Nýju routerarnir fyrir ADSL eru komnir og þeir vilja vita þá heita þeir Edimax AR7284WnA og þeir eru seldir á 5.990 kr til hvers sem er og eru leigðir út til viðskiptavina okkar á 450 kr. Þeir eru n150 routerar, þeir hafa verið að performa rosalega vel hjá okkur og styðja fídusa eins og portmapping á portum ( ekki tengt port forwarding ), igmp og margt fleirra skemmtilegt.
Svo erum við byrjaðir á Ljósleiðara gagnaveitu Reykjavíkur. Erum ekki enn alveg fyllilega sáttir með Ljósnetið og seljum það þess vegna ekki sem public vöru ( en svo sem möguleiki ) . Allar tengingar eru afhendar með portið leyft að fara bara hvert sem það vill sem sagt 100 Mb/s tengingar. Routerarnir sem við afhendum eru Edimax BR-6428nS. Þeir eru seldir á 4.990 kr til hvers sem er og eru leigðir út til viðskipta okkar á 450 kr. Þetta er full-N router, á meiri segja að vera grænn af einhverri ástæðu, lítill og nettur router.
Þjónustuleiðir eru á hringdu.is eru
100 Mb/s tengingar
20 GB erlent gagnamagn
- 2.495 kr
50 GB erlent gagnamagn
- 3.495 kr
150 GB erlent gagnamagn
- 4.495 kr
Heimasíminn
- 495 kr
- 0 kr í alla heimasíma
- 14.9 í alla gsm síma
- Frá 2.9 til útlanda ( 48 lönd í heimasíma, 0 kr með 150 GB erlendu niðurhali ).
Starfsmaður hjá okkur ( því miður ekki ég ) er með ljósleiðara frá okkur og okkur fannst þetta smá gaman
Ég bý í Garðinum og kem ekki til með að fá ljósleiðara fyrr en svona 2020.
2.410(Gagnaveitan) + 4.495(Netið150GB) + 495(Heimasíminn)= 7.400 kr.
4.995(Netið100GB) + 1.995(Heimasíminn) = 6.990 kr.
Ég væri alveg til í þessi 50 GB fyrir 410 kr.
Finnst illa farið með hina sem hafa ekki kost á Ljósi...
Eigum von a ljosinu herna i 200 kopavogi i juli, allavega segir það a þessu korti hja simanum.
Ljosnet simans og ljosleiðari, er það ekki það sama ? semsagt get eg ekki fengið aðgang að ljosleiðara hja ykkur þegar þetta er komið ?
Ripparinn skrifaði:Eigum von a ljosinu herna i 200 kopavogi i juli, allavega segir það a þessu korti hja simanum.

Eins og ég skil þetta þá er Ljósnet Símans = ljósleiðari í hverfið, og svo kopar inní hús, sem skilar 50 Mb/s upp og niður.
Ljósleiðari er alveg beintengdur inní hús og því allt að 100 Mb/s (eða meira ?).
Dan A4 M-ITX - Ryzen 3600XT - EVGA 2080 Super XC Gaming - 32GB DDR4 3200MHz - Gigabyte B550i Aorus Pro AX - 1TB 970 EVO NVMe - LG 38'' 21:9 WQHD+ IPS
Ripparinn skrifaði:Eigum von a ljosinu herna i 200 kopavogi i juli, allavega segir það a þessu korti hja simanum.
Ljosnet simans og ljosleiðari, er það ekki það sama ? semsagt get eg ekki fengið aðgang að ljosleiðara hja ykkur þegar þetta er komið ?
Nei, það sem þú ert að fá er VDSL ekki ljósleiðari.
Ég fór í viðskipti við Hringdu sama mánuð og þeir héldu innreið sína. Það sem kveikti sérstaklega í mér var að það væri hægt að hringja til útlanda (fullt af löndum, ekki þó öll) frítt í 1000 mín á mánuði. Svo var heildarpakkinn ódýrari hvort sem er, svo ég tók sénsinn. Það tók soldinn tíma að fá skiptin í gegn, þar sem Hringdu voru að byrja og Síminn ekki tilbúinn að þjónusta þá alveg strax. Svo kom að því. Ég var aldrei var við skiptinguna, hún var komin í gegn einn daginn og allt virkaði sem áður. Nú hef ég fengið 2 mánaðarreikninga og þeir eru upp á þá krónutölu sem auglýst var.
Ég hef verið að vandræðast með Sjónvarpsmálin, en ég sé að þau eru í góðum farvegi.
Hvet ykkur til að fara í viðskipti hjá Hringdu.
Njótið dagsins
Ripparinn skrifaði:Eigum von a ljosinu herna i 200 kopavogi i juli, allavega segir það a þessu korti hja simanum.
Ljosnet simans og ljosleiðari, er það ekki það sama ? semsagt get eg ekki fengið aðgang að ljosleiðara hja ykkur þegar þetta er komið ?
Eins og ég skil þetta þá er Ljósnet Símans = ljósleiðari í hverfið, og svo kopar inní hús, sem skilar 50 Mb/s upp og niður.
Ljósleiðari er alveg beintengdur inní hús og því allt að 100 Mb/s (eða meira ?).
VDSL2 (ljósnetið sem er ekki ljósleiðari) meikar alveg miklu meira en 50Mbps. Sýnist af Wikipedias að fræðilegt hámark sé 250Mbps eins og er (lækkar mjög hratt með fjarlægð frá ljósleiðara).
Ég færði mig yfir til Depils og hringdu fyrir rúmum mánuði síðan og gæti ekki verið sáttari. Ég þurfti að restarta routernum frá símanum að meðaltali 4 sinnum í viku og stundum 4 sinnum á kvöldi. En á þessum rúma mánuði hjá hringdu hef ég ekki þurft neina endurræsingu og sjónvarps símans og netið hefur ekki dottið út í eina mínútu. Hraðin og þjónustan tip top.
Afsaka þetta, vandamálið var bara smá samskiptaleysi/veikindi frá svona 13:30 til svona 3 sem gerði það að verkum að örfáir þurftu að bíða lengi til þangað til þá.
Vorum mikil veikindi hjá okkur í dag og ég var hreinlega á fundum. Þetta er ekki venjan hjá okkur og í raun og veru mjög óvenjulegt. Hefur samt verið rólegt síðan þá.
Hvernig eru tengingar að koma út hjá þeim sem eru hjá Hringdu? Langar að breyta til þar sem gamli zyxel-inn sem ég fékk frá vodafone deyr við of mikið álag á wifi og svo hef ég ekki góða reynslu af nýju hvítu routerunum frá þeim. Er ekki komin bein tenging í gegnum RIX við alla aðila hérna á Íslandi, sá að það var ekki komið fyrir nokkrum vikum.
Mun fara í ADSL pakkann þar sem grey Garðabær virðist ekki ætla að fá ljós fyrr en eftir einhver ár og langaði að heyra skoðanir manna á þjónustu, hraða og upptíma. Mun örugglega senda svo póst eða hringja ef mér líst á.

Ég er búinn að vera hjá þeim í rúman mánuð held ég. Rosalega fínn uppitími (ég hef ekki tekið eftir neinu veseni svo að ég get ekki kvartað). Hraðinn er frábær, manni finnst erlent p2p niðurhal vera miklu minna cappað en það var hjá Tal. Svo hefur ekkert verið fiktað í tengingunni minni og hún cöppuð í einhverri tilraunastarfsemi eins og gerðist nokkrum sinnum á síðustu mánuðum mínum hjá Tal (gæi í þjónustuverinu: "æ úps, einhverjir tæknimenn hafa verið að gera tilraunir og gleymt að taka 1 Mbps cappið af þér... sorry").
Routerarnir sem þeir bjóða uppá hafa líka verið að höndla það fínt. Hef ekki enn þurft að restarta en ég þurfti þess alveg 1-2x í viku með Thomson greyið (og þeir sem Tal voru með á undan því voru ennþá verri).

Ég er sáttur og mæli með þeim
Þetta.
Ég er búinn að vera hjá hringdu.is í rúman mánuð núna og þetta er virkilega flott þjónusta. Smá vesen í fyrstu, en það þurfti að fá tæknimann til að skoða tenginguna inn í hús. Kom þá í ljós að greinin úr skáp í götu og svo greinin sem dreifir merkinu í húsinu voru ekki tengdar. Alls ekki við þá að sakast og tæknimaðurinn tengdi þetta bara saman á staðnum án endurgjalds Erlent p2p niðurhal er fáránlega hratt m.v. sirka 11Mbps tengingu sem ég næ þar sem ég bý, ekkert vesen og allir á mínu heimili afskaplega ánægðir. Mæli hiklaust með hringdu.is.
Því miður erum við ekki komnir með samning við Tengir heldur eingöngu Gagnaveitu Reykjavíkur. Eitt aðalvandamálið er að bera okkur til Akureyrar. Hins vegar erum við að skoða ýmsar lausnir í því samhengi og vonandi getum við boðið uppá hraðar Ljósleiðara tengingar á Akureyri innan skamms. En eins og er bjóðum við bara uppá ADSL tengingar þar.

Ef ég ætla að opna port þarf ég að hringja í þjónustuverið og láta þá gera þetta fyrir mig?
Tölva, 2 skjáir, Varmilo lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól