Svo er mál með vexti að skjákortið í fartölvunni minni er farið og svo segir e-r tölvukall að móðurborðið er eiginlega líka að fara eða það sé best að skipta um bæði. Þetta er Acer Aspire 5680 og er 5-6 ára gömul. Borgar sig að laga hana eða ekki ? Og ef það borgar sig, getið þið sagt mér hvernig skjákort ég á að fá mér og móðurborð því ég veit ekkert um tölvur
Takk fyrir
Skjákortið er líklegast lóðað á móðurborðið. Það er séns að bjarga því ef þetta er bara sprungið tin, með því að hita GPU kubbinn rétt nóg til þess að tinið nái tengingu aftur.
_________________________________________________________________
Rafvirki, Hljóðtæknir, tölvuviðgerðamaður, tónlistarmaður og almennur tækniáhugamaður
Að skipta um móðurborð í fartölvum borgar sig nánast aldrei, ekki nema um verulega nýlega og mid-range/high end fartölvu sé að ræða. Þú hefur ekkert val þegar kemur að fartölvum um hverskonar móðurborð þú færð þér, það eru bara ákveðin borð sem ganga í ákveðnar týpur. Sama gildir yfirleitt um skjákort í fartölvur líka, afar sjaldgæft að þú getir fengið þér annað en það sem kemur í henni.
Einu skiptin sem svona viðgerðir borga sig er ef þú getur fengið varahlutina hræódýra.
Ég veit ekkert um hvað þú nighthawk ert að tala um ... :/ En ég var aldrei að spá að fá mér eitthvað annað en það sem passar í tölvuna og það er það sem ég var að spurja um... Ég veit ekki hvað móðurborðið né skjákortið heitir því ég kann ekkert á tölvur... En það segja mér allir það sama að það sé ekki þess virði að bjarga tölvunni...
http://www.svar.is" onclick="window.open(this.href);return false; eru þjónustu og söluaðili Acer á Ísland. Sakar ekki að hafa samband við þá og athuga hvort þeir eigi gamlar vélar sem þeir geta nýtt í varahlut fyrir þig.