Telesy box og bein aðgangur

Svara
Skjámynd

Höfundur
Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Telesy box og bein aðgangur

Póstur af Pandemic »

Sælir, ég er með ljósleiðara og það er hvimleitt að vera með Server í gegnum routerinn sem Tal skaffar þar sem hann þolir enganveginn troughputið sem ljósleiðarinn er að gefa og crashar þar að leiðandi mjög oft.

Þannig ég ætlaði bara að setja tölvu á milli sem eldvegg og sjá bara um þetta sjálfur. En þegar ég tengi vélina í boxið þá fæ ég alltaf upp OR splashið og er beðinn um notandanafn og lykilorð og þegar það hefur verið slegið inn fæ ég bara eitthvað áskrifaroverview og kemst ekki framhjá því.

Á bara að vera nóg að slá inn lykilorð og pass og good to go? :baby

einarth
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 343
Skráði sig: Þri 26. Okt 2010 15:01
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af einarth »

Sæll.

Ertu að tengja í sama port á Telsey og router var tengdur í áður, eða eru að nota annað port?

Þetta á að virka þannig að þú tengir í ISP port (port 1-2) og ef það er óskráð tæki þá færðu 10.x.x.x ip tölu. Frá henni færðu upp kerfi GR í vafra og slærð inn nafn og lykilorð. Eftir það þarftu að endurræsa tækið (eða ipconfig release-renew) og þá færðu public ip tölu og tækið er skráð.

Kv, Einar.
Skjámynd

pattzi
/dev/null
Póstar: 1375
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af pattzi »

Keyptu þér bara alvöru router .
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af gardar »

pattzi skrifaði:Keyptu þér bara alvöru router .

Miklu betra/skemmtilegra að henda upp server og nota hann sem router :)
Skjámynd

pattzi
/dev/null
Póstar: 1375
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af pattzi »

gardar skrifaði:
pattzi skrifaði:Keyptu þér bara alvöru router .

Miklu betra/skemmtilegra að henda upp server og nota hann sem router :)

okey:-)
Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1268
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af ponzer »

Pandemic skrifaði:Sælir, ég er með ljósleiðara og það er hvimleitt að vera með Server í gegnum routerinn sem Tal skaffar þar sem hann þolir enganveginn troughputið sem ljósleiðarinn er að gefa og crashar þar að leiðandi mjög oft.

Þannig ég ætlaði bara að setja tölvu á milli sem eldvegg og sjá bara um þetta sjálfur. En þegar ég tengi vélina í boxið þá fæ ég alltaf upp OR splashið og er beðinn um notandanafn og lykilorð og þegar það hefur verið slegið inn fæ ég bara eitthvað áskrifaroverview og kemst ekki framhjá því.

Á bara að vera nóg að slá inn lykilorð og pass og good to go? :baby
Ég setti upp headless Smoothwall vél sem gerir þetta fyrir mig, það sem ég þurfti að gera var að tengja mig á lappanum beint í boxið og fara í gegnum þennann áskriftar wizard og þegar það er búið þá þarftu að setja inn MAC addressuna á netkortinu sem þú ætlar að tengja í boxið (sem mun þá væntanlega vera eitt af netkortunum á vélini sem þú ætlar að láta routa fyrir þig) í Network devices í þessum Gagnaveitu portal :) þegar þú ert búinn að því þarftu að restarta telsey boxinu og þá ertu góður jafnvel restarta eða bara flusha dns'ið á router vélini.
Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.
Skjámynd

Höfundur
Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af Pandemic »

Takk fyrir svörin, ég prófa þetta eftir próf þegar ég hef tíma.

Gullisig
Fiktari
Póstar: 88
Skráði sig: Lau 28. Feb 2009 19:42
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af Gullisig »

Mac talan á netkorti vélar sem þú ert að tengja við telsay þarft þú að gefa upp og setja í OR síðuni settu bara aftur gamla router við telsay og bættu við mac tölunni og viola ,, ps ég er með þetta svona eins og þú ert að reyna ,,, hef eina vél keyrandi ISA firewall

braudrist
vélbúnaðarpervert
Póstar: 993
Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af braudrist »

Mig minnir að þú þurfir að hringja í Vodafone og gefa þeim upp MAC addressuna, ekki OR.
Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m

Páll
/dev/null
Póstar: 1426
Skráði sig: Mán 28. Apr 2008 17:32
Staðsetning: Undir töfra regnboganum
Staða: Ótengdur

Re: Telesy box og bein aðgangur

Póstur af Páll »

Þarft að skrá þig inn á OR síðunni og setja inn mac addressuna, og restarta svo boxinu.

Er sjálfur með server beintengdan við telseybox.
Svara