Þá er komið að því að skipta út 2002 árgerðinni af móðurborð og örgjörva fyrir 2004 moddið..
Þar sem að ég kýs að kalla mig trefil í þessum málum legg ég þetta í ykkar hendur.. Er málið virkilega að hald áffram í AMD.. ódýrari.. meira fyrir peninginn og so on.. eða fara í Intel.. traustið.. minni hitavesen... eða hvað.. ?
Ætli marr tými ekki svona 25-35 kalli í þetta... +- eitthvað
bara endilega tjáið ykkur um þetta og reynið að færa fram rök .. ekki bara.. " AMd Rular " reyna að hafa smá skynsemi í þessu.. þetta er jú merkilegt stöff sem ég hyggst versla.. og á eftir að vera útriðið amk næstu 2 árin
gefur amd manni ekkert meira fyrir peninginn ? reyndar þegar hann er til í að eyða svona miklum pening myndi ég fá mér p4 en amd eru miklu ódýrari samt.
Icarus skrifaði:gefur amd manni ekkert meira fyrir peninginn ? reyndar þegar hann er til í að eyða svona miklum pening myndi ég fá mér p4 en amd eru miklu ódýrari samt.
Munurinn er ekki svo mikill á þeim örgjörvum sem menn kaupa í dag, AMD eru ekki mikklu ódýrari.
Málið er ... ég er með 2002 árgerðina.. MSI Ultra 745, ég held að þetta sé bara 266Mhz móðurborð... er það ekki soldið lítið... ( ekki það að Xp1800 ) örrinn er að standa sig eins og hetja..
Málið er.. drengir... Hvað get ég fengið mér stærst í þetta móðurborð.?? Xp2400 Xp2500 eða stærra ??
ef brautarhraðainn er orðinn meiri á öðrum örgjörvum .. virka þeir þá samt alveg á móbóinu mínu.. ég meina.,. virkar xp2700 á þessu móðurborði ??
please help me.. ég er ekki alveg svona mikill Dr. í tölvugrúski
Ef ég væri þú myndi ég bíða með að uppfæra móðurborðið amk þar til Athlon64 borðin (og örgjörvar) verða ódýrari, það eru ekki nema nokkrir mánuðir í það (939-pinna borð og örgjörvar eiga að koma á næstu 2 mánuðum, og verða staðallinn sem kemur til með að gilda. Þau verða líka ódýrari en það sem er í boði núna). Sama gildir með P4, nýja Prescott línan heimtar í flestum tilfellum nýtt móðurborð, þannig að ef þú kaupir þér P4 móðurborð í dag eru góðar líkur á að þú getir ekki uppfært örran seinna.
Ef þú vilt endilega uppfæra eitthvað núna, þá er málið bara að henda 10þús kalli í 2400+ (2600 ef þú finnur) örgjörva. Þar færðu auka 500mhz, sem ættu að duga þér þar til nýju amd/intel línurnar verða aðeins ódýrari. Annars ertu bara að eyða peningum í deyjandi tækni.
Hörde skrifaði:Ef þú vilt endilega uppfæra eitthvað núna, þá er málið bara að henda 10þús kalli í 2400+ (2600 ef þú finnur) örgjörva. Þar færðu auka 500mhz, sem ættu að duga þér þar til nýju amd/intel línurnar verða aðeins ódýrari. Annars ertu bara að eyða peningum í deyjandi tækni.
Horde mælir lög. Ferð ekki að henda pening í nýtt móbo fyrir lítinn ávinning. Þá ættirðu líka eftir að kaupa nýtt minni o.fl. 2400+ er mjög fín uppfærsla.
Takk rosalega fyrir þetta Combó strákar... ekki það.. ég fór á smá shopping spree í dag í smáralind.... hmm .. þetta fór eiginlega bara í fatnað..hehe
en ég hef þetta á bak við eyrað.. ég held að vélin mín sé alveg að höndla allt sem ég nota í dag alveg bærilega.. fæ mér kannski bara 2600xp.. hann er á fínum prís... er alveg með feikinóg minni.. næstum Gb og er með ljómandi G4 kort.. þannig að
miða bara við að 3d mark2003 var alveg ágætt og ég spila t.d FAR Cry í mjög góðri upplausn og hann er ekkert að hiksta rassgat..... bíðum bara með þetta þar til að Doom 3 og hin ótrúlegi biðsami HL2 ef hann kemur þ.e....
kveð að sinni.... adios
sjáumst svo á Skjálfta 1 2004 .... takið eftir ljósadýrðinni sem verður hjá PimpaBorðinu.... Thats me ...hehe
það er alltaf hægt að overclocka 266Mhz örrana... það er líka hægt að "overclocka" 333MHz örgjörva sem keyrir á 266MHz uppí 333 ef að borðið er með pci lock