Fávís kona.... Intel vs. AMD

Svara

Höfundur
oskarandri
Fiktari
Póstar: 65
Skráði sig: Þri 25. Maí 2010 14:28
Staða: Ótengdur

Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af oskarandri »

Góðan daginn :)

Nú langaði mig að spyrja bara forvitnisins vegna varðandi örgjörva. Ég er svosem enginn örgjörva snillingur en alltaf haft skoðun og verið Intel maður..... en maður getur ekki annað en velt því fyrir sér Core i7 Hex core 3.3GHz vs. Phenom II Black Hex core 3.2 GHz. Finnur maður þennan 120.000 kr mun þegar maður sest við tölvuna.... þ.e.a.s. einhverstaðar annarstaðar en í veskinu.... spurningin gæti alveg átt við aðra intel vs. amd örgjörva líka... fór bara að velta því fyrir mér afhverju það er svona klikkaður verðmunur :)

Kv.
Óskar Andri
1. Intel i5 3570K, AsRock H77 Pro4/MVP, 16GB RAM, Samsun 840 Pro 128GB, 3TB storage
2. Lenovo Thinkpad T500 Mushkin 8GB RAM, Mushkin 60GB SSD Win7
http://is.oskarandri.com
Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1519
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Staðsetning: Á sporbaug sólar
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af Benzmann »

AMD örgjörvar eru þekktir fyrir að hitna meira, annars sé ég litla ástæðu, ég hef alltaf verið Intel og Nvidia Manneskja :P
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit

Godriel
spjallið.is
Póstar: 400
Skráði sig: Mið 03. Jún 2009 22:16
Staðsetning: Reyðarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af Godriel »

Ef þú ert mikill tölvukall og uppfærir á minna en 2ja ára fresti held ég að þú finnir engann mun, ég er allavegana alltaf með AMD og hef getað gert allt með því sem intel getur og á sama hraða... bara spurning um að setja þetta rétt saman eftir því hvað þú ætlar að gera í tölvunni
Acer Aspire 7520G

Godriel has spoken
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af Daz »

MIðað við tomshardware þá er i7 860 2.8GZH sambærilegri örgjörvi (s.s. afkastalega).

Í samanburði við i7 980 þá ertu samt ekkert að fá 3-4x meira performance

(Ég rétt vona að þessi url virki :o )
Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af chaplin »

Vill byrja á því að segja að AMD hitna ekki meira, í sumum fartölvum jú en í borðtölvum, nei.

AMD eru ekki búnir að vera upp á sitt besta síðan Intel gaf út i7 línuna, sjálfur er ég þó mikill AMD maður og hef mikla von á að AMD koma sterkir inn á næsta ári, Dirk Meyer (Steve Jobs of AMD) hefur bjargað fyrirtækinu einu sinni áður og segir hann að AMD séu að fara stökkbreytast á næsta ári.

Í dag er Intel með meira hrátt afl, og eiga AMD í raun enga quad core örgjörva sem eru sambærilegir i7 línunni (920/930/950 etc) og því fáranlegt að bera saman AMD955 á móti i7-950 þar sem það er helmings verðmunur, álíka vitlaust og að bera saman E7400 á móti 1090T.

Ef þú vilt fá öfluga vél á mjög góðu verði að þá hentar AMD oftast best, ef þú vilt fá þvílíkt hrátt afl að þá færi ég Intel.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

Moldvarpan
Of mikill frítími
Póstar: 1722
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af Moldvarpan »

AMD x4 örgjörvinn minn er ekki að hitna mikið, hann er með retail viftu, í idle er hann í ca. 39°c og undir miklu álagi í um 54°c.

TestType
Fiktari
Póstar: 60
Skráði sig: Sun 11. Júl 2004 15:35
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af TestType »

benzmann skrifaði:AMD örgjörvar eru þekktir fyrir að hitna meira, annars sé ég litla ástæðu, ég hef alltaf verið Intel og Nvidia Manneskja :P
Það er reyndar þveröfugt, Intel örgjörvarnir er mun heitari, sérstaklega ef þú ert með stock kælinguna.

jonrh
Nörd
Póstar: 127
Skráði sig: Þri 12. Jan 2010 13:37
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af jonrh »

Linus Tech Tips útskýrir þetta ágætlega.
Skjámynd

vesley
Kóngur
Póstar: 4139
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af vesley »

TestType skrifaði:
benzmann skrifaði:AMD örgjörvar eru þekktir fyrir að hitna meira, annars sé ég litla ástæðu, ég hef alltaf verið Intel og Nvidia Manneskja :P
Það er reyndar þveröfugt, Intel örgjörvarnir er mun heitari, sérstaklega ef þú ert með stock kælinguna.

Intel örgjörvarnir þola líka yfirleitt meiri hita.
massabon.is
Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af Haxdal »

Held að margir gamlir tölvugúrúar hafi myndað sér sterka skoðun á Intel og AMD fyrir mörgum árum og haldið þeim við til dagsins í dag, ég er einn þeirra.

Hef alltaf forðast AMD, þrátt fyrir að ástæðurnar fyrir því séu ekki lengur "issue", svo ég hef alltaf haft Intel í mínum tölvum og ráðlegg ættingjum og vinum að fá sér Intel ef þau geta :besserwisser .
Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <
Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af bulldog »

Ég er svona að skoða uppfærslu á komandi mánuðum líklega c.a. mars - apríl eða jafnvel fyrr eftir því hvað það mun kosta. AMD Phenom II X6 1090T Black 3.2 GHz Hex er núna á 35 þús kall á meðan Intel Core i7 980X 3.33GHz Hex Core er á 160 þús. Mér finnst þetta vera rosalegur verðmunur ef það er ekki þeim mun meiri afkastamunur. Ef maður pælir í þessu út frá hvort fer betur með veskið er þá ekki sniðugt að eyða meira í minnið með AMD örgjörvanum í staðinn fyrir að sprengja veskið ? Hvað finnst ykkur ?
Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af ManiO »

bulldog skrifaði:Ég er svona að skoða uppfærslu á komandi mánuðum líklega c.a. mars - apríl eða jafnvel fyrr eftir því hvað það mun kosta. AMD Phenom II X6 1090T Black 3.2 GHz Hex er núna á 35 þús kall á meðan Intel Core i7 980X 3.33GHz Hex Core er á 160 þús. Mér finnst þetta vera rosalegur verðmunur ef það er ekki þeim mun meiri afkastamunur. Ef maður pælir í þessu út frá hvort fer betur með veskið er þá ekki sniðugt að eyða meira í minnið með AMD örgjörvanum í staðinn fyrir að sprengja veskið ? Hvað finnst ykkur ?

Er ekki aðal munurinn að Intel örgjörvinn er enthusiast vara ásamt því að vera triple channel og AMD er consumer vara og double channel?

Fyrir venjulegan notanda þá er það klikkun að borga 135þús meira fyrir svipaða vöru. En þegar maður fer út í yfirklukkunarpælingar og min/maxing þá er intel örgjörvinn klárlega sterkari kostur. En aftur, 135 þús kalli meir.
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Skjámynd

MatroX
Besserwisser
Póstar: 3496
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af MatroX »

bulldog skrifaði:Ég er svona að skoða uppfærslu á komandi mánuðum líklega c.a. mars - apríl eða jafnvel fyrr eftir því hvað það mun kosta. AMD Phenom II X6 1090T Black 3.2 GHz Hex er núna á 35 þús kall á meðan Intel Core i7 980X 3.33GHz Hex Core er á 160 þús. Mér finnst þetta vera rosalegur verðmunur ef það er ekki þeim mun meiri afkastamunur. Ef maður pælir í þessu út frá hvort fer betur með veskið er þá ekki sniðugt að eyða meira í minnið með AMD örgjörvanum í staðinn fyrir að sprengja veskið ? Hvað finnst ykkur ?
Þetta er samt svona eins og að bera saman Ferrari(980x) vs Subaru Imprezu(1090T) afkasta munurinn er sjánlegur í öllum þeim benchmörkum sem maður skoðar t.d hérna http://www.anandtech.com/bench/Product/146?vs=142 intelinn kemur betur út á alla vegu en ef þú vilt spara þér aðeins þá gætiru farið í i7 970 sem er svona "non-extreme" útgáfa af 980x hann er 6kjarna og aðeins ódýrari en slær samt 1090t við.
Mynd
Intel i7 8700k | Corsair H100i | ASROCK z370 PRO4m | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |
Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD

Póstur af bulldog »

Intel Core i7 950 3.06GHz Quad Core sem ég fann á vaktin.is á listanum yfir örgjörvanna er quad core en ekki hex core.... er hann til hex core líka ?
Svara