Er með smá pælingu varðandi hátalara reddingu, ég er með par af Jamo digital 120
Vandamálið mitt er að gúmmí hringirnir í stóru keilunum er byrjaðir að morkna. Var að velta fyrir mér hvort að einhver hefði reynslu af því að redda þessu vandamáli með því að kaupa nýja hringi http://www.speakerrepairshop.nl/index.p ... 52&lang=EN
Eða ef einhver hefði hugmynd um hver tæki að sér að gera við svona?
Ég talaði við þá í ormsson og þeir áttu ekki til par af keilum sem pössuðu, þannig að ég var að vona að þetta dygði. Allavega þekking/reynsla/ábendingar vel þegnar.
Annars er eitt sem hátalaraframleiðendur mæla með og kann að koma mörgum á óvart, það er að það fer yfirleitt betur með hátalara að nota þá mikið heldur en að "spara þá". Þá er að sjálfsögðu ekki verið að mæla með því að hafa þá hátt stillta heldur bara almenna notkun.
Ég er með Bose 901 sett sem að ég þarf að panta svona hringi í og gera upp, þegar að þú ert kominn út í þessar pælingar er um að gera að googla nógu andskoti mikið, það er alveg sér community hópur sem lifir fyrir þetta s.s að kaupa gamla hátalara,magnara ofl á bílskúrssölum,seccond hand búllum o.s.f.v
Oft eru menn að fá hrikalega flotta vöru fyrir brota brot af núverandi "retail" price á vöru sem að hefur verið sama og eins gegnum áratugi, samanber bose 901 eins og ég er með.
Enn þetta er auðvitað þannig eins og með flest allt annað að því meira sem að þú getur gert sjálfur, því meira spararu og lærir.
Ég ætlaði mér einmitt að taka slatta af myndum og posta hér inn þegar að ég fer í þetta með mitt sett, veit s.s ekki hvursu mikill áhugi er fyrir því?
Örn ingi skrifaði:......
Ég ætlaði mér einmitt að taka slatta af myndum og posta hér inn þegar að ég fer í þetta með mitt sett, veit s.s ekki hvursu mikill áhugi er fyrir því?
Það er allaf gaman að sjá myndir og sjá hvað fólk er að brasa
Ég væri til í að sjá detailed step by step myndir af þessu hjá þér.
Er einmitt sjálfur með gamla Jamo CD Power 25 hátalara inni í geymslu sem ég væri til í að laga.
Ryzen 7 3700x@4.5ghz - ASRock X570 Steel Legend - 32gb G.Skill Trident Z @ 3600mhz/Cl15 - PowerColor Radeon RX 6900XT Red Devil 16GB /- Be quiet! Straight Power 11 Platinum 1000W - Phanteks Eclipse P400S
Er með smá pælingu varðandi hátalara reddingu, ég er með par af Jamo digital 120
Vandamálið mitt er að gúmmí hringirnir í stóru keilunum er byrjaðir að morkna. Var að velta fyrir mér hvort að einhver hefði reynslu af því að redda þessu vandamáli með því að kaupa nýja hringi http://www.speakerrepairshop.nl/index.p ... 52&lang=EN
Eða ef einhver hefði hugmynd um hver tæki að sér að gera við svona?
Ég talaði við þá í ormsson og þeir áttu ekki til par af keilum sem pössuðu, þannig að ég var að vona að þetta dygði. Allavega þekking/reynsla/ábendingar vel þegnar.
Ég þarf að gera það sama við nákvæmlega sömu hátalara, hvernig gekk þetta? Var þetta eitthvað mál?
Ég fatta ekki alveg þennan "Centering" part, til hvers er hann, eftir hverju er ég að leitast þegar ég kem við hátalarann,, það hlítur að skipta einhverju máli hvert ég set klemmurnar?