Hátlarasnúrur
Hátlarasnúrur
Hvar er best að kaupa hágæða svoleiðis ?
Sjónvarp: Samsung UE49KS8005TXXE Blu-ray spilari: Samsung UBD-K8500XE Magnari: Onkyo TX-NR515 Hátalarar: Jamo S 626 HCS Bassabox: Jamo J 12 SUB Hljóðkerfi: 5.1
Sjónvarp: Samsung UE32K5105AKXXE Blu-ray spilari: Samsung BD-J4500RXE
Sjónvarp: Samsung UE32K5105AKXXE Blu-ray spilari: Samsung BD-J4500RXE
Re: Hátlarasnúrur
Miðbæjarradíó á þetta til í öllum stærðum, gerðum og litum ... Íhlutir líka.
Svo fæst þetta í Elko, Sjónvarpsmiðstöðinni, Heimilistækjum o.sv.frv.
Líka í Byko og Húsasmiðjunni.
Skv. Minni reynslu þá voru bestu kaupin í Miðbæjarradíó-i, mikið úrval og fínt verð.
Svo fæst þetta í Elko, Sjónvarpsmiðstöðinni, Heimilistækjum o.sv.frv.
Líka í Byko og Húsasmiðjunni.
Skv. Minni reynslu þá voru bestu kaupin í Miðbæjarradíó-i, mikið úrval og fínt verð.
-
- Vaktari
- Póstar: 2260
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Hátlarasnúrur
Gæði á hátalarasnúrum eru nú ekkert voðalegt issu nema að þú sért að fara í eitthvað rosalegt hljóðkerfi.
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
Re: Hátlarasnúrur
Er að fara að víra upp stofuna hjá mér fyrir hátalarakerfi sem er væntanlegt um mánaðarmótin og gerði þau mistök að byrja á að skoða verðin í monoprice oþh úti.
Er verðið á hátalaraköplum hérna heima eitthvað grín? ca. 500kr. meterinn á flestum stöðum, ódýrast 120kr pr. meter í MBR sýndist mér, sem er samt sem áður 3-4falt dýrara en í UK/USA.
Er sniðugra með þetta eins og svo margt, margt annað að panta þetta að utan frekar en að versla hérna heima?

~
Re: Hátlarasnúrur
Ég myndi panta þetta að utan ef þú ert að fara að versla þetta í einhverju magni. Verðið hérna er algjört grín.
PS4
Re: Hátlarasnúrur
Einhver ódýrasta lausnin á þessu er að nota fjölþætta lampasnúru sem er o,75 mm2 og er oftast margfalt ódýrari en þessar svoköllu hátalarasnúrur.
Það er ekki hægt að fara hærra í sverleika í tveggja víra rafmagnssúrum, til að fá meiri sverleika verður að nota þriggja víra og þá er bara að sleppa því að nota einn vírinn.
Það er ekki hægt að fara hærra í sverleika í tveggja víra rafmagnssúrum, til að fá meiri sverleika verður að nota þriggja víra og þá er bara að sleppa því að nota einn vírinn.
Re: Hátlarasnúrur
Mig vantar í það minnsta sennilega 50metra, ætli maður versli þetta ekki að utan þar sem ég hef alveg einhverja ~10daga til að græja þetta.
Ætti þá að geta kippt með ódýrum banana plöggum í leiðinni, hef ekki haft pung í að skoða hvað stykkjaverðið á þeim er hérna heima.
Ætti þá að geta kippt með ódýrum banana plöggum í leiðinni, hef ekki haft pung í að skoða hvað stykkjaverðið á þeim er hérna heima.
~
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hátlarasnúrur
Þú býrð s.s. ekki í Fellunum?Jimmy skrifaði: 50metra
Re: Hátlarasnúrur
Kapallinn í annan frontinn er sennilega rétt undir 12m.. Er 0.75mm2 eða 1mm2 nægilega sver kapall í þetta?Tbot skrifaði:Einhver ódýrasta lausnin á þessu er að nota fjölþætta lampasnúru sem er o,75 mm2 og er oftast margfalt ódýrari en þessar svoköllu hátalarasnúrur.
Það er ekki hægt að fara hærra í sverleika í tveggja víra rafmagnssúrum, til að fá meiri sverleika verður að nota þriggja víra og þá er bara að sleppa því að nota einn vírinn.
Er að sjá menn mæla grimmt með 16AWG köplum fyrir <15m, sem eru hvað ~1,3mm2?
Er fastur á milli þess að hafa engann áhuga á að borga alltof mikið fyrir einhverja HIQMEGAULTRA merkjavöru sem gerir 0 fyrir mig og svo að þurfa að draga allt aftur í afþví að ég fór í aaaðeins of þunnan kapal.
~
Re: Hátlarasnúrur
1.5q lampasnúra dugar þér alveg.
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
Re: Hátlarasnúrur
Getur fengið 2x1q lampasnúru sem er hitaþolinTbot skrifaði:Einhver ódýrasta lausnin á þessu er að nota fjölþætta lampasnúru sem er o,75 mm2 og er oftast margfalt ódýrari en þessar svoköllu hátalarasnúrur.
Það er ekki hægt að fara hærra í sverleika í tveggja víra rafmagnssúrum, til að fá meiri sverleika verður að nota þriggja víra og þá er bara að sleppa því að nota einn vírinn.

i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
Re: Hátlarasnúrur
á 2x1,5q má troða hátt í 2300W… Þarft ekki að hafa áhyggjur af afli né hita.
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1695
- Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
- Staðsetning: DK
- Staða: Ótengdur
Re: Hátlarasnúrur
Venjuleg 0,075q lampasnúra ætti að duga þér vel afllega séð fyrir lítið kerfi.
Ef við gefum okkur að snúran beri ekki meira en 10A og sért að keyra 8 ohm hátalara.
P = R*I^2
P = 8*10^2
P = 800 w
koparinn er óhreinni í lampasnúrunni heldur en í hátalarasnúru og því tapast einhver hljóðgæði á flutningnum. Hvort það sé heyranlegur munur er eflaust personubundið og hægt að rífast um það. En skiptir eflaust meira máli eftir sem kerfin eru betri.
Mín skoðun er allavega sú að ef ég væri með flott kerfi sem hefur kostað eitthvað þá myndi ég kaupa mér hefbundna hátalarakappla úr miðbæjarradió.
Ef ég væri með lítið kerfi færi ég í Reykjafell ég fengi mér lampasnúru á kefli.

Electronic and Computer Engineer
Re: Hátlarasnúrur
Skrifaðu eitthvað eins og "The trouth about Speaker cables" í Google og lestu þig til.
Því þykkari sem kapplarnir eru því betri. Kaplarnir gera eingöngu eitt. Þeir færa straum frá magnara í hátalarana.
Því grennri kaplar því meira viðnám og minni heildarafköst.
Í raun þá er þetta eins og pípulagnir.
Þú færð meira magn af vatni í gegnum þykkari rör heldur en grennri.
Mbk
Hákon

Tollar, virðisauki og gjöld eru greidd af öllum vörum sem ég sel.
Hakon78 (hjá) Hotmail.com
Hakon78 (hjá) Hotmail.com
Re: Hátlarasnúrur
Þar sem þú ferð nú að minnast á eðlisfræðina þá flytja þykkari kaplar hærri tíðnir verr en þeir mjórri. Það þýðir ekki að líkja þessu við pípulögnina, því hann fær ekki „meira“ hljóð úr sverari kapli. Hann fær „meira“ hljóð með 10x öflugri magnara.hakon78 skrifaði:Skrifaðu eitthvað eins og "The trouth about Speaker cables" í Google og lestu þig til.
Því þykkari sem kapplarnir eru því betri. Kaplarnir gera eingöngu eitt. Þeir færa straum frá magnara í hátalarana.
Því grennri kaplar því meira viðnám og minni heildarafköst.
Í raun þá er þetta eins og pípulagnir.
Þú færð meira magn af vatni í gegnum þykkari rör heldur en grennri.
Mbk
Hákon
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
Re: Hátlarasnúrur
http://www.roger-russell.com/wire/wire.htm#introduction" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hátlarasnúrur
Langar til að koma með einhvern djók varðandi Monster kapla etc. en bara hreinlega nenni því ekki 

Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Hátlarasnúrur
JReykdal skrifaði:Langar til að koma með einhvern djók varðandi Monster kapla etc. en bara hreinlega nenni því ekki
þeir voru bornir saman við vír úr herðatré og í þeirri tilraun tók enginn eftir mun á hljómgæðum

massabon.is
Re: Hátlarasnúrur
Veskið gerði þaðvesley skrifaði:JReykdal skrifaði:Langar til að koma með einhvern djók varðandi Monster kapla etc. en bara hreinlega nenni því ekki