Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Svara

Höfundur
helga88
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Þri 25. Okt 2011 15:25
Staða: Ótengdur

Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Póstur af helga88 »

Svo er mál með vexti að skjákortið í fartölvunni minni er farið og svo segir e-r tölvukall að móðurborðið er eiginlega líka að fara eða það sé best að skipta um bæði. Þetta er Acer Aspire 5680 og er 5-6 ára gömul. Borgar sig að laga hana eða ekki ? Og ef það borgar sig, getið þið sagt mér hvernig skjákort ég á að fá mér og móðurborð því ég veit ekkert um tölvur :)
Takk fyrir :)
Skjámynd

nighthawk
Fiktari
Póstar: 98
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2008 16:19
Staða: Ótengdur

Re: Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Póstur af nighthawk »

Skjákortið er líklegast lóðað á móðurborðið. Það er séns að bjarga því ef þetta er bara sprungið tin, með því að hita GPU kubbinn rétt nóg til þess að tinið nái tengingu aftur.
_________________________________________________________________
Rafvirki, Hljóðtæknir, tölvuviðgerðamaður, tónlistarmaður og almennur tækniáhugamaður
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Póstur af AntiTrust »

Að skipta um móðurborð í fartölvum borgar sig nánast aldrei, ekki nema um verulega nýlega og mid-range/high end fartölvu sé að ræða. Þú hefur ekkert val þegar kemur að fartölvum um hverskonar móðurborð þú færð þér, það eru bara ákveðin borð sem ganga í ákveðnar týpur. Sama gildir yfirleitt um skjákort í fartölvur líka, afar sjaldgæft að þú getir fengið þér annað en það sem kemur í henni.

Einu skiptin sem svona viðgerðir borga sig er ef þú getur fengið varahlutina hræódýra.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.

Höfundur
helga88
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Þri 25. Okt 2011 15:25
Staða: Ótengdur

Re: Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Póstur af helga88 »

Ég veit ekkert um hvað þú nighthawk ert að tala um ... :/ En ég var aldrei að spá að fá mér eitthvað annað en það sem passar í tölvuna og það er það sem ég var að spurja um... Ég veit ekki hvað móðurborðið né skjákortið heitir því ég kann ekkert á tölvur... En það segja mér allir það sama að það sé ekki þess virði að bjarga tölvunni... :(
Skjámynd

Hjaltiatla
Vaktari
Póstar: 2671
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Póstur af Hjaltiatla »

http://www.svar.is" onclick="window.open(this.href);return false; eru þjónustu og söluaðili Acer á Ísland. Sakar ekki að hafa samband við þá og athuga hvort þeir eigi gamlar vélar sem þeir geta nýtt í varahlut fyrir þig.
Just do IT
  √

Höfundur
helga88
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Þri 25. Okt 2011 15:25
Staða: Ótengdur

Re: Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Póstur af helga88 »

Takk fyrir þetta :)
Skjámynd

pattzi
/dev/null
Póstar: 1375
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Póstur af pattzi »

http://iod.is/" onclick="window.open(this.href);return false;

annars fáðu þér nýja vél þessu er ekki viðbjargandi nema að eyða nokkrum bláum.
Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1558
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Er hægt að bjarga fartölvunni minni ?

Póstur af Halli25 »

pattzi skrifaði:http://iod.is/

annars fáðu þér nýja vél þessu er ekki viðbjargandi nema að eyða nokkrum bláum.
http://www.iod.is/sidur/um_iod/tolvuverkstaedid" onclick="window.open(this.href);return false;
Starfsmaður @ IOD
Svara