Ok, eins mikið og mig langar að stofna account á barnahlandi og ná til fleira fólks, ætla ég ekki að gera það. Nú eru komnar á markað hér á landi vespur sem ganga á rafmagni eingöngu. Þessar vespur eru læstar í 25 Km hraða og eru ætlaðar til notkunar á göngustígum. Þær eru númerslausar og gilda sömu reglur um þær og reiðhjól, að undanskildum hraðatakmörkuninni. Nú langar mig að ná til fólks sem hefur ekki hugmynd um þessi fyrirbæri: HÆTTIÐ AÐ FOKKING FLAUTA OG SEGJA MANNI AÐ FARA ÚT Á GÖTU!!! ÞEIM ER ÆTLAÐ AÐ AKA Á GÖNGUSTÍGUM OG ERU EKKI ÆTLAÐAR TIL AKSTURS Á UMFERÐAGÖTUM.
Vandamálið hér á landi er það að það er sjaldnast gert ráð fyrir svona tækjum á göngustígum
en með tilkomu tækjanna þarf nauðsynlega að gera ráð fyrir þeim í umferðinni einhvern staðar.
Bensínknúnar vespur (skellinöðrur) eru bannaðar á gögngustígum en ég veit ekki með rafmagnsvespur sennilega eru bara ekki til nein lög fyrir þær en
það á væntanlega eftir að breytast því þetta getur alveg verið hættulegt þó þetta komist bara 25 km/klst. Það verða sjálfsagt settar reglur um hjálma oþh.
Sumstaðar er farið að merkja sérstaklega reiðhjólastíga og þann hluta sem reiðhjólið á að vera ég geri ráð fyrir því að þessi tæki meigi aka þar?
Eins þyrfti að setja upp staði þar sem hægt væri að kaupa hleðslutíma fyrir vespuna td. í miðbænum og við verslunarmiðstöðvar.
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
reyndeer skrifaði:LOL, vissi ekki að þessi þráður myndi ögra karlmennskunni í öðrum strákum svona SVAÐALEGA XD
vespur, segir sig sjálft
Sorry, I just don't get it. Fyrir mér er vespa bara farartæki eins og bíll, ég nota þetta til að komast milli staða, og jú, kannski njóta þess á vissan hátt. En að vera að koma með svona komment sem koma beint frá typpinu, eins og að metast um hver kemst hraðast og á stærsta og flottasta af öllu, again, sorry, I just don't get it...
Ef ég væri að labba með barnavagn á gangstétt og einhver hlandhaus kæmi á móti mér á vélhjóli á 25km hraða þá myndi ég hrinda honum út á götu án þess að hika.
GuðjónR skrifaði:Ef ég væri að labba með barnavagn á gangstétt og einhver hlandhaus kæmi á móti mér á vélhjóli á 25km hraða þá myndi ég hrinda honum út á götu án þess að hika.
Hann er þarna með sömu réttindi og þú. Svo að hann gæti sennilegast kært þig fyrir það.
GuðjónR skrifaði:Ef ég væri að labba með barnavagn á gangstétt og einhver hlandhaus kæmi á móti mér á vélhjóli á 25km hraða þá myndi ég hrinda honum út á götu án þess að hika.
Hann er þarna með sömu réttindi og þú. Svo að hann gæti sennilegast kært þig fyrir það.
Segi það með þér GuðjónR
það er ekki rétt hjá þér Páll. Gangandi vegfarandi er alltaf rétthærri.
Það var allavega þannig þegar ég tók öll þau próf sem ég hef á öll ökutæki.
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
Ég var ný reyndar að fíflast, myndi aldrei hrinda neinum.
Hitt er annað að 25 km. hraði er mikill hraði á hjóli.
Ekkert sem réttlætir þann hraða á gangstétt.
Hef það af bitri reynslu að maður hrindir ekki eða bankar í hluti á miklum hraða... Sló með opnum lófa utan í strætó sem ég var að reyna að ná þegar ég var yngri , var skokkandi hliðiná honum þegar hann lagði af stað og var að vonast til að hann myndi heyra þetta bank mitt, nema hvað að þessi litla snerting utan í strætóin var nóg til að ég flaug á hausinn
Ég hjóla mjög mikið og er á þeirri skoðun að reiðhjól eigi í mörgum tilfellum ekki heima á göngustígum enda hættulegt ef maður hjólaði á einhvern á kannski 30 km hraða. Enn síður eiga þessar vespur heima á gangstéttum, enda talsvert þyngri og svifaseinni en reiðhjól.
Ég hjóla nánast allaf á götunni (úti í kanti) á götum svo lengi sem hámarkshraðinn er ekki 60 eða hærri. Enda er ég yfirleitt ekki að hjóla langt undir hámarkshraða (svolítið undir á 50km götum þó). En ef gangstéttar eru breiðar og góðar þá er ég á þeim og nota að sjáfsögðu hjólastíga þar sem þeir eru. Vill vekja athygli á því að reiðhjól hafa fullan rétt á því að vera á götunni.
En hvernig er það annars með þessar rafmagnsvespur, má ekki vera á götunni á þeim? Finnst meika miklu meira sens að vera á götunni á þessu t.d. á 30 km. götum.
Held að menn séu fullmikið að missa sig í þessum 25km hámarkshraða. Það er lítið sem ekkert mál á ná þessum hraða á reiðhjóli en það þýðir ekki að fólk sé að hjóla svo hratt í hvaða aðstæðum sem er. Gilda bara sömu lögmál og þegar maður keyrir bíl, maður keyrir eftir aðstæðum. Svo mín vegna má þetta vera á gangstéttum, væri stórhættulegt að hafa þetta á götunum.
GuðjónR skrifaði:Ef ég væri að labba með barnavagn á gangstétt og einhver hlandhaus kæmi á móti mér á vélhjóli á 25km hraða þá myndi ég hrinda honum út á götu án þess að hika.
Ertu fokking klikkaður?
GuðjónR skrifaði:Ég var ný reyndar að fíflast, myndi aldrei hrinda neinum.
Hitt er annað að 25 km. hraði er mikill hraði á hjóli.
Ekkert sem réttlætir þann hraða á gangstétt.
Held að meirihlutinn hafi misst af greininni sem ég sendi inn. Þetta á heima á gangstéttum. Sættu þig við það.