lyfsedill skrifaði:ég kemst ekki á erlendar síður og msn er úti. vaktin opnast ekki (er með pung hér þess vegna inni) og sumar íslenskar opnast ekki (t.d deildu.net)
var að lenda í því sama, restartaði router og það virkar allt.
er að lenda aftur á þessum sólarhring í vandræðum, eru aðrir í vanda með hringdu? núna ? ef menn eru vakandi? hef restartað router her og ekkert gerist?
Alveg finnst mér það ótrúlegt að þetta sé ennþá vandamál hjá þeim, var alltaf í rugli hjá þeim þegar ég var í gömlu íbúðinni og gafst upp og fór yfir til Vodafone þegar ég flutti og það hefur virkað mjög vel.
Hvernig getur Hringdu ekki verið búið að laga þetta, ég gaf þeim alveg séns fyrst því þeir eru nýtt fyrirtæki og það geta verið einhver vandamál og svona en hvernig geta verið ennþá regluleg vandamál með tenginguna þeirra enn í dag?
Hvað fær þig til að segja að það sé ennþá vandamál að allt sé í rugli hjá þeim, regluleg vandamál með tengingar og ekki búið að laga ástandið eins og það var fyrir nokkrum mánuðum? Einn notandi sem segist vera með lélegan hraða í augnablikinu?
kallamigklett skrifaði:Nei er það !!? Fínt að vera með ónothæft net fram yfir mánaðarmót. Farinn á 56K modem-ið mitt over and out.
Whut? Greenland Connect er einn af þrem sæstrengjum, það eru nægar varaleiðir í boði. Eini munurinn er að þeir ISPar sem routa mikið í gegnum GC gætu fundið fyrir hærra latency þar sem leiðin lengist talsvert.
Enginn að tala um að þetta slit valdi ónothæfu neti, það eru alltaf varaleiðir. Ef erlent net liggur alveg niðri er það ekki vegna þessarar bilunnar.
PS. Þetta er SÆ-STRENGUR. Það er ekki beint hægt að skjótast bara á staðinn og splæsa þessu saman samdægurs.
Við erum ekkert bara að tala um hærra latency, transfer rate er líka bara í algjöru lágmarki.
Þessar varaleiðir eru þá bara svona lélegar.
Geri mér alveg grein fyrir því að þessum SÆ-STRENGJUM er ekkert bara kippt í lagið 1,2 og 3.
Maður bíður þá bara rólegur eftir því að þessi viðgerð sé búin, eitthvað fram í Júní væntanlega.
kallamigklett skrifaði:Við erum ekkert bara að tala um hærra latency, transfer rate er líka bara í algjöru lágmarki.
Þessar varaleiðir eru þá bara svona lélegar.
Geri mér alveg grein fyrir því að þessum SÆ-STRENGJUM er ekkert bara kippt í lagið 1,2 og 3.
Maður bíður þá bara rólegur eftir því að þessi viðgerð sé búin, eitthvað fram í Júní væntanlega.
Bara svo það sé á hreinu þá hef ég engar haldbærar upplýsingar um það hvort og hvaða varaleiðir Hringdu er að nota - vissi bara af þessari bilun og datt því í hug að hún gæti verið tímabundinn orsakavaldur á meðan það væri verið að breyta leiðum. En ef þeir hafa verið að treysta aðallega á GC fyrir USA traffík og transfer rate er eins og þú segir í lágmarki, þá má jafnvel draga þá ályktun að varagáttirnar þeirra séu ekki nægilega stórar.