Sælir vaktar félagar, ég er að velta fyrir mér að versla mér fartölvu áður en ég fer í kerfisfræði í HR. Mér hefur lengi dreymt um Lenovo og er mest á því að fá mér slíka, en auðvitað skoða flestar nema Apple þar sem ég er með enga kunnáttu á OSX. Hvaða tölvu mælið þið með? Budget er 200.000kr.
Endilega látið flakka linka á þráðinn, þið sem eruð með mikla reynslu af fartölvum
Ég er í tölvunarfræðinni í HR og ég hefði verið til í að vera með macbook frá upphafi. Búinn að vera með thinkpad öll árin samt þannig að vélin sem chaplin er að selja er ekki slæm.
Eina sem ég myndi passa væri að hafa háa upplausn, það er ömurlegt að vera með 720p í þessu námi.
SolidFeather skrifaði:Ég er í tölvunarfræðinni í HR og ég hefði verið til í að vera með macbook frá upphafi. Búinn að vera með thinkpad öll árin samt þannig að vélin sem chaplin er að selja er ekki slæm.
Eina sem ég myndi passa væri að hafa háa upplausn, það er ömurlegt að vera með 720p í þessu námi.
Aðallega þá útaf upplausninni? Eru þá 1080p windows vélar ekki líka fín lausn?
Fékk svaka díl á 2 mánað Zenbook hérna á vaktinni, og ég mæli hiklaust með þessum vélum.
13" 1080p., um 1,6 kg á móti 2,6 á þessum Thinkpad vélum.
Miklu svalari tölvur fyrir vikið. Asus hefur líka alltaf komið vel út í bilanatölum.
Létt, há upplausn, þunn og öflug. Hin fullkomna skólavél að mínu mati. Hef verið að spila Left4Dead 2 á minni, slær ekki feilpúst.
Ótrúleg vél.
Er einnig með Zenbook UX31A minnir mig. Hörku vél. Eina downside er lyklaborðslayoutið. Èg skipti alltaf yfir á US layout til að forrita. Annars þarf að remappa þar sem það vantar <> takkann.
KermitTheFrog skrifaði:Er einnig með Zenbook UX31A minnir mig. Hörku vél. Eina downside er lyklaborðslayoutið. Èg skipti alltaf yfir á US layout til að forrita. Annars þarf að remappa þar sem það vantar <> takkann.
Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 2
Var einmitt að spá í þessu áður en ég verslaði mína.
Komst svo að því að það er í rauninni betra að venja sig á US layout, líklega vegna þess að það voru forritarar sem komu að hönnun US layout en einhverjir plebbar sem ákváðu íslenska layoutið. En ef fólk meikar það ekki er rosalega einfalt að mappa takka.
Eruði þá báðir með Zenbooks frá Tölvutek? Hýtur að vera hægt að fá þessar vélar með UK layouti hjá Tölvulistanum eða einhverjum sem panta þessar vélar frá Evrópu.. Annars hef ég alltaf notað US layout lyklaborð, kærustunni til mikils ama.
Sallarólegur, ertu með UX32VD(með gt620m kortinu) eða ux31a vél?
Kauptu þessa sem Chaplin er að selja og settu í hana SSD. Átt pening eftir til að kaupa þér 22-24" skjá, lyklaborð og mús til að hafa heima tengt við dokkuna. Það er BARA snilld.
SolidFeather skrifaði:Ég er í tölvunarfræðinni í HR og ég hefði verið til í að vera með macbook frá upphafi
Þarftu nokkuð að hafa Windows á henni uppá einhvern ákveðinn forritunarhugbúnað eða er allt til staðar á OS X?
Ef þú ert með OSX þá þarftu líklegast að skella upp virtual vél/dual boot til að geta notað Visual Studio sem er notað í einum áfanga. En á móti kemur að þú þarft líka að setja upp virtual vél/dual boot með linux í ýmsum áföngum.
KermitTheFrog skrifaði:Er einnig með Zenbook UX31A minnir mig. Hörku vél. Eina downside er lyklaborðslayoutið. Èg skipti alltaf yfir á US layout til að forrita. Annars þarf að remappa þar sem það vantar <> takkann.
Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 2
Var einmitt að spá í þessu áður en ég verslaði mína.
Komst svo að því að það er í rauninni betra að venja sig á US layout, líklega vegna þess að það voru forritarar sem komu að hönnun US layout en einhverjir plebbar sem ákváðu íslenska layoutið. En ef fólk meikar það ekki er rosalega einfalt að mappa takka.
Hvaða takka getur maður mappað án þess að missa annan mikilvægan?
Jimmy skrifaði:Eruði þá báðir með Zenbooks frá Tölvutek? Hýtur að vera hægt að fá þessar vélar með UK layouti hjá Tölvulistanum eða einhverjum sem panta þessar vélar frá Evrópu.. Annars hef ég alltaf notað US layout lyklaborð, kærustunni til mikils ama.
Sallarólegur, ertu með UX32VD(með gt620m kortinu) eða ux31a vél?
Jam, mín er UX31A úr Tölvutek með Intel 4000 korti, 4GB og 128 SSD... ótrúlegt hvað það kort er að afreka.
arnarg skrifaði:
Hvaða takka getur maður mappað án þess að missa annan mikilvægan?