjáluðum netleikjum en það eru mjög fá skipti sem ég hef verið netlaus.