Var hver tjónaður ? Ég veit ekki til þess að hann hafi nokkurn tímann lent í tjóni.. Ég veit ekki hvort þetta passi saman, ég hef voðalega lítið vit á Alfa Romeo hehe
Ah, sé það núna.. Ég veit ekki afhverju þetta er svona, ég skal spyrja eigandann
*Edit: Bíllinn lenti ekki í tjóni í hans eign, að hans sögn. Þetta er ekki laust, bara hornið búið að losna.. Ég pósta bílnúmerinu um leið og ég veit það svo menn geti tékkað á tjónasögu bílsins á skattur.is (sjá póstinn frá GuðjónR)
Last edited by aggibeip on Mán 18. Feb 2013 22:56, edited 1 time in total.
Það er hægt að fara á skattur.is og logga sig inn og sækja ferilsskrá bílsins.
Þar kemur allt fram, tjón, skoðanir, skráning km. mæla á milli skoðana.
Hvernig hafa verið eigendur og margt fleira.
er bíllinn keirsluhæfur í þessu ástandi? er eitthvað sem er vitað um að þurfi að gera fyrir skoðun fyrir utan skiptinguna? hvernig lýsa leiðindin sér
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
aggibeip skrifaði:Hmm.. Ég veit ekki hvað svoleiðis kostar, en örugglega dýr ef þú kaupir hana nýja.
Annars fann ég gírkassa og kúplingu á bland, á eitthvern 50þ kall saman. Væri ekki málið að breyta honum bara í bsk
Jájá. Því það tekur ekki nema svona korter að henda þessu á milli....
Það er víst talsvert mál að breita ssk yfir í bsk. Efast sárlega um að einusinni festingarnar stemmi á milli.
biturk skrifaði:er bíllinn keirsluhæfur í þessu ástandi? er eitthvað sem er vitað um að þurfi að gera fyrir skoðun fyrir utan skiptinguna? hvernig lýsa leiðindin sér
Sko mér skilst að skiptingin sé ekki farin, svo það er hægt að keyra hann og í raun ekkert sem ég veit af sem þarf að gera fyrir skoðun. Ég skal spyrja eigandann út í skiptinguna og bílnúmerið og pósta svo hérna svo menn geti farið yfir eigendaferil bílsins og svona
Ég á svona bíl árg 2000. Verkstæðiskallinn minn pantaði skiptinguna á netinu fyrir 70 þúsund og tók svo 100þús fyrir að skipta, sem var mjög mikil vinna.
Virkar þó mjög vel í dag. Frábært að keyra hann, sérstaklega út af Selec speed skiptingunni þannig að þú getur keyrt hann eins og beinskiptan án þess að
þurfa að kúpla. Getur notað plús og mínus í stýrinu eða stillt á city mode sem er sjálfskipting.
Sé ekki fram á að skipta yfir í annan bíl á næstu árum á meðan þessi virkar.
Númerið á bílnum er: RU-890
Airbagheilinn er bilaður, airbagið hefur allavega ekki sprungið út á meðan núverandi eigandi hefur átt hann..
Skiptingin: Það er hægt að keyra bílinn, hann er góður í langkeyrslu, hann er lengi að skipta milli gíra..
helduru að hann vilji skipta á beinskiptri octaviu, sömu árgerð með gírkassa keirðann 60 þúsund ?
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!