klikkaður kassi!
Ef að myndir í undirskriftum eru bannaðar, þá þurfiði að taka það fram. Ég sé enga reglu um það. Kiddi, að þetta sé gróf mynd er einungis þitt álit. Er þér leyfilegt að breyta undirskriftum og texta eftir þínum eiginn geðþótta? Það þykja mér afar slæm vinnubrögð ef slíkt tíðkast á meðal stjórnenda á vaktinni.
count von count
Ég er búinn að breyta myndinni svo að þeim viðkvæmu misbjóði ekki. Vona að þetta sé í lagi núna Kiddi. Þessi undirskrift verður svona þangað til að ég sé skýra reglu um að það sé bannað að hafa mynd í undirskrift. Þar til það gerist getur maður ekki annað gert en tekið þessum aðgerðum sem fordómum og einkennandi fyrir homophobic einstaklinga!
count von count
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1197
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
HalliHG: Já það er mitt álit að 1) myndir eru ekki vel liðnar, þú ert sá fyrsti sem setur inn mynd og því höfum við ekki verið búnir að setja upp reglur um það hingað til, en þú hefur sýnt fram á að þessar reglur þurfi greinilega að vera til staðar, sérstaklega ef þú ætlar að þrjóskast til að setja inn myndina þína aftur og aftur. (Sem endar með að ég eyði þér út, að eigin geðþóttaákvörðun) 2) Við erum ekki hrifnir af nöktu holdi á vefnum okkar, hvort sem það er karlkyns eða kvenkyns, þetta er vefur tölvuáhugamanna. Ef þér líkar það ekki, farðu út. Ég nenni ekki að standa í rökræðum við þig um þetta, ég tala fyrir hönd allra stjórnenda spjallsins. Ef þér finnst þetta óréttlátt þá þarftu einfaldlega að bíta í það súra epli, hinsvegar eyðum við þér hiklaust út ef þú ætlar að gera meira mál úr þessu.
Það eru ekki beint fagmannslega vinnubrögð Kiddi, að eyða einstaklingum af því að þeir vilja koma einhverju á framfæri, þegar það eru í raun ekki til neinar reglur um að það megi ekki. Þótt að myndir séu illa liðnar í undirskriftum, þá sé ég ekkert ástæðu til að hafa ekki slíka í minni undirskrift því öðrum líkar illa við það. Hins vegar ef að það verður gert opinberlegt af stjórnanda að myndir í undirskriftum sé bannaðar, þá skal ég fjarlægja hana. En þá þarf sú regla líka að sjálfsögðu að gilda yfir allt og alla, og hentugast væri þá að gera myndir óvirkar í undirskriftum notenda.
count von count
Þar hafiði það. Einnig geta stjórnendur líkt og Kiddi lært eitt af svona uppátækjum, eða þetta gerir fátt annað en gott því líkt og í þessu tilviki fjarlægði það allan vafa um myndir í undirskriftum. Eitt þarf þó að benda admins á, að það er ekki til neitt raunverulegt reglusafn á vaktinni og um notkunina á korkunum. Það þyrfti að bæta í náinni framtíð.
bíddu bíddu! ef að við eigum ekki eftir að fara eftir okkar eigin áliti, eftir hverju eigum við þá að fara, efna til þjóðaratkvæðargreislu? (engar fastar reglur til, bara common sens á pro(non-bt) tölvunördaspjalli gilda hér(t.d. engar myndir))hallihg skrifaði:Kiddi, að þetta sé gróf mynd er einungis þitt álit. Er þér leyfilegt að breyta undirskriftum og texta eftir þínum eiginn geðþótta? Það þykja mér afar slæm vinnubrögð ef slíkt tíðkast á meðal stjórnenda á vaktinni.

----------------------------------------------
hallihg skrifaði:Þessi undirskrift verður svona þangað til að ég sé skýra reglu um að það sé bannað að hafa mynd í undirskrift
Bein óhlýðni á reglunni sem að ég sagði frá þarna?MezzUp skrifaði:myndir eru bara því miður bannaðar í undirskrift

----------------------------------------------
hmm, gæti ekki bara verið að við viljum ekki myndir í undirskrift? Sendi Panademic einusinni bréf um að myndir væru bannaðar í undirskrift, hann ásakaði mig ekki um að vera straightaphobic.........hallihg skrifaði:Þar til það gerist getur maður ekki annað gert en tekið þessum aðgerðum sem fordómum og einkennandi fyrir homophobic einstaklinga!

'ann fór bara eftir því sem að stjórnandi sagði og fjarlægði myndina án þess að vera með væl
-
- Geek
- Póstar: 823
- Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
- Staða: Ótengdur