Nothing skrifaði:145kg í bekk er mjög góður árangur en mættir bæta smá þyngdum í hnébeygju og réttstöðuna. Hvaða rútínu hefuru verið að taka til að þjálfa þig í 145kg í bekk? ertu búinn að stunda lyftingar lengi? Ég sjálfur hef átt rosalega erfitt að ná bekkpressunni upp en réttstaðan og hnébeygjan er annað mál.
Ég er búinn að stunda lyftingar núna af e-rju í viti í 4 ár, en ég er búinn að vera í e-rskonar líkamsrækt (lóð/vinna með eigin þyngdir) síðan fyrir fermingu, það var alltaf e-r styrktarþjálfun meðfram sundinu. Hinsvegar neyddist ég til að taka mér 6-8 mánaða pásu frá lyftingum nánast alveg eftir að ég þríbraut á mér hendina í hittifyrra.
Annars tek ég bekkinn yfirleitt 1x í viku, er með full-body split workout. Bekkpressurútínan hjá mér er yfirleitt Max-OT style, en með smá breytingum, er yfirleitt e-ð á þessa leið :
Gerbill skrifaði:Er þetta sloppabekkur þá? Trúi ekki að þú sért bara að dedda 160 ef þú ert að taka 145 a kjötinu í bekk :p
Onei, ekkert helvítis sloppakjaftæði, tek ekkert mark á slíkum tölum heldur. 145 á kjötinu. Ég hugsa hinsvegar að ég eigi helling inn í deddinu, en bakið á mér hefur undafarnar vikur hreinlega ekki verið í formi til að maxa þar.
Vá þetta er engin smá þyngd ertu þá steralaus? En hvað þarftu að éta mikið til að halda þér við? Þarftu ekki að éta alveg endalaust af kjöti og oft á dag? Ég tek sjálfur ekki nema 115kg í bekk er rúm 90kg 11% fita, en ég hrasa stundum niður í bekknum öðru hverju að því ég borða ekki nóg. Samt finnst mér ég vera borða helling en það gæti líka verið út af öllum bjórnum sem ég drekk um helgar en hef verið fastur í þessari þyngd síðan um áramót.
Að drekka kók sem preworkout drykk er hræðilega vitlaust (.. að drekka kók yfirhöfuð er hræðilega vitlaust). Þyrftir líklega að drekka fleiri lítra til að fá desired magn af koffíni, og fokka blóðsykurnum þínum í leiðinni.
PreWorkout drykkir eru líka oft mikið meira en bara koffín. Uppáhalds Pre og during workout drykkurinn minn er Amino Energy frá On. Free-Form amínósýrur, Beta-Alanine, Koffín, Green Tea og ýmis extracts.
@Íslendingur
Já, steralaus, hef, er og verð það alltaf, þeas. natural bodybuilder. Finnst alveg rosalega leiðinlegt hvernig fitness samfélagið er hérna heima, alltof lítið af mönnum teknir í prufur, og margir að stera sig upp á milli móta, sem drepur algjörlega viljann hjá okkur all natural gaurunum í að taka þátt. Vantar alveg keppni hérna heima undir WNBF (World Natural Bodybuilding Federation).
Annars þarf ég að éta merkilega lítið, kcal lega séð til halda mér við, og í rauninni til að stækka. Ef ég ét maintainance magn af kcal þá stækka ég. Undafarnar 12 vikur hef ég verið að grenna mig og kem til með að halda því áfram næstu mánuði, hægt og rólega til að minimize-a vöðvamissi eins og ég get. Lykilatriðið er að macro-nutrients séu rétt. Matarræðið sem ég fylgi er ca 60% prótín, 25% kolvetni og 15% fita. Passa líka að máltíðir séu rétt tímasettar, borða langmest í kringum æfingar til að hámarka nýtni, svo passa ég alla kolvetna inntöku eftir seinnipartinn. Helsta kjötið sem ég ét er lean beef eða kjúklingur/kalkúnn, og sætar kartöflur eða brún grjón með. Nóg af grænmeti auðvitað með. Síðan ég byrjaði á þessum workout cycle sem ég er í núna þá hef ég verið að borða 8-900kcal undir maintainance gildum og það hefur skilað sér fínt fyrir mig. Svo tek ég einn high kcal/high carb dag í viku til að jumpstarta brennslunni, er að víxla því út núna fyrir aðrahverja viku.
Annars snerti ég ekki áfengi né tóbak, það tekur líkamann ca viku að ná fyrri virkni eftir eitt fyllerí, og skemmir svo mikið fyrir sérstaklega í líkamsrækt að það er bara ekki til í myndinni hjá mér.
AntiTrust skrifaði:Að drekka kók sem preworkout drykk er hræðilega vitlaust (.. að drekka kók yfirhöfuð er hræðilega vitlaust). Þyrftir líklega að drekka fleiri lítra til að fá desired magn af koffíni, og fokka blóðsykurnum þínum í leiðinni.
Má vel vera, en aldrei myndi ég persónulega fórna útliti fyrir styrk, ekki á þessu leveli - með fullri virðingu fyrir Benna og því sem hann hefur náð. Fyrir utan það er ég nokkuð viss um að það eru til betri næringarefni en kók, alveg burtséð frá því hver þú ert eða hvað þú ert að fara að gera.

"Að fórna útliti fyrir styrk" ?
Það er ekkert að því að drekka kók ef það er í réttu magni. Kaloríur inn mínus kaloríur út.

Hvað með blóðsykurinn sem keyrist í hæstu hæðir ? Hvað með sítrónusýruna sem brennir í þér tennurnar ?
Heldur þú virkilega að Benni noti ekkert ? Hann er sponsaður minnir mig af Perform og er vafalaust á hverju einasta Pre-Wo drykk sem þeir selja, PO-W drykk sem þeir selja og nánast allt sem blívar. Þótt að gæinn fái sér kók er það ekki endilega það eina sem er í blóðinu á honum
everdark skrifaði: "Að fórna útliti fyrir styrk" ?
Það er ekkert að því að drekka kók ef það er í réttu magni. Kaloríur inn mínus kaloríur út.
Nákvæmlega. Ef útlit er jafn mikilvægt og styrkur, þá viltu vera að taka kaloríurnar þínar annarsstaðar en úr kóki eða öðru ruslfæði/drykkjum. Það er til margt annað fæði með háum GI sykurstuðli sem er mikið betri kostur sem Post-workout drykkur til að kickstarta insúlininu og flýta fyrir upptöku næringarefna.
AntiTrust skrifaði:Að drekka kók sem preworkout drykk er hræðilega vitlaust (.. að drekka kók yfirhöfuð er hræðilega vitlaust). Þyrftir líklega að drekka fleiri lítra til að fá desired magn af koffíni, og fokka blóðsykurnum þínum í leiðinni.
AntiTrust skrifaði:Að drekka kók sem preworkout drykk er hræðilega vitlaust (.. að drekka kók yfirhöfuð er hræðilega vitlaust). Þyrftir líklega að drekka fleiri lítra til að fá desired magn af koffíni, og fokka blóðsykurnum þínum í leiðinni.
100% whey frá ON Cellmass frá Bsn Amino Energy frá ON Casein frá ON
Ég er 84.5 kg notast við 5x5 kerfi og 3x12 kerfi í split body, lyfti ávallt 4x í viku. Hef 142.5 kg í bekknum, 190 kg í deddi og 180 í beygju.
Borða mjög mikið yfir daginn, tek 6 skeiðar af Amino Energy fyrir æfingu, drekk Cellmass á æfingu og eftir æfingu tek ég 2 skammta af 100% whey, og svo rétt fyrir svefn tek ég einn skammt af Casein. Tek auðvitað vítamín og lýsi með morgunmatnum.
LalliO skrifaði:Hey er einhver með gott prógramm sem hann er til í að láta mig fá? er búinn að vera á sama of lengi..
Þetta er svo rosalega vague spurning að það er engin leið til að svara henni.
Hvað finnst þér gaman? Hvernig formi ertu í núna? Hvað viltu bæta? Hver eru markmiðin? Hvað viltu æfa oft í viku, hversu lengi? Hvað ertu gamall?
Mér langar bara að stækka, meira efri líkama..Vill helst æfa á hverjum degi bara í sumar.. alveg sama hversu lengi og er í mjög góðu formi núna
Ef þú villt æfa á hverjum degi og stækka mundi ég fara í eitthvað upper/lower body split. Ef að aðalfókusinn er að stækka mundi ég samt hafa aðeins meiri hvíld. Upper - lower - hvíld - endurtaka, værir þá að æfa 5 daga í viku.
Mæli hiklaust með Max-OT. Búinn að vera á því prógrammi í nokkra mánuði núna og árángurinn er mikill, og mentalið í hámarki.
Þetta cellmass er lítið annað en overpriced sykurdrulla. Ef þú ert ekki skinny as fuck þá geturu alveg eins sleppt þessu og keypt þér gott monohydrate kreatín. Ef þú vilt síður vatnast þá geturu líka farið yfir í ethylester.
Ok ef ég kaupi það á ég að taka eitthvað annað líka? eða bara taka kreatín?
Fínt að taka fjölvítamín og fiskiolíur (omega fitusýrur).
Fjölvítamínið er svo sem ekki nauðsynlegt EF þú ert með mjög gott og fjölbreytilegt mataræði en þar sem fáir borða nógu fjölbreytt nú til dags finnst mér ágætt að taka fjölvítamín til vonar og vara, getur ekki sakað.
Ég átti einhverstaðar uppskrift að Poormanns Celltech
minnir að það hafi verið 6 bréf Kool Aid, 2 dollur krakkaleppinn og ein krukka af kreatíni, micronized eða CEE. með 40 skömmtum. þá reyndar kostaði celltech í fs um 13 þús og leppinn kostaði 990 kall, creatínið kostaði um 2500.
En það virkaði alveg eins, ég var mikið að nota celltechið þangað til ég blandaði þetta og þetta var eins fyrir utan bragðið. Annars eru forums á netinu þar sem uppskriftir eru gefnar að nánast svipaðri vörum
CendenZ skrifaði:Ég átti einhverstaðar uppskrift að Poormanns Celltech